Fréttablaðið - 22.10.2013, Page 4
22. október 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 4
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, Sigurður Helgi Grímsson sigurdurhg@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
Elísabet
Margeirsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
Fimmtudagur
10-15 m/s, hvassast við ströndina.
NORÐAUSTANÁTT Víða vetrarfærð á fjallvegum norðan til á landinu í dag. Stíf
norðaustanátt verður ríkjandi á norðvesturhluta landsins og með ströndum með
snjókomu eða slyddu.
1°
13
m/s
4°
11
m/s
5°
9
m/s
7°
8
m/s
Á morgun
10-18 m/s NV og V til, annars hægari.
Gildistími korta er um hádegi
5°
1°
5°
1°
0°
Alicante
Basel
Berlín
27°
21°
19°
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
16°
20°
22°
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
14°
14°
26°
London
Mallorca
New York
17°
27°
18°
Orlando
Ósló
París
30°
11°
22°
San Francisco
Stokkhólmur
19°
11°
5°
4
m/s
6°
5
m/s
4°
4
m/s
4°
8
m/s
3°
7
m/s
3°
9
m/s
-1°
8
m/s
2°
-1°
3°
3°
2°
www.fronkex.is kemur við sögu á hverjum degi
NÁTTÚRA Það er tæknilega mögu-
legt að loka Kolgrafafirði til að
koma í veg fyrir síldargöngur inn
í fjörðinn, en slík framkvæmd er
hins vegar það mikið inngrip sem
slík að hún þyrfti að öllum líkindum
að fara í umhverfismat.
Eins og kunnugt er drápust um
50 þúsund tonn af síld í Kolgrafa-
firði í fyrravetur. Bæjarráð Grund-
arfjarðar skoraði á dögunum á Sig-
urð Inga Jóhannsson, umhverfis- og
auðlindaráðherra, að leyfa lokun
Kolgrafafjarðar án tafar vegna
hættu á frekari síldardauða í firð-
inum. Ef þetta er tæknilega mögu-
legt vill bæjarráð að kannað verði
hversu langan tíma Vegagerðin
þarf til framkvæmda sem nægja
til að halda síld utan brúar.
Jón Helgason, framkvæmdastjóri
mannvirkjasviðs hjá Vegagerðinni,
segir að þegar séu í gangi yfirgrips-
miklar mælingar í firðinum til að
kanna hvort vegfyllingin hafi áhrif
og hvort einhver lausn geti verið að
byggja aðra brú, til dæmis. Hins
vegar taki tíma að lesa úr gögnun-
um og það hilli ekki undir slíkt.
Aðspurður hvort mögulegt sé
að loka firðinum, eins og heima-
menn vilja, segir Jón að slíkt sé
mjög erfitt. „Við gætum hugsan-
lega lokað fyrst með massafyll-
ingu eða grjóti. Síðan gætu menn
velt fyrir sér framhaldinu. Það er
hins vegar ljóst að ef á að loka firð-
inum þá þarf að skoða það frá sjón-
armiði umhverfisins. Miðað við þau
áhrif sem þetta hefði þyrfti fram-
kvæmdin í umhverfismat, það yrði
vart umflúið nema til kæmi einhver
neyðarréttur sem yrði virkjaður.“
Í september í fyrra óskaði ráð-
herra eftir því að Umhverfisstofnun
gerði viðbragðsáætlun vegna hugs-
anlegs síldardauða í Kolgrafafirði.
Samkvæmt upplýsingum frá stofn-
uninni er stefnt að því að senda til-
lögur að slíkri áætlun til ráðuneyt-
isins bráðlega, jafnvel í dag.
Helgi Jensson, ráðgjafi hjá
Umhverfisstofnun, vill lítið sýna
á spilin áður en áætlunin verður
kynnt ráðherra. „Það yrði væntan-
lega að keyra síldina eitthvert í
burtu og áætlunin gengur út á
hvernig hægt er að standa að slíku
máli,“ segir Helgi inntur eftir því
hvort hægt sé að urða meira af síld í
Kolgrafafirði. „Það eru engar töfra-
lausnir til.“ svavar@frettabladid.is
Örþrifaráð að loka
Kolgrafafirði fyrir síld
Ef síld drepst að nýju í stórum stíl í Kolgrafafirði þyrfti að flytja hana á brott.
Viðamiklar og dýrar mælingar standa yfir í firðinum á áhrifum þverunar. Mögu-
legt er að loka firðinum fyrir fiski en slík framkvæmd þyrfti í umhverfismat.
Viðbragðsáætlun vegna hugsanlegs síldardauða í firðinum verður kynnt
umhverfisráðherra allra næstu daga. Síld veiðist nú rétt utan brúar í firð-
inum og háhyrningar sjást innan brúar, sem sterklega bendir til þess að
síldin sé tekin að ganga undir hana.
Síldin er mætt í Kolgrafafjörðinn
KOLGRAFAFJÖRÐUR Þúsundir tonna af síld voru grafnar í fjöruna. Slíkt er vart
framkvæmanlegt í vetur ef síld drepst þar í stórum stíl að nýju. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
BJÖRGUN Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar var kall-
að út í fyrrinótt vegna vélarvana báts út af Önundarfirði. Um bilun
í stýrisbúnaði mun hafa verið að ræða. Báturinn, Njarðvík GK, er
um 200 tonn og voru tíu manns um borð. Björgunarskipið Gunnar
Friðriksson frá Ísafirði fór á staðinn og tók bátinn í tog. Ferðin gekk
ágætlega og var komið til hafnar á Flateyri seinna um nóttina. - fbj
Vélarvana báti bjargað út af Önundarfirði:
Dreginn til hafnar á Flateyri
Á VETTVANGI Njarðvík GK í mynni Önundarfjarðar. Björgunarskip Landsbjargar
hljóp undir bagga í gær þegar stýrisbúnaður bilaði. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓBERT REYNISSON
55,5 prósent Íslendinga versla á netinu, ef marka má
tölur frá síðasta ári.
Árið 2004 var sama hlutfall 37
prósent.
Konur á aldrinum 25 til 54 ára eru
duglegastar allra við netverslunina,
en eldri konur síst.
Heimild: Hagstofa Íslands
SVEITARSTJÓRNARMÁL Rósa Guð-
bjartsdóttir, bæjarfulltrúi í Hafnar-
firði, býður sig fram í fyrsta sæti
á lista sjálfstæðismanna í bænum
vegna sveitarstjórnarkosninganna
næsta vor. Valdimar Svavarsson
sem skipaði fyrsta sætið í síðustu
kosningum hefur ekki ákveðið hvort
hann gefi kost á sér í oddvitasæti.
„Ég er í krefjandi starfi sem for-
stöðumaður fjármálafyrirtækisins
Virðingar, ég er bæjarfulltrúi og
á fjölskyldu. Þetta þrennt rekst á.
Maður þarf að vega þetta og meta.
Ég verð hins vegar á fullu í bæjar-
stjórninni þangað til annað kemur í
ljós,“ segir Valdimar.
Rósa segist búin að sitja í bæjar-
stjórn í sjö ár. Hún hafi boðið sig
fram í fyrsta sætið fyrir fjórum
árum og þá hafi munað tveimur
atkvæðum á henni og Valdimari.
„Ég er komin með dýrmæta reynslu
og hef mikinn áhuga á að starfa
fyrir bæjarfélagið mitt. Mörg stór
mál bíða úrlausnar. Ég hef verið
oddviti sjálfstæðismanna Í Hafn-
arfirði frá því á vormánuðum 2012
en þá hætti Valdimar í ráðum og
nefndum á vegum bæjarins,“ segir
hún. - jme
Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði ákveða fljótlega hvernig raðað verður á lista:
Rósa býður sig fram í fyrsta sæti
VALDIMAR
SVAVARSSON
RÓSA GUÐ-
BJARTSDÓTTIR
DANMÖRK Traust Dana á Lars
Løkke Rasmussen, fyrrverandi
forsætisráðherra, hefur minnkað í
kjölfar frétta af lúxusferðum hans
á vegum umhverfisverndarsam-
takanna GGGI.
Løkke hefur flogið á fyrsta far-
rými í flestum af 15 ferðunum
fyrir samtökin þar sem hann hafði
meðal annars rúm til afnota. Ferð-
irnar kostuðu sem svarar 17 millj-
ónum íslenskra króna, en samtökin
hafa fengið jafngildi tveggja millj-
arða frá danska ríkinu. - ibs
Vinsældirnar dvína ytra:
Lúxusferðir
rýra traustið
ATVINNA Pólskættaður verkstjóri
hjá fiskvinnslufyrirtækinu Jakobi
Valgeiri ehf., í Bolungarvík er
sagður taka 1.000 evrur af hverj-
um þeim Pólverja sem fær vinnu
hjá fyrirtækinu.
Bæjarins besta segir frá bréfi
sem blaðinu barst frá Pólverjum
búsettum í Bolungarvík, þar sem
þetta er fullyrt. Birt eru nöfn
yfir tuttugu Pólverja, sem sagt er
að þetta eigi við um. Bréfið mun
einnig hafa verið sent lögreglunni
á Ísafirði.
„Ég veit ekki til þess að það
sé einhver fótur fyrir þessu. [...]
Þeir vilja ekki kannast við að hafa
borgað honum,“ segir Guðbjartur
Flosason, framleiðslustjóri Jakobs
Valgeirs ehf., í viðtali við BB. - shá
Pólverjar kvarta til lögreglu:
Sagður taka fé
fyrir störf í fiski
KÖNNUN Meirihluti ungs fólks
undir þrítugu hefur hugsað um að
flytja til útlanda á síðustu mán-
uðum samkvæmt skoðanakönn-
un MMR. Alls sögðust 56 prósent
fólks í aldurshópnum 18 til 29 ára
hafa íhugað að flytja frá Íslandi.
Alls hafa fjörutíu prósent lands-
manna á öllum aldri íhugað að
flytja til útlanda og er hlutfallið
svipað og í sambærilegri könnun
frá nóvember 2011. Alls sögðust
49,3 prósent fólks á aldrinum 30
til 39 ára hafa hugsað um að flytja
frá Íslandi og 43 prósent fólks á
aldrinum 40 til 49 ára.
Könnun MMR var gerð dagana
26. september til 1. október. Alls
svöruðu 968 einstaklingar 18 ára
og eldri könnuninni. - bj
Áhugi á að flytja til útlanda:
56% ungs fólks
íhugað að flytja