Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.10.2013, Qupperneq 46

Fréttablaðið - 03.10.2013, Qupperneq 46
3. október 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 34 „Mér fannst þessi titill á bókinni alltaf blasa við. Ég neita því ekki að mér finnst sniðugra fyrir höfunda sem eru að gefa út sína fyrstu bók að velja á hana titil sem vekur athygli og mér finnst þessi titill líklegri til þess en eitt- hvað í líkingu við „Haustdagar“ eða eitthvað slíkt,“ segir Halldór Armand Ásgeirsson, sem sendir frá sér sína fyrstu skáldsögu, Vince Vaughn í skýjunum, á þriðjudaginn næsta. Vince Vaughn ekki í uppáhaldi Aðspurður segir Halldór bókina fjalla um persónur sem verða óumbeðnar þunga- miðjan í óvenjulegum atburðum sem breyta lífi þeirra. „Aðalpersónurnar eru tvær, annars vegar menntaskólastelpa sem starfar í sundlaug yfir sumartímann og hins vegar örlítið eldri maður sem vinnur við að kynna lottótölurnar í sjónvarpinu og kann stöðu sinni í lífinu heldur illa. Atburðirnir sem eiga sér stað breyta lífi þeirra á þann hátt að hann verður alræmdur á Íslandi en hún verður alþjóðleg stjarna í gegnum internetið,“ útskýrir Halldór og tekur fram að hann kjósi síður að útlista söguþráðinn frekar til að eyðileggja ekki spennuna fyrir væntanlegum lesendum. Að sama skapi er Halldór tregur til að gefa upp hvernig Vince Vaughn tengist sinni fyrstu bók, en segir leikarann ein- faldlega hafa smellpassað inn í ákveðið hlut- verk sem sagan krafðist. „Það er svo sem ekkert sérstakt við Vince Vaughn,“ segir Halldór. „Hann er frægur leikari en um leið ekkert rosalega frægur leikari og fullt af fólki þekkir kannski andlitið á honum en ekki nafnið. Samt er ýmislegt áhugavert við hann. Til dæmis sá ég á Wikipediu að hann er einn af hávöxnustu leikurunum í Holly- wood, en hann er ekki í neinu sérstöku upp- áhaldi hjá mér. Margir sem heyra titilinn á bókinni hvá og halda jafnvel að Vince Vaughn sé eitthvert íslenskt orð, „vinsvon“ sem þeir hafa ekki heyrt.“ Óvenjulegur íþróttagarpur Halldór Armand er 27 ára gamall Reykvík- ingur sem útskrifaðist sem lögfræðingur frá Háskóla Íslands á síðasta ári en býr nú mestmegnis í London ásamt kærustunni sinni, leikkonunni Heru Hilmarsdóttur. Hann segir rithöfundardrauma lengi hafa verið til staðar hjá sér og rekur það að hluta til uppvaxtaráranna. Mamma Halldórs er íslenskukennari og pabbi hans var blaða- maður og fréttastjóri á Morgunblaðinu til margra ára og því mikið um pælingar um tungumálið og stílbrögð á heimilinu. „Mamma og pabbi leiðréttu mig til dæmis harkalega þegar ég talaði vitlaust mál svo ég var fljótur að ná því, en þau voru samt alls ekki að láta mig lesa Glæp og refsingu þegar ég var tíu ára eða neitt slíkt. Ég var heldur ekki barn sem hékk á bókasöfnum, heldur meira einhvers konar íþrótta garpur með nokkuð óvenjuleg áhugamál,“ rifjar Halldór upp og tekur fram að súrrealískt leikrit sem hann skrifaði og setti upp ásamt félögum sínum í Hlíðaskóla hafi skipt miklu upp á framhaldið, en atriðið stóð uppi sem sigurvegari í Skrekk, hæfileikakeppni grunnskólanna, þegar Halldór var í 9. bekk. „Það er dálítið lúðalegt að rifja upp ein- hverja sigra frá því maður var fjórtán ára, en svona litlir hlutir skipta oft máli og kenna manni að treysta áhugasviðinu.“ Styrkurinn var móralskt „búst“ Á menntaskólaárunum í MH tók Hall- dór virkan þátt í MORFÍS-ræðukeppninni og var meðal annarrs kosinn ræðu maður Íslands. Auk þess starfaði hann nokkur sumur og með námi sem blaðamaður á Morgunblaðinu og lýsir hvoru tveggja sem mikilvægri reynslu, þótt MORFÍS-keppnin hafi á síðustu árum fengið á sig illt orð og margir tengi hana ósjálfrátt við kjaftaska á Alþingi. Áhugi hans á bókmenntum kviknaði fyrir alvöru þegar hann hóf nám við Háskóla Íslands, en hann segir sjarmann hafa farið ansi fljótt af háskólalífinu þótt hann hugsi með hlýju til námsins. „Námið er gott, en mér leið nánast eins og ég væri að breytast í 37 gráðu heita akademíska rökhyggjuvél og að ég væri lítið annað. Ætli ég hafi ekki lent í smá lífsfjórðungskrísu og ákvað að reyna að kynnast sjálfum mér upp á nýtt, eins hallærislega og það hljómar,“ segir Halldór og bætir við að hann hafi hafið skriftir við Vince Vaughn í skýjunum þegar hann flutti til stórborgarinnar London á síðasta ári. Í maí síðastliðnum hlaut Halldór Nýræktar styrk Miðstöðvar íslenskra bók- mennta, sem ætlað er að að hvetja til útgáfu á nýjum íslenskum skáldskap, og lýsir hann styrknum sem miklu mórölsku „bústi“. „Ég hef verið rosalega heppinn því í upphafi var útgáfan á þessari bók mjög fjarlægt markmið sem ég hélt að tæki mörg ár að ná. Þegar ég sendi handrit til Forlagsins í ágúst bjóst ég í besta falli við að fá smá hrós og loforð um að skoða málið í vor, en tveim- ur vikum síðar fékk ég svo þau skilaboð að bókin myndi koma út í október. það var mjög skemmtilegt en líka skrítið. Strax eftir sím- talið var ég í skýjunum í svona korter en síðan þá hef ég verið með fjörfisk í auganu í sex vikur. Ég er dálítið stressaður, en ég veit ekki almennilega hvers vegna því ég held að ég hræðist viðtökurnar við bókinni ekki sér- staklega. Það er frekar sú staðreynd að ég er nýr höfundur og verð að vekja athygli á bókinni, sem mér finnst ekkert sérstaklega þægilegt, og reyna að selja bókina sem ég kann ekki. Maður vill ekki valda þeim sem trúa á mann vonbrigðum, en líklega er bara best að vera bjartsýnn, jákvæður og æðru- laus. Það er ekki hægt að stjórna öllum hlut- um í kringum sig,“ segir Halldór. Kynnir sig ekki sem rithöfund Hann segist kunna því vel að líta á sig sem amatör í bransanum enn um sinn. „Mér dettur ekki í hug að kynna mig sem rit- höfund strax þótt ég hafi sent frá mér eina bók. Ég held að það sé fínt viðhorf, en ég veit nokkurn veginn hvað ég vil gera næst og er kominn með hugmynd að næstu bók. Ég mun örugglega halda áfram að skrifa, nema eitt- hvað mikið gangi á. Ef það verður sett á fót undirskriftasöfnun sem miðar að því að fá þennan Halldór Armand til að hætta að skrifa mun ég líklega taka mark á henni,“ segir Halldór að lokum og hlær. Spratt upp úr lífsfj órðungskrísu Halldór Armand Ásgeirsson sendir frá sér sína fyrstu bók, Vince Vaughn í skýjunum, næsta þriðjudag. Þegar hann settist við skrift ir taldi hann útgáfu fj arlægt markmið sem gæti tekið mörg ár að ná, en hann er nú þegar kominn með hugmynd að næstu bók. FYRSTA BÓKIN Halldór Armand Ásgeirsson hóf skriftir á sinni fyrstu bók, Vince Vaughn í skýjunum, þegar hann flutti til London á síðasta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Ég bjó náttúrulega úti í Grikklandi þegar ég var tólf ára pæja og kynntist þá grískri tónlist,“ segir Þórunn Lárusdóttir leik- og söng- kona, um ástæðu þess að hún ætlar að syngja grísk þjóðlög á Café Haiti annað kvöld. „Þetta er alveg dásamleg tónlist og ég er í nostalgíukasti í hvert sinn sem ég heyri hana.“ Þórunn mun þó ekki einvörðungu halda sig við grísku tónlistina á tón- leikunum. „Það verða fleiri heimshorn þarna. Lög á spænsku, þýsku og frönsku að ógleymdri íslenskunni. Þannig að við ætlum að vera dálítið alþjóðleg og þetta verður örugglega rosalega gaman.“ Með Þórunni leika Ásgeir Ásgeirsson á bouzouki, Haukur Gröndal á klarínett, Þorgrímur Jónsson á bassa, Erik Qvick á slagverk og Kristófer Rodriguez Svönuson á slagverk. Tónleikarnir fara fram á Café Haítí og hefjast klukkan 21.30. - fsb Er í nostalgíukasti Þórunn Lárusdóttir kemur fram á tónleikum á Café Haiti annað kvöld og syngur meðal annars grísk þjóðlög, en hún bjó í Grikklandi sem barn. DÁSAMLEG TÓNLIST Þórunn kemur víða við á tónleikunum en grísku þjóðlögin verða í öndvegi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Einsöngstónleikar í Fella- og Hólakirkju mezzósópran Julian M.Hewlett píanó og orgel Símon H. Ívarsson gítar Kristín R. Sigurðardóttir Sópran Victoria Tarevskaia sellóLaugardaginn 5 október Klukkan 17:00 Með innilegu þakklæti til læknanna á Mayo Clinic í Rochester fyrir tíu árum. 1500 krónur MENNING
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.