Fréttablaðið - 22.10.2013, Síða 21

Fréttablaðið - 22.10.2013, Síða 21
A llt frá stríðslokum seinni heimsstyrjaldarinnar og til 1973 var bílaiðnaðurinn eins og draumur, sérstaklega í Bandaríkjunum. Svo skall á Yom Kippur-stríðið fyrir botni Miðjarðarhafs sem leiddi til stofnunar OPEC, þar sem stóru olíufram- leiðsluríkin bundust samkomulagi og verð á olíu margfaldaðist. Þetta átti eftir að breyta bílaiðnaðinum mikið og segja má að enn séu allar stærstu ákvarðanir bíla- fyrirtækjanna eftirköst þessa. Frá sjón- arhóli umhverfisverndar er ef til vill eins gott að þetta gerðist. Bensínlítrinn kostaði 8 krónur Fyrir stofnun OPEC kostaði bensínlítrinn um 25 sent í Bandaríkjunum, eða um átta krónur. Það væri svo sem frábært að svo væri enn, en þá hefði ekki myndast þrýst- ingur á bílafyrirtækin að framleiða spar- neytnari bíla og náttúran hefði fengið reikninginn. Í Bandaríkjunum framleiddu GM, Ford og Chrysler algera eyðsluháka og enginn hafði áhyggjur af því að þeir eyddu eins og margir bílar í dag. Þessi risafyrir- tæki áttu svo til alveg markaðinn heima fyrir og þeir höfðu litlar áhyggjur af fram- leiðendum frá Japan og Þýskalandi, en það átti aldeilis eftir að breytast. Svo lengi þrjóskuðust þessi þrjú fyrirtæki við að sí- fellt óx bílaframleiðendum annars staðar frá fiskur um hrygg. Þrýstingur frá banda- rískum yfirvöldum um að framleiða spar- neytnari bíla í fyrstu var lítill eða enginn. En svo vöknuðu þau af værum blundi. Innflutningur hófst af krafti Evrópskir og japanskir bílaframleiðendur höfðu ekki farið sömu leið og þeir banda- rísku, heldur framleiddu sparneytn ari og minni bíla með vélar sem samt voru nægi- lega aflmiklar. Japanar áttuðu sig fljótt á þessu og hófu stórvaxinn innflutning á bílum þangað. Fyrir verðhækkun bens- íns áttu þessir bílar engan séns, en allt í einu fór bensínreikningurinn að fara fyrir hjartað á bandarískum bíleigendum og þeir keyptu þá japönsku í sífellt meiri mæli. Svar bandarísku framleiðendanna var að minnka vélarnar í sínum jafnstóru bílum og það líkaði kaupendum ekki. Auk þess áttuðu kaupendur sig á gæðum jap- anskra bíla og lágri bilanatíðni þeirra. Önnur olíukrísa og stórhækkun verðs Innan nokkurra ára frá stofnun OPEC jafnaði olíuverð sig og varð stöðugt og ekki svo ýkja hátt. Enn uggðu bandarísk- ir framleiðendur ekki að sér og hófu ekki þróun smærri og eyðslugrennri bíla. Þeir héldu hreinlega að gömlu góðu tímarnir væru komnir aftur. Það varð ekki lang- vinnt. Næsta olíukrísa skall á árið 1979 með gíslatökumálinu í Íran og verð á olíu steig upp í óþekktar hæðir. Viðbrögð ríkis- stjórnar Bandaríkjanna voru þau að yfir- taka dreifingu eldsneytis og reyndist sú ákvörðun afar slæm. Varð það til þess að eldsneyti var skammtað og bensín fékkst á tímabili aðeins afgreitt á dögum sem höfðu jafna tölu í vikunni og oft mynduðust mikl- ar biðraðir til að fá afgreitt bensín. Skelfi legir bílar urðu til Yfirvöld hófu á þessum tíma að þrýsta á framleiðendur að smíða litla bíla og hörmulegir bílar eins og Pinto, Vega og Duster fæddust. GM tókst þó fljótlega að minnka eyðslu bíla sinna um þriðj- ung. Krafa var gerð árið 1975 um að innan nokkurra ára kæmust bílar 27,5 mílur á hverju galloni, sem samsvarar um níu lítra eyðslu. Nýjasta krafa yfirvalda í Banda- ríkjunum er 4,4 lítra meðaleyðsla bíla fyrir árið 2025. Framleiðendur þarlendis hafa hingað til átt í stökustu vandræðum með að uppfylla fyrri skilyrði og margir hafa bent á að yfirvöld hefðu átt að taka í taumana miklu fyrr og framleiðendur að verða fyrir vikið samkeppnishæfir við þá í öðrum löndum. Enn eru þessi vandræði til staðar og það ætlar að reynast þeim dýrt því að hlutfall seldra innfluttra bíla heldur bara áfram að aukast vestanhafs. STOFNUN OPEC FYRIR 40 ÁRUM BREYTTI BÍLAIÐNAÐINUM SVO UM MUNAÐI Hækkaði verð á eldsneyti sem neyddi bílaframleiðendur til að framleiða sparneytnari bíla – Bandaríkin misstu forystuna. ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 2013 BÍLAR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.