Fréttablaðið - 22.10.2013, Blaðsíða 28
BÍLAR
FRÉTTABLAÐIÐ
4 22. október 2013 ÞRIÐJUDAGUR
Haldið var upp á Chevrolet-daginn
hjá Bílabúð Benna í Reykjavík og
í Reykjanesbæ, laugardaginn 12.
október. Fyrirtækið bauð Chevrolet-
eigendur sérstaklega velkomna
þennan dag og létu þeir ekki segja
sér það tvisvar. „Viðtökurnar fóru
fram úr okkar björtustu vonum og
dagurinn er örugglega kominn til
að vera,“ segir Jóhannes Egilsson,
þjónustustjóri hjá Bílabúð Benna.
„Hér var líf og ör allan daginn og
hingað ölmenntu heilu ölskyld-
urnar með Chevrolet-bílana sína
og þáðu ókeypis vetrarskoðun,
margs konar sértilboð á bílavörum
og hressandi glaðning í leiðinni.
Við þökkum kærlega fyrir frá-
bærar undirtektir og óskum öllum
Chevrolet-eigendum velfarnaðar í
umferðinni í vetur.“
Velheppnaður
Chevrolet-
dagur
Svo virðist sem fyrirtækinu
Jaguar/Land Rover sé mikið í mun
að sanna fyrir heimsbyggðinni
gæði bíla sinna. Fyrir stuttu var til-
kynnt um 16.000 km akstur Land
Rover Defender-bíls frá London
til Höfðaborgar á tíu dögum þar
sem á gæði hans myndi reyna
mjög. Þeir hjá Land Rover voru
einnig að klára mikla langferð þar
sem Range Rover Hybrid-bíl var
ekið frá verksmiðju Land Rover í
Solihull til Mumbai á Indlandi og
tók sú ferð 53 daga. Voru eknir
16.850 km í ferðinni og farið í
gegnum þrettán lönd.
Þessi leið liggur að stórum
hluta um silkileiðina fornu sem
kínverskt silki var flutt um
löngum til Evrópu. Á leiðinni óku
leiðangursmenn í yfi r 3.300 metra
hæð og hæsti punkturinn var í
5.290 metra hæð. Fimmtán dekk
sprungu á leiðinni. Bílarnir eyddu
ekki nema 6,5 lítrum á hundraðið
að meðaltali og alvarlegar bilanir
voru engar. Þessi eyðslutala er
mjög athyglisverð fyrir stóran bíl.
Kláruðu
silkileiðina
á Range Rover
Hybrid
Ötulir starfsmenn gaumgæfa bílana.
Hópurinn á áfangastað.
Þau undur og stórmerki gerðust í síðustu viku
að Evrópusambandið féll frá þeirri fyrri kröfu
sinni að allir bílaframleiðendur lytu kröfu um
95 g CO2-mengun bíla sinna að meðaltali árið
2020. Sú tala verður endurskoðuð og sett fram
innan fárra vikna. Þýsku bílaframleiðendurnir
Daimler Benz og BMW höfðu í rökstuðningi
sínum bent á að öllu stærri bílar þeirra en
frönsku og ítölsku framleiðendanna myndu eiga
í stórkostlegum vandræðum að hlíta þessari
kröfu og fyrir vikið myndu tapast mörg störf í
fyrirtækjum þeirra.
Samhliða kröfunni um 95 g af CO2 máttu
evrópskir bílar ekki eyða nema órum lítrum
á hundraðið að meðaltali og það hljómaði jafn
illa í eyrum þýskra framleiðenda. Krafa Þjóð-
verjanna er enn fremur sú að þessum lágu
tölum þurfi ekki að hlíta fyrr en árið 2024, eða
órum árum seinna. Þýsku framleiðendurnir
benda á að þeir séu tilbúnir til að hlíta ströngum
kröfum um eyðslu og mengun, en markið hafi
verið sett of hátt, eða öllu heldur of lágt! Þýsku
framleiðendurnir fengu stuðning frá löndum
eins og Bretlandi og Póllandi. Umhverfi ssinnar
eru fokreiðir út í Evrópusambandið fyrir að hafa
beygt sig fyrir Þjóðverjum og að þeir standi í
vegi fyrir því að Evrópa taki forystuna í fram-
leiðslu umhverfi svænna bíla.
Evrópusambandið hlustar á Þjóðverja Úr sam-setningar-
verksmiðju
BMW í
Þýskalandi.
Er bíllinn þinn klár
fyrir veturinn?
Löður kynnir
Rain-X býður upp á fullkomna yfirborðsvörn
Rain-X verndar bílinn, eykur útsýni og öryggi
Rain-X er ekki bara fyrir framrúðuna
Rain-X fylgir öllum bílaþvotti í svampburstastöð Löðurs á Fiskislóð 29 og er
fáanlegur á snertilausu þvottastöðum Löðurs á Grjóthálsi og Fiskislóð 29
Við erum á sex stöðum á höfuðborgarsvæðinu
www.lodur.is