Fréttablaðið - 03.10.2013, Síða 56
3. október 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING |
Einkaþjálfari
30 þúsund kr.
„Ég fór í einkaþjálfun
hjá Freyju Sigurðardóttur og það
voru 30 þúsund krónur á mánuði.
Það eru samt ekki margir sem eru í
einkaþjálfun. Margir eru í fjarþjálfun
og þá kostar það kannski 12 til 15
þúsund krónur.“
Fæðubótarefni
20 þúsund kr.
„Ef fólk er alveg nýtt í þessu er
fæðubótarkostnaður í byrjun
svolítið mikill. Einn próteindunkur
kostar svona 8-10 þúsund en það
er reyndar misjafnt eftir tegundum.
Svo er misjafnt hvað fólk er að taka
aukalega eins og vítamín, glútamín,
magnesíum, kreatín og fleira.“
Mánaðarleg matarkaup
25-35 þúsund kr.
„Maður þarf að borða
kjúkling, eggjahvítur, grænmeti,
hafragraut og fleira. Ég bjó til eigið
hrökkbrauð og setti kotasælu ofan á.
Mánaðarinnkaupin voru 25-35 þús-
und fyrir utan fæðubótarefni. Á móti
kemur að maður er ekki að kaupa
sér skyndibita og fær sér ekki Mars á
kassanum í Bónus þegar maður fer
að versla. Svo er ekkert djamm um
helgar. Það er svo margt sem kemur á
móti varðandi kostnað.“
Leigja bíkiní
15 þúsund kr.
„Til að geta keppt í módel-
fitness þurfti ég bíkiní.
Annaðhvort láta menn
sauma á sig eða menn leigja notuð
bíkiní og í mínu tilfelli leigði ég á 15
þúsund krónur.“
Brúnkukrem
4 þúsund kr.
„Ég keypti mér dollu á 4
þúsund krónur, brúnkukrem
fyrir mótið. Annars er örugglega
breytilegt hvað þetta kostar.“
Keppnisgjald
5 þúsund kr.
„Þetta kostaði í mesta lagi 5
þúsund krónur.“
Förðun 4 þúsund kr.
„Förðun fyrir mót kostar í
kringum 4 þúsund en vinkona
mín farðaði mig fyrir mótið,
þannig að ég fékk góðan „díl“.“
? Takk fyrir pistlana í Frétta-blaðinu sem ég les alltaf. Mín
spurning til þín er þessi: Ef báðir
aðilar eru sáttir með fyrirkomu-
lagið – er þá eðlilegt og í lagi að
kynlífsiðkun leggst af að mestu
eftir langt samband? Er eðlilegt
að stunda kynlíf aðeins nokkrum
sinnum á ári? Ég spyr því þú minn-
ist gjarnan á það að samband batni
við kynlíf, en mér finnst mitt vera
innilegt og gott án þess.
SVAR Sæl og takk fyrir hólið. Ein-
kenni sambanda er oftar en ekki
nánd og ein leið til að auka nánd er
með kynlífi. Lykilinn er hins vegar
einstaklingarnar í sambandinu og
að þeir séu sáttir við sitt samband.
Oftar en ekki glíma sambönd við
ósamræmi í kynlöngun og kynlífs-
tíðni og það getur valdið vand-
ræðum. Út frá þeim forsendum er
mikilvægt að fólk finni sinn gullna
meðalveg til að báðir séu sáttir.
Skilgreiningin á „eðlilegu“ er ein-
staklingsbundin og því er ekki til
neitt meðaltal sem hentar öllum,
ekki frekar en að til sé hin full-
komna uppskrift að kynlífi. Ég sé
ekkert að því að samband sé kyn-
lífslaust, svo framarlega sem báðir
séu sáttir. Rannsóknir hafa sýnt að
kynlífstíðni minnki oft í langtíma-
samböndum og geta ástæður verið
margvíslegar og háðar utanaðkom-
andi aðstæðum en einnig persónu-
legum. Oftar en ekki fara sambönd
í gegnum sveiflur þar sem lægð
getur einkennt sambandið um tíma
sem svo jafnar sig ef fólk vinnur
sig upp úr henni. Um leið og mis-
ræmi verður á löngun og vænting-
um þá geta skapast vandræði sem
þarf að leysa svo sambandið verði
farsælt. Kynlíf er mikilvægur hluti
margra sambanda, ómissandi hjá
sumum en ofmetin hjá öðrum. Svo
lengi sem þið eruð bæði sátt þá
óska ég ykkur velfarnaðar, hvort
sem þið kúrið bara eða kelið!
KYNLÍF TAKTU ÞÁTT!
Sendu Siggu Dögg póst og
segðu henni frá vandamáli
úr bólinu. Lausnin gæti
birst í Fréttablaðinu.
kynlif@frettabladid.is
Ekkert að kynlífslausum samböndum
NÁND Kynlíf er einstaklingsbundið.
Sumir vilja mikið, aðrir lítið og enn
aðrir ekki neitt. NORDICPHOTOS/GETTY
Hinn 22 ára Venný Hönnudóttir
ákvað að prófa módelfitness í
fyrsta sinn í fyrra og hefur hún
keppt á einu móti.
„Ég var að komast upp úr veik-
indum og langaði að sjá hvað ég
gæti. Mig langaði að hafa mark-
mið,“ segir Venný, spurð hvers
vegna hún ákvað að hella sér út í
módelfitness.
Í megindráttum eru áherslur
dómara í þessari nýju keppnis-
grein þær að mun minni áhersla
er lögð á vöðvamassa og skurði
og frekar er horft til fegurðar.
Byrjað var að keppa í módel-
fitness hérlendis árið 2006 og
skemmst er að minnast þess að
Margrét Edda Gnarr varð heims-
meistari í módelfitness í Úkraínu
í síðasta mánuði.
Venný mælir með því að fólk
prófi fitness ef það fer í það á
réttum forsendum. „Þetta er
rosalega stíft prógram. Maður
er fyrst og fremst að keppa við
sjálfan sig. Þetta er mikið álag
á líkamann og mér finnst mikil-
vægt að vera með þjálfara sem
passar upp á að fólk fari ekki í
gígantískar öfgar.“
Kostnaðurinn við að gerast fit-
ness-keppandi er misjafn og í til-
felli Vennýjar var hann umtals-
verður. „Byrjunarkostnaðurinn
er dýr en til hliðsjónar dettur
ýmislegt út á móti.“
Eitthvað er um að keppendur
sæki um auglýsingastyrki í
tengslum við fitnesskeppnir en
Venný fór ekki þá leið: „Þetta var
fyrsta mótið mitt og ég ákvað að
gera þetta bara fyrir sjálfa mig.“
freyr@frettabladid.is
Módelfi tness fyrir
hundrað þúsund kall
Það er ekki fyrir hvern sem er að breyta algjörlega um lífsstíl og gerast kepp-
andi í fi tness. Venný Hönnudóttir sagði blaðamanni hvers vegna hún ákvað að
prófa módelfi tness og hver kostnaðurinn er í kringum þessa nýtilkomnu íþrótt.
VENNÝ
OG FITNESS-
KOSTNAÐURINN
Í MÓDELFITNESS Venný Hönnudóttir leigði sér bíkiní áður en hún keppti í fyrsta
sinn í módelfitnessi. MYND/ARNOLD BJÖRNSSON
Árvekniátak Krabbameinsfélags Íslands, Bleika slaufan,
er hafið. Meðfram sölu á Bleiku slaufunni um land allt verður
Bleikt uppboð á vefsíðunni bleikaslaufan.is.
Hægt er að bjóða í alls kyns skemmtilega og einstaka hluti
næstu daga fram til 11. október.
Í dag getur þú eða fyrirtækið þitt boðið í uppákomu
með Friðriki Dór og Dr. Gunna. Tilvalið til að gleðja
afmælisbörn á öllum aldri! Sendu inn boð og hjálpaðu
okkur um leið að breiða út boðskapinn.
BJÓDDU Í
GLAÐASTA
HUND Í
HEIMI
#BLEIKASLAUFAN
KAUPTU BLEIKU
SLAUFUNA OG
TAKTU ÞÁTT Í
BLEIKA UPPBOÐINU
BLEIKASLAUFAN.IS
Fylgstu með Bleika uppboðinu.