Fréttablaðið - 03.10.2013, Blaðsíða 46
3. október 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 34
„Mér fannst þessi titill á bókinni alltaf blasa
við. Ég neita því ekki að mér finnst sniðugra
fyrir höfunda sem eru að gefa út sína fyrstu
bók að velja á hana titil sem vekur athygli og
mér finnst þessi titill líklegri til þess en eitt-
hvað í líkingu við „Haustdagar“ eða eitthvað
slíkt,“ segir Halldór Armand Ásgeirsson,
sem sendir frá sér sína fyrstu skáldsögu,
Vince Vaughn í skýjunum, á þriðjudaginn
næsta.
Vince Vaughn ekki í uppáhaldi
Aðspurður segir Halldór bókina fjalla um
persónur sem verða óumbeðnar þunga-
miðjan í óvenjulegum atburðum sem
breyta lífi þeirra. „Aðalpersónurnar eru
tvær, annars vegar menntaskólastelpa sem
starfar í sundlaug yfir sumartímann og hins
vegar örlítið eldri maður sem vinnur við að
kynna lottótölurnar í sjónvarpinu og kann
stöðu sinni í lífinu heldur illa. Atburðirnir
sem eiga sér stað breyta lífi þeirra á þann
hátt að hann verður alræmdur á Íslandi
en hún verður alþjóðleg stjarna í gegnum
internetið,“ útskýrir Halldór og tekur fram
að hann kjósi síður að útlista söguþráðinn
frekar til að eyðileggja ekki spennuna fyrir
væntanlegum lesendum.
Að sama skapi er Halldór tregur til að
gefa upp hvernig Vince Vaughn tengist
sinni fyrstu bók, en segir leikarann ein-
faldlega hafa smellpassað inn í ákveðið hlut-
verk sem sagan krafðist. „Það er svo sem
ekkert sérstakt við Vince Vaughn,“ segir
Halldór. „Hann er frægur leikari en um
leið ekkert rosalega frægur leikari og fullt
af fólki þekkir kannski andlitið á honum en
ekki nafnið. Samt er ýmislegt áhugavert við
hann. Til dæmis sá ég á Wikipediu að hann
er einn af hávöxnustu leikurunum í Holly-
wood, en hann er ekki í neinu sérstöku upp-
áhaldi hjá mér. Margir sem heyra titilinn
á bókinni hvá og halda jafnvel að Vince
Vaughn sé eitthvert íslenskt orð, „vinsvon“
sem þeir hafa ekki heyrt.“
Óvenjulegur íþróttagarpur
Halldór Armand er 27 ára gamall Reykvík-
ingur sem útskrifaðist sem lögfræðingur
frá Háskóla Íslands á síðasta ári en býr nú
mestmegnis í London ásamt kærustunni
sinni, leikkonunni Heru Hilmarsdóttur.
Hann segir rithöfundardrauma lengi hafa
verið til staðar hjá sér og rekur það að hluta
til uppvaxtaráranna. Mamma Halldórs er
íslenskukennari og pabbi hans var blaða-
maður og fréttastjóri á Morgunblaðinu til
margra ára og því mikið um pælingar um
tungumálið og stílbrögð á heimilinu.
„Mamma og pabbi leiðréttu mig til dæmis
harkalega þegar ég talaði vitlaust mál svo
ég var fljótur að ná því, en þau voru samt
alls ekki að láta mig lesa Glæp og refsingu
þegar ég var tíu ára eða neitt slíkt. Ég var
heldur ekki barn sem hékk á bókasöfnum,
heldur meira einhvers konar íþrótta garpur
með nokkuð óvenjuleg áhugamál,“ rifjar
Halldór upp og tekur fram að súrrealískt
leikrit sem hann skrifaði og setti upp ásamt
félögum sínum í Hlíðaskóla hafi skipt miklu
upp á framhaldið, en atriðið stóð uppi sem
sigurvegari í Skrekk, hæfileikakeppni
grunnskólanna, þegar Halldór var í 9. bekk.
„Það er dálítið lúðalegt að rifja upp ein-
hverja sigra frá því maður var fjórtán ára,
en svona litlir hlutir skipta oft máli og kenna
manni að treysta áhugasviðinu.“
Styrkurinn var móralskt „búst“
Á menntaskólaárunum í MH tók Hall-
dór virkan þátt í MORFÍS-ræðukeppninni
og var meðal annarrs kosinn ræðu maður
Íslands. Auk þess starfaði hann nokkur
sumur og með námi sem blaðamaður á
Morgunblaðinu og lýsir hvoru tveggja sem
mikilvægri reynslu, þótt MORFÍS-keppnin
hafi á síðustu árum fengið á sig illt orð og
margir tengi hana ósjálfrátt við kjaftaska
á Alþingi.
Áhugi hans á bókmenntum kviknaði fyrir
alvöru þegar hann hóf nám við Háskóla
Íslands, en hann segir sjarmann hafa farið
ansi fljótt af háskólalífinu þótt hann hugsi
með hlýju til námsins. „Námið er gott, en
mér leið nánast eins og ég væri að breytast
í 37 gráðu heita akademíska rökhyggjuvél og
að ég væri lítið annað. Ætli ég hafi ekki lent
í smá lífsfjórðungskrísu og ákvað að reyna
að kynnast sjálfum mér upp á nýtt, eins
hallærislega og það hljómar,“ segir Halldór
og bætir við að hann hafi hafið skriftir við
Vince Vaughn í skýjunum þegar hann flutti
til stórborgarinnar London á síðasta ári.
Í maí síðastliðnum hlaut Halldór
Nýræktar styrk Miðstöðvar íslenskra bók-
mennta, sem ætlað er að að hvetja til útgáfu
á nýjum íslenskum skáldskap, og lýsir hann
styrknum sem miklu mórölsku „bústi“. „Ég
hef verið rosalega heppinn því í upphafi
var útgáfan á þessari bók mjög fjarlægt
markmið sem ég hélt að tæki mörg ár að
ná. Þegar ég sendi handrit til Forlagsins í
ágúst bjóst ég í besta falli við að fá smá hrós
og loforð um að skoða málið í vor, en tveim-
ur vikum síðar fékk ég svo þau skilaboð að
bókin myndi koma út í október. það var mjög
skemmtilegt en líka skrítið. Strax eftir sím-
talið var ég í skýjunum í svona korter en
síðan þá hef ég verið með fjörfisk í auganu í
sex vikur. Ég er dálítið stressaður, en ég veit
ekki almennilega hvers vegna því ég held að
ég hræðist viðtökurnar við bókinni ekki sér-
staklega. Það er frekar sú staðreynd að ég
er nýr höfundur og verð að vekja athygli á
bókinni, sem mér finnst ekkert sérstaklega
þægilegt, og reyna að selja bókina sem ég
kann ekki. Maður vill ekki valda þeim sem
trúa á mann vonbrigðum, en líklega er bara
best að vera bjartsýnn, jákvæður og æðru-
laus. Það er ekki hægt að stjórna öllum hlut-
um í kringum sig,“ segir Halldór.
Kynnir sig ekki sem rithöfund
Hann segist kunna því vel að líta á sig sem
amatör í bransanum enn um sinn. „Mér
dettur ekki í hug að kynna mig sem rit-
höfund strax þótt ég hafi sent frá mér eina
bók. Ég held að það sé fínt viðhorf, en ég veit
nokkurn veginn hvað ég vil gera næst og er
kominn með hugmynd að næstu bók. Ég mun
örugglega halda áfram að skrifa, nema eitt-
hvað mikið gangi á. Ef það verður sett á fót
undirskriftasöfnun sem miðar að því að
fá þennan Halldór Armand til að hætta að
skrifa mun ég líklega taka mark á henni,“
segir Halldór að lokum og hlær.
Spratt upp úr lífsfj órðungskrísu
Halldór Armand Ásgeirsson sendir frá sér sína fyrstu bók, Vince Vaughn í skýjunum, næsta þriðjudag. Þegar hann settist við skrift ir
taldi hann útgáfu fj arlægt markmið sem gæti tekið mörg ár að ná, en hann er nú þegar kominn með hugmynd að næstu bók.
FYRSTA BÓKIN Halldór Armand Ásgeirsson hóf skriftir á sinni fyrstu bók, Vince Vaughn í skýjunum, þegar
hann flutti til London á síðasta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ég bjó náttúrulega úti í Grikklandi
þegar ég var tólf ára pæja og
kynntist þá grískri tónlist,“ segir
Þórunn Lárusdóttir leik- og söng-
kona, um ástæðu þess að hún
ætlar að syngja grísk þjóðlög á
Café Haiti annað kvöld. „Þetta er
alveg dásamleg tónlist og ég er í
nostalgíukasti í hvert sinn sem ég
heyri hana.“
Þórunn mun þó ekki einvörðungu
halda sig við grísku tónlistina á tón-
leikunum. „Það verða fleiri heimshorn
þarna. Lög á spænsku, þýsku og frönsku
að ógleymdri íslenskunni. Þannig
að við ætlum að vera dálítið
alþjóðleg og þetta verður
örugglega rosalega gaman.“
Með Þórunni leika Ásgeir
Ásgeirsson á bouzouki,
Haukur Gröndal á klarínett,
Þorgrímur Jónsson á bassa,
Erik Qvick á slagverk og
Kristófer Rodriguez
Svönuson á slagverk.
Tónleikarnir fara fram
á Café Haítí og hefjast
klukkan 21.30. - fsb
Er í nostalgíukasti
Þórunn Lárusdóttir kemur fram á tónleikum á Café
Haiti annað kvöld og syngur meðal annars grísk
þjóðlög, en hún bjó í Grikklandi sem barn.
DÁSAMLEG TÓNLIST
Þórunn kemur víða við á
tónleikunum en grísku
þjóðlögin verða í
öndvegi.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Einsöngstónleikar í Fella- og Hólakirkju
mezzósópran
Julian M.Hewlett
píanó og orgel
Símon H. Ívarsson
gítar
Kristín R. Sigurðardóttir
Sópran
Victoria Tarevskaia
sellóLaugardaginn 5 október
Klukkan 17:00
Með innilegu þakklæti til læknanna á Mayo Clinic í Rochester fyrir tíu árum.
1500 krónur
MENNING