Fréttablaðið - 03.10.2013, Síða 28
3. október 2013 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 28
Hér á eftir fara athuga-
semdir við málflutning
Bolla Héðinssonar hag-
fræðings, sem birtist
í F rét tablaðinu 12 .
september.
1. Vörur. Reykjavíkur-flugvöllur er mið-
punktur hraðsendinga út
á land og því líflína fyrir-
tækja sem þar starfa. Þá
fara blóðsendingar með
hraði í innanlandsflugi.
Svona mætti áfram telja.
2. Farþegar. Af þeim tæplega 325.000
farþegum FÍ síðasta árs voru
58% á eigin vegum, 20% á vegum
einkafyrirtækja og 11% á vegum
opinberra aðila. Þá flugu um
36.000 börn innanlands.
KPMG gerði úttekt á flutningi
flugsins til Keflavíkur. Þar kom
fram að gríðarlegur samdráttur
yrði í farþegafjölda og ákveðnir
áfangastaðir legðust af. Bolli
hlýtur að hafa lesið þá skýrslu.
3. Sagan. Sagan er mörgum mikilvæg og óþarfi að gera
lítið úr henni. Íslendingar eru
flestir stoltir af flug rekstrinum
sem er afrek í jafn litlu og
fámennu landi. Vallarsvæðið allt
er sögufrægt. Sú mynd tapast
verði byggt í mýrinni.
4. Varaf lugvöllur. Komið hefur fram að Icelandair
notar Reykjavíkurvöll sem vara-
flugvöll í 70-80% tilvika; að
veður far er ólíkt í Reykjavík og
Keflavík og að í Vatnsmýri er
eini fjölbrautavöllurinn á land-
inu fyrir utan Keflavíkurvöll.
Vera kann að Bolli sé ósammála
þessu en staðreyndirnar standa
fyrir sínu.
5. Þjónusta. Í frumvarpi á Alþingi 2011 kom fram að
tæplega 1.000 flugtengd störf
væru í Vatnsmýri. Þau munu
að stórum hluta hverfa með
samdrætti sem KPMG nefnir í
skýrslu sinni.
6. Kennsla. Þungamiðja flug-kennslu í Reykjavík rétt
eins og þungamiðja háskóla-
náms. Nemendur frá öðrum
völlum koma oft fljúgandi til
Reykjavíkur í nætur- og
blindflugskennslu. Nem-
arnir treysta á Reykja-
víkurvöll vegna reglna
um upplýsta flugvelli og
gætu ekki lokið flugprófi
ef hann yrði lagður niður.
7. Hag ræn áhr i f . Flugið er hjartað í
viðskiptum, samgöngum
og verðmætasköpun
fyrir tækja um land allt.
Hví sér hagfræðingur-
inn það ekki? Eitt af því
mikilvægasta í hagvexti
þjóða eru traustir inn-
viðir og fjárfesting í þeim. Flug-
ið er okkar burðarás.
8. Ferðamenn. Oft eru flug-vélar innanlands eingöngu
skipaðar ferðamönnum. Sívax-
andi straumur út á land yfir
vetrar mánuðina fer með flugi.
Færi flugið til Keflavíkur missa
ferðamenn þann kost að hoppa
til Ísafjarðar, Akureyrar, Egils-
staða, o.fl. staða nánast án fyrir-
vara. Er það til bóta fyrir ferða-
þjónustu í landinu?
9. Landhelgisgæslan. Flug-tími lengist um 7-10 mín-
útur fyrir hvert útkall til allra
átta nema vesturs. Á skýlinu
sem Gæslunni er ætlað í Kefla-
vík eru gríðarstórar dyr sem
ekki má opna í miklum vindi.
Veit Bolli af því?
Þyrluflugstjórar hafa ítrekað
skýrt út að þyrlur fljúga lægra,
hægar, þola minni ísingu, eru
ekki með jafnþrýstibúnað og
komast ekki yfir hálendið í
blindflugi. Þarf að endurtaka
það?
10. Höfuðborg. Stórborgir eru oftar en ekki með
flugvöll nálægt miðju. Má þar
nefna London City-flugvöllinn.
Hins vegar eru oft risavaxnir
millilandavellir í meiri fjarlægð
sem skýrist af því að þetta eru
gamlar borgir sem byggðust upp
þegar lestir voru aðalsamgöngu-
tækið og flugið ekki til. Allar
hafa þær stórar lestarstöðvar í
miðborgum sínum og má segja
að Vatnsmýrarvöllur sé okkar
lestarstöð.
11. Umhverfi. Flugið dregur úr akstri bíla. Fullsetinn
Fokker leysir 30 bíla af þjóð-
vegunum. Vatnsmýrin er auk
þess grænt svæði. Hálfgert
andrými í þéttbýlinu. Sérfræð-
ingar í mýrlendi hafa bent á að
rennsli til tjarnarinnar sé um
Vatnsmýri og að tjörnin þorni
upp ef byggt yrði í Vatnsmýri.
Þá eru ónefndar fuglategundir
og dýralíf. Að byggja yfir það
allt saman mun seint teljast snjöll
umhverfisvernd.
12. Sjúkraflug. Framsetning vallarsinna á málefnum
sjúkraflugs á allan rétt á sér
og er fjöldi lækna mikill sem
stigið hefur fram og staðfest þá
umfjöllun. Hér má gefa Stefáni
Þórarinssyni lækni orðið: „áhætt-
an vex með margfeldishætti því
lengur sem dregst að koma við
varanlegri hjálp. Síðustu mínútur
flutningsins geta því vegið mikið
meira en þær fyrstu.“ Mótmælir
Bolli Stefáni í þessum efnum?
Nýjasta könnun MMR sýnir
að 81,3% þjóðarinnar vill völl-
inn áfram í Vatnsmýrinni. Þá
hafa 67.000 manns skrifað undir
áskorun þess efnis á vef okkar
lending.is.
Bolli talar um að flugið sé fyrir
„fáa áhrifamikla einstaklinga“. Í
ljósi þess að 410 þúsund manns úr
öllum þrepum þjóðlífsins fara um
völlinn á ári, en fyrirhuguð lúxus-
byggð mun hýsa 15.000 manns,
má ljóst vera að Bolla yfirsást
samhengið. Byggðin er fyrir fáa
áhrifamikla en flugið fyrir alla.
Þar liggur hundurinn grafinn.
Lengri útgáfu greinarinnar
má sjá á Vísi.
Rökin um fl ugvöllinn í Vatns-
mýri standast alla skoðun!
SKIPULAG
Vignir Örn
Guðnason
fl ugstjóri hjá Flug-
félagi Íslands og
stjórnarmaður í
Hjartað í Vatnsmýri
➜ Þyrlufl ugstjórar hafa
ítrekað skýrt út að þyrlur
fl júga lægra, hægar, þola
minni ísingu, eru ekki með
jafnþrýstibúnað og komast
ekki yfi r hálendið í blind-
fl ugi. Þarf að endurtaka
það?
Eru sjúklingar á spítölum pólítískt vopn?
„Legugjaldið“ sem ríkisstjórnin ætlar að taka af sjúklingum á spítölum er
ömurleg hneisa. Upphæðin sem þarna á að ná inn nemur samtals einhverjum
örlitlum hluta af arðinum sem sægreifarnir raka saman af sameiginlegri
auðlind þjóðarinnar, ekki síst eftir að ríkisstjórnin hefur lækkað auðlinda-
gjaldið á þá. Þeir myndu ekki einu sinni taka eftir því, skyldi maður ætla, en
sjúklinga munar um þetta. Nema hvað það virðist nú komið rækilega í ljós að
sægreifarnir taka svo sannarlega eftir hverri einustu krónu sem á að taka af
þeim í sameiginlega sjóði landsmanna. Og væla eins og stungnir grísir, þótt
þetta séu upphæðir sem þá munar ekkert um. En nú sé ég að margir spá því
að þetta legugjald muni aldrei koma til framkvæmda.
Því hafi bara verið ýtt úr vör til að draga athyglina frá öðru, eða kannski
öllu heldur til að ríkisstjórnin muni síðan fá lof og prís fyrir góðvild sína með
því að draga þetta fljótlega til baka. Litlu skárra er þótt þetta reynist rétt.
Ríkisstjórn sem notar sjúklinga á spítölunum sem pólitískt vopn– eða „decoy“
– hún er lágkúrulegri en leyfilegt er.
http://blog.pressan.is
Illugi Jökulsson
AF NETINU