Fréttablaðið - 22.10.2013, Blaðsíða 21
A
llt frá stríðslokum seinni
heimsstyrjaldarinnar og til
1973 var bílaiðnaðurinn eins
og draumur, sérstaklega í
Bandaríkjunum. Svo skall á
Yom Kippur-stríðið fyrir botni
Miðjarðarhafs sem leiddi til
stofnunar OPEC, þar sem stóru olíufram-
leiðsluríkin bundust samkomulagi og verð
á olíu margfaldaðist. Þetta átti eftir að
breyta bílaiðnaðinum mikið og segja má
að enn séu allar stærstu ákvarðanir bíla-
fyrirtækjanna eftirköst þessa. Frá sjón-
arhóli umhverfisverndar er ef til vill eins
gott að þetta gerðist.
Bensínlítrinn kostaði 8 krónur
Fyrir stofnun OPEC kostaði bensínlítrinn
um 25 sent í Bandaríkjunum, eða um átta
krónur. Það væri svo sem frábært að svo
væri enn, en þá hefði ekki myndast þrýst-
ingur á bílafyrirtækin að framleiða spar-
neytnari bíla og náttúran hefði fengið
reikninginn. Í Bandaríkjunum framleiddu
GM, Ford og Chrysler algera eyðsluháka og
enginn hafði áhyggjur af því að þeir eyddu
eins og margir bílar í dag. Þessi risafyrir-
tæki áttu svo til alveg markaðinn heima
fyrir og þeir höfðu litlar áhyggjur af fram-
leiðendum frá Japan og Þýskalandi, en
það átti aldeilis eftir að breytast. Svo lengi
þrjóskuðust þessi þrjú fyrirtæki við að sí-
fellt óx bílaframleiðendum annars staðar
frá fiskur um hrygg. Þrýstingur frá banda-
rískum yfirvöldum um að framleiða spar-
neytnari bíla í fyrstu var lítill eða enginn.
En svo vöknuðu þau af værum blundi.
Innflutningur hófst af krafti
Evrópskir og japanskir bílaframleiðendur
höfðu ekki farið sömu leið og þeir banda-
rísku, heldur framleiddu sparneytn ari og
minni bíla með vélar sem samt voru nægi-
lega aflmiklar. Japanar áttuðu sig fljótt
á þessu og hófu stórvaxinn innflutning á
bílum þangað. Fyrir verðhækkun bens-
íns áttu þessir bílar engan séns, en allt
í einu fór bensínreikningurinn að fara
fyrir hjartað á bandarískum bíleigendum
og þeir keyptu þá japönsku í sífellt meiri
mæli. Svar bandarísku framleiðendanna
var að minnka vélarnar í sínum jafnstóru
bílum og það líkaði kaupendum ekki. Auk
þess áttuðu kaupendur sig á gæðum jap-
anskra bíla og lágri bilanatíðni þeirra.
Önnur olíukrísa og stórhækkun verðs
Innan nokkurra ára frá stofnun OPEC
jafnaði olíuverð sig og varð stöðugt og
ekki svo ýkja hátt. Enn uggðu bandarísk-
ir framleiðendur ekki að sér og hófu ekki
þróun smærri og eyðslugrennri bíla. Þeir
héldu hreinlega að gömlu góðu tímarnir
væru komnir aftur. Það varð ekki lang-
vinnt. Næsta olíukrísa skall á árið 1979
með gíslatökumálinu í Íran og verð á olíu
steig upp í óþekktar hæðir. Viðbrögð ríkis-
stjórnar Bandaríkjanna voru þau að yfir-
taka dreifingu eldsneytis og reyndist sú
ákvörðun afar slæm. Varð það til þess að
eldsneyti var skammtað og bensín fékkst á
tímabili aðeins afgreitt á dögum sem höfðu
jafna tölu í vikunni og oft mynduðust mikl-
ar biðraðir til að fá afgreitt bensín.
Skelfi legir bílar urðu til
Yfirvöld hófu á þessum tíma að þrýsta
á framleiðendur að smíða litla bíla og
hörmulegir bílar eins og Pinto, Vega og
Duster fæddust. GM tókst þó fljótlega
að minnka eyðslu bíla sinna um þriðj-
ung. Krafa var gerð árið 1975 um að innan
nokkurra ára kæmust bílar 27,5 mílur á
hverju galloni, sem samsvarar um níu lítra
eyðslu. Nýjasta krafa yfirvalda í Banda-
ríkjunum er 4,4 lítra meðaleyðsla bíla
fyrir árið 2025. Framleiðendur þarlendis
hafa hingað til átt í stökustu vandræðum
með að uppfylla fyrri skilyrði og margir
hafa bent á að yfirvöld hefðu átt að taka í
taumana miklu fyrr og framleiðendur að
verða fyrir vikið samkeppnishæfir við þá í
öðrum löndum. Enn eru þessi vandræði til
staðar og það ætlar að reynast þeim dýrt
því að hlutfall seldra innfluttra bíla heldur
bara áfram að aukast vestanhafs.
STOFNUN OPEC FYRIR 40 ÁRUM BREYTTI
BÍLAIÐNAÐINUM SVO UM MUNAÐI
Hækkaði verð á eldsneyti sem neyddi bílaframleiðendur til að framleiða sparneytnari bíla – Bandaríkin misstu forystuna.
ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 2013
BÍLAR