Fréttablaðið - 03.10.2013, Qupperneq 54
3. október 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING BÍÓ | 42
★★★★ ★
Við erum bestar!
„Frábær „feel good“ mynd frá hinum
hæfileikaríka Moodysson. Þótt sögu-
þráðurinn sé hversdagslegur leiðist
áhorfandanum ekki í eina mínútu.“
KVIKMYNDARÝNI
Reykjavík
International
Film
Festival 26. sept. - 6. okt. 2013
★★ ★★★
Svona er Sanlitun
„Douglas hefur gert þetta áður og
mun betur.“
★★★ ★★
Mistaken for Strangers
„Myndin gefur ágæta innsýn inn í
lífið á tónleikaferðalögum og tog-
streitu á milli tveggja bræðra.“
Spennumyndin Prisoners skartar
Hugh Jackman og Jake Gyllen haal í
helstu hlutverkum. Myndin er í leik-
stjórn Denis Villeneuve og segir frá
brottnámi tveggja telpna og eftir-
málum þess.
Myndin hefst á því að nágranna-
fjölskyldurnar Dover og Birch eyða
saman þakkargjörðarhátíðinni. Sex
ára gamlar dætur hjónanna, Anna
Dover og Joy Birch, fara að matnum
loknum út að leika sér. Þegar full-
orðna fólkið fer að lengja eftir stúlk-
unum áttar það sig á því að þær eru
á bak og burt. Lögreglan er kölluð
til og fer rannsóknarlögreglumaður-
inn Loki fyrir leitinni. Húsbíll finnst
skammt frá og handtekur lögreglan
eiganda bílsins, mann að nafni Alex
Jones. Vegna skorts á sönnunar-
göngum er Jones sleppt úr haldi að
yfirheyrslum loknum. Þetta kemur
Keller Dover, föður Önnu, í mikið
uppnám og hann ákveður að taka
málin í eigin hendur, rænir Jones
og heldur honum föngnum í von um
að fá upplýsingar um líðan og stað-
setningu stúlknanna.
Með aðalhlutverk fara Hugh Jack-
man, Jake Gyllenhaal, Viola Davis,
Maria Bello, Terrence Howard,
Paul Dano og Melissa Leo. Sem áður
segir er myndin í leikstjórn Denis
Villeneuve, en kvikmynd hans frá
árinu 2010, Incendies, var tilnefnd
til Óskarsverðlaunanna sem besta
erlenda myndin það árið.
Prisoners hefur hlotið mikið lof og
fékk 8,3 í einkunn á Imdb og 80 pró-
sent í einkunn á Rottentomatoes. - sm
milljarða króna
kostaði að
framleiða myndina.
milljarðar króna
er það sem
myndin hefur halað inn
í Bandaríkjunum frá
29. september.
5,5
4,6
3.290
kvikmyndahús sýndu
myndina á frumsýningar-
helgi hennar.
Hefnd föðurins
Hugh Jackman og Jake Gyllenhaal fara með helstu hlutverk í spennumyndinni
Prisoners sem frumsýnd verður í kvikmyndahúsum annað kvöld.
MATRÖÐ HVERS FORELDRIS Jake Gyllenhaal fer með hlutverk rannsóknarlögreglumannsins Loka í kvikmyndinni Prisoners.
Terrence Howard og Viola Davis fara með hlutverk foreldra barns sem hefur verið rænt.
BÍÓFRÉTTIR „Ég verð með námskeið fyrir alla grunn-
skóla landsins, fyrir börn og unglinga en
þetta er í fyrsta skipti sem fræðsla sam-
kvæmt aðalnámskrá grunnskólanna fer
fram í kvikmyndahúsi,“ segir Oddný Sen,
kvikmyndafræðingur og verkefnastjóri í
Bíói Paradís.
Tilgangur sýninganna er alhliða kvik-
myndafræðsla og kvikmyndalestur. Börn
og unglingar fá möguleika á að kynnast
kvikmyndum sem hafa alþjóðlega gæða-
stimpla, eru klassískar perlur frá öllum
skeiðum kvikmyndasögunnar, hafa skap-
að sér sess innan kvikmyndasögunnar og
eru frá ýmsum þjóðlöndum.
„Ég fékk þessa hugmynd árið 2009,
eftir hrunið,“ bætir Oddný við. Fræðslan
er meðal annars styrkt af Reykjavíkur-
borg.
Á undan hverri sýningu er stuttur
fyrirlestur til að auðvelda áhorfendum
að greina kvikmyndina ásamt því að
útskýra þá fræðilegu hugsun sem er á
bak við hverja mynd. Dæmi um myndir
sem verða sýndar eru Fílamaðurinn eftir
David Lynch, en hann er afmyndaður,
settur í sirkus og það dæmdu hann allir
fyrirfram. Horft er á þá mynd með til-
liti til eineltis og lífsleikni. Einnig verður
horft á heimildarmynd um femínísku
pönkhljómsveitina Pussy Riot með tilliti
til mannréttinda, ritskoðunar og félags-
legrar samstöðu.
Erfitt verður að koma öllum nemum
grunnskólana að. „Fyrstur kemur fyrstur
fær, það komast auðvitað ekki allir að en
ég vonast til að geta boðið upp á ferðir frá
landsbyggðinni.“ bætir Oddný við.
Á næstunni mun einnig hefjast fræðsla
fyrir framhaldsskóla og leikskóla. - glp
KENNSLA
SAMKVÆMT
NÁMSKRÁ Í
BÍÓ PARADÍS
Í haust og í fyrsta skiptið, mun
kennsla samkvæmt aðalnám-
skrá grunnskólanna fara fram í
kvikmyndahúsi.
Túrbó teiknimynd
Teiknimyndin Túrbó segir frá snigl-
inum Túrbó sem dreymir um að
komast örlítið hraðar yfir en hann
gerir. Fyrir röð tilviljana öðlast hann
óvænt kraft til að fara hraðar yfir en
nokkurn snigil hefur áður farið.
Myndin er úr smiðju Dreamworks
og meðal þeirra er ljá persónum
myndarinnar raddir sínar eru Ryan
Reynolds, Paul Giamatti, Michael
Pena, rapparinn Snoop Dogg, Maya
Rudolph, Michelle Rodriguez og
Samuel L. Jackson.
About Time rómantísk
gamanmynd
Myndin segir frá Tim Lake sem dag
einn fær að heyra það frá föður
sínum að hann búi yfir þeim ein-
stöku hæfileikum að geta ferðast
aftur í tímann. Tim ákveður að nýta
hæfileikana í þeim tilgangi að finna
hina einu sönnu ást.
About Time er í leikstjórn Richard
Curtis, sem er hvað best þekktur fyrir
myndirnar Four Wedd-
ings and a Funeral,
Notting Hill, Love
Actually og
Bridget
Jones‘s
Diary. Með
aðalhlutverk
myndar-
innar fara
Domhnall
Gleeson,
sem er
sonur
leikarans
Brendan
Gleeson,
Rachel
McAdams
og Bill
Nighy.
Tímafl akkari og
hrað skreiður snigill
FRUMSÝNINGAR
Tvær kvikmyndir
frumsýndar annað kvöld
KENNSLA Í
KVIKMYNDA-
HÚSI Oddný
Sen mun
fræða börn
og unglinga
í Bíói Paradís.
★★★ ★★
Coldwater
„Þokkaleg byrjun hjá leikstjóranum
Vincent Grashaw. Sagan er spennu-
þrungin en ekki ný af nálinni.“
FÆST Í NÆSTA APÓTEKI
HÁGÆÐA HÚÐVÖRUR FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA Á FRÁBÆRU VERÐI.
ENGIN ILM- EÐA LITAREFNI.
HLÚÐU AÐ VIÐKVÆMRI HÚÐ Í FROSTINU