Fréttablaðið - 22.10.2013, Blaðsíða 48
FRÉTTIR
AF FÓLKI
Mest lesið
1 Jæja, Sigmundur Davíð
2 „Held ég sé með Íslandsmetið í
innkeyrslu í verslanir“
3 Komu fram við Mariu litlu eins og
„dansandi björn“
4 Halldór 21.10.13
5 Gaupi í verslunarleiðangur með
tveimur risum
Íslenskar konur
lunknar að mála sig
„Íslenskar konur eru mjög lunknar
við að nota snyrtivörur. En mér
fannst vanta umfjöllun um snyrti-
vörur og þess vegna ákvað ég að
gefa út blaðið,“ segir Erna Hrund
Hermannsdóttir, förðunarfræðingur
og ritstjóri vefmiðilsins Reykjavik
Makeup Journal. Fyrsta eintakið af
blaðinu er nú að finna á netinu. Þar
er að finna margvíslega umfjöllun
um snyrtivörur og söguna á bak við
þær. „Sumar konur
vita ekki hvað snyrti-
vörur gera mikið
fyrir þær, til dæmis
að farði er frábær
til að verja húðina
fyrir mengun. Það
er miklu betra að
vera með farða
en hreina húð.
Bara að muna að
hreinsa hann af
áður en gengið
er til náða,“ segir
Erna Hrund. - jme
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR · SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 DREIFING: dreifing@postdreifing.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VÍSIR
RITSTJÓRN 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meiri Vísir.
Glæsileg hekluppskriftabók
eftir Marín Þórsdóttur
Stútfull a
f
hugmynd
um
Kætum krílin!
Hættulegt draugaþorp
Sigurður Kjartan Kristinsson
kvikmyndagerðarmaður er einn af
skipuleggjendum hryllingsmyndahá-
tíðar á hjólum sem nefnist Horror
Bohemia. Aðstandendur hátíðarinnar
fóru um Spán og Frakkland fyrir
stuttu í leit að góðum sýningarstöð-
um, en hátíðin fer fram næsta sumar.
Meðal staða sem hópurinn skoðaði
var draugaþorpið Goussainville, sem
er rétt fyrir utan París. Eftir að hafa
skoðað sig um sneri hópurinn aftur
til Parísar þar sem honum var tjáð
að heimamenn hættu sér aldrei inn
í þorpið þar sem glæpahópar hefðu
hreiðrað um sig í húsunum.
Aðstandendur Horror
Bohemia féllu að
sjálfsögðu frá þeim
áformum að sýna
hrollvekjur í þorp-
inu næsta sumar
og prísuðu sig sæla
fyrir að hafa sloppið
með skrekkinn. - sm