Fréttablaðið - 22.10.2013, Blaðsíða 20
FÓLK|HEILSA
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug lýsendum að kynna vörur og
þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið
fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Sverrir Birgir Sverrisson,
sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Kolbeinn Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512-5447
Rannsóknir sýna að ef hægt er að fresta því að krakkar byrji að nota tóbak, þá byrja færri
yfirleitt. Tóbaksneysla í grunnskólum
hefur dregist mikið saman undanfarin
ár en nú mælast daglegar reykingar í
10. bekk um þrjú prósent. Sú tala var
töluvert hærri fyrir örfáum árum,“
segir Viðar Jensson en hann stýrir
verkefninu Tóbakslaus bekkur sem nú
fer af stað fimmtánda árið í röð.
Allir 7. og 8. bekkir grunnskóla
landsins geta tekið þátt í verkefninu,
svo fremi sem enginn í bekknum notar
tóbak. Viðar segir þátttöku alltaf hafa
verið góða.
„Um það bil sjötíu prósent 7. og 8.
bekkinga landsins hafa jafnan tekið
þátt á hverju ári. Áður töluðum við um
„Reyklausan bekk“ en þar sem neysla á
munn- og neftóbaki hefur aukist heitir
verkefnið nú Tóbakslaus bekkur,“ út-
skýrir Viðar og segir neyslu á nef- og
munntóbaki hafa aukist upp úr árinu
2007.
„Ef við horfum á framleiðslutölur
ÁTVR þá voru 16,7 tonn framleidd af
neftóbaki árið 2007 en fjórum árum
síðar hafði sú tala nánast tvöfaldast því
árið 2011 voru framleidd þrjátíu tonn.
Nú erum við að sjá þetta ganga til baka.
Það hefur sitt að segja að neftóbaks-
dósin hækkaði úr 900 krónum í 1.800
krónur. Reykingarnar eru það sem við
þurfum að ná niður og okkur hefur tek-
ist það í grunnskólunum. Tóbaksneysla
hefur breyst að því leyti að hún hefur
færst upp. Viðlíka árangur þyrfti því að
nást í framhaldsskólunum líka en þar
stendur Landlæknisembættið fyrir verk-
efninu Heilsueflandi framhaldsskóli, þar
sem meðal annars verður komið inn á
tóbaksvarnir.“
Til að taka þátt í verkefninu Tóbaks-
laus bekkur þarf bekkurinn að skrá
sig á heimasíðunni landlaeknir.is/
tobakslausbekkur. Þá þarf bekkurinn
að staðfesta tóbaksleysi sitt nokkrum
sinnum yfir skólaárið á vefsíðunni.
Allir þátttakendur fá senda litla gjöf og
einnig eru dregnir út bekkir sem hljóta
vinning. Til þess að eiga möguleika á
fyrsta vinningi þarf bekkurinn að senda
inn lokaverkefni sem nemendur vinna
saman.
„Það er ekki skilyrði. Aðstæður eru
misjafnar í bekkjum til að vinna slík
verkefni og mikilvægast er að vera
með, fá senda gjöfina og vera með í
pottinum sem dregið er úr,“ segir Við-
ar. „En það er frábært að sjá allt starfið
sem í gangi er í bekkjunum og árlega
fáum við sendan inn fjölda metnaðar-
fullra verkefna. Í ár munu alls tíu
bekkir hljóta verðlaun, fimm þúsund
krónur á hvern nemanda í bekknum,
sem hópurinn getur ráðstafað að vild.“
■ heida@365.is
FÆRRI NOTA TÓBAK
HEILSA Verkefnið Tóbakslaus bekkur hefst nú fimmtánda árið í röð.
Nemendur í 7. og 8. bekk um allt land geta tekið þátt ef enginn í bekknum
notar tóbak. Neysla tóbaks í grunnskólum hefur dregist saman.
SKRÁNING HAFIN
Nemendur í 7. og 8.
bekk um allt land geta
tekið þátt ef enginn í
bekknum notar tóbak.
Nokkuð hefur borið á gubbupest undanfarið en hún lýsir sér í ógleði,
uppköstum og kviðverkjum. Algengast er að slík pest sé af völdum
veira.
Gæta þarf mikils hreinlætis þegar gubbupest kemur upp, hvort
sem það er hjá börnum eða fullorðnum, og þvo hendur reglulega.
Til að forðast ofþornun þarf að drekka mikið vatn. Gott ráð er að
gefa börnun frostpinna sem gefur bæði vökva og orku.
Fullorðnir geta fengið sér kók eða annan kóladrykk en margir telja
að það sé gott við magaóróleika.
Best er að liggja fyrir og hvíla sig eða sofa á meðan fólk er að jafna
sig. Gubbupest gengur fljótt yfir, eða á sólarhring.
Forðist mjólkurvörur og tyggigúmmí ef órói gerir vart við sig. Ekki
ætti að borða kál, baunir, lauk, hvítlauk, hveiti, rúg og korn þar sem
þessar fæðutegundir eru gasmyndandi og geta valdið uppþembu.
RÁÐ VIÐ GUBBUPEST
EKKI GOTT
Allir geta
fengið gubbu-
pest, sem er
óskemmtilegt.
Nauðsynlegt
er að drekka
mikið til að
koma í veg
fyrir ofþornun.
MYND/STEFÁN
FORVARNIR Viðar Jensson
stýrir verkefninu Tóbakslaus
bekkur. Hann segir verkefnið
hafa skilað miklum árangri.
6 vikna námskeið, einu sinni í viku fyrir konur sem vilja bæta líðan sína og lífsgæði, hefst þriðjudaginn
29. október kl. 16.30 og 17.30 í Táp sjúkraþjálfun, Hlíðasmára 15, Kópavogi.
Takmarkaður fjöldi
Þorgerður Sigurðardóttir
sérfræðingur í meðgöngu- og
fæðingarsjúkraþjálfun
Skráning og nánari upplýsingar:
grindarbotn@gmail.com
eða í síma 564-5442
Grindarbotn
Kvennaheilsa
ára10
Skráning í síma 580 1800 eða á www.mimir.is
Námskeið hefjast
28. október
Sænska
Enska
Danska
Norska
Þýska
Spænska
Lífstíðareign!
Tilboðsverð kr. 106.900
Með fylgir Vitamix sleif
drykkjarmál og svunta
Fullt verð kr. 125.765
Meira en bara
blandari!
Rauðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · www.kaelitaekni.is