Fréttablaðið - 03.10.2013, Side 38

Fréttablaðið - 03.10.2013, Side 38
KYNNING − AUGLÝSINGSpeglar og innrömmun FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 20134 AÐ HENGJA UPP MYND Á netinu er að finna ýmsar síður sem veita leiðbeiningar um hvernig best sé að hengja upp myndir. Ein þeirra er www.diynetwork.com þar sem finna má nokkur góð ráð. ■ Ef rýmið er stórt, bæði stór veggur og mikið gólfpláss, er gott að raða myndunum fyrst á gólfið og mæla þannig hve langt á að vera á milli hverrar og einnar. Síðan er hægt að taka eina mynd í einu og festa á vegginn. ■ Önnur leið er að búa til sniðmát af myndunum. Það er gert með því að teikna útlínur myndarinnar á bökunarpappír eða annað álíka, klippa síðan út og merkja. Einnig er gott að merkja myndina með örvum til að sýna hvort hún snúi lóðrétt eða lárétt. Síðan eru sniðmátin fest á vegginn með kennaratyggjói. Þannig er hægt að raða og endurraða án mikillar fyrirhafnar. Síðan er naglarnir negldir í vegginn meðan pappírinn hangir þar enn og síðan má kippa honum burt þegar myndirnar eru hengdar á vegginn. ■ Ef hengja á upp fjórar litlar en jafn stórar myndir getur verið skemmtilegt að raða þeim saman í einn stóran ferning, þannig fæst sú skynvilla að myndin sé stærri. ■ Myndirnar þurfa ekki að vera í jafnri tölu og ekki allar jafn stórar. Til dæmis má hengja eina stærri mynd í miðjuna og tvær myndir hvorum megin við hana. Í stað stóru myndarinnar má líka nota spegil. ■ Myndir á alltaf að hengja í augnhæð. ■ Ef mynd er hengd yfir sófa þarf að passa að hafa ekki of mikið pláss milli sófans og myndarinnar. Mælt er með 10 til 15 cm. ■ Ekki setja eina litla mynd á stóran vegg. Ef þú átt ekki fleiri listaverk eða myndir getur verið gott að hengja spegla með litlu mynd- unum. ■ Ekki setja of stóra mynd á lítinn vegg. ■ Skemmtilegt getur verið að negla hillu á vegg og raða myndum á hana. Einnig mætti notast við diskarekka þar sem myndum er raðað í stað diska. ■ Áður en hafist er handa við að hengja upp myndir er gott að líta við í byggingavöruverslun og fá það sem til þarf. Ekki er sama hvaða naglar eða krókar eru notaðir. Gerð þeirra fer bæði eftir gerð veggjarins og þyngd myndarinnar. Gott getur verið að skipuleggja sig áður en neglt er í vegg. Möguleikarnir eru takmarkalausir. UMHVERFISVÆN ÞRIF Heimalagaður hreinsivökvi á gler á spegla: 3 bollar vatn ½ bolli matarsódi 1 bolli borðedik Hellið öllu saman í spreybrúsa og hristið rólega svo allt blandist saman. Spreyið á gler og spegla og pússið með mjúkum klút. Einnig er hægt að nota krumpað dagblað til að pússa spegla og gler. Tvennum sögum fer af því hvort það sé beinlínis prentsvertan sem skilar glerinu svo skínandi hreinu eða dagblaða- pappírinn sjálfur. Hvort heldur sem er, eru dagblöð afar notadrjúgar hreinsigræjur á gler, spegla og flísar og þar að auki eru þau nánast alltaf til á heimilinu. Uppskriftin er fengin af www.ehow.com. Shameless Hunted Amazing Race Graceland X Factor Krakkastöðin fylgir með áskrift að Stöð 3 + +Stöð 2.990 kr. á mánuði. FYLGIR áskrift að Stöð 2 7:00 | 11:00 | 15:00 8:00 | 12:00 | 16:00 9:00 | 13:00 | 17:00 krakkabíó kl 19:00Dagskrá 10:00 | 14:00 | 18:00 7:25 | 11:25 | 15:25 8:25 | 12:25 | 16:25 9:25 | 13:25 | 17:25 10:25 | 14:25 | 18:25 7:50 | 11:50 | 15:50 Lesnar sögur og skjámynd kl. 20:30 - 22:00 8:50 | 12:50 | 16:50 9:50 | 13:50 | 17:50 10:50 | 14:50 | 18:50

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.