Fréttablaðið - 22.10.2013, Qupperneq 10
22. október 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 10
Save the Children á Íslandi
Skeifunni 11 | Sími 515 1100 www.rekstrarland.is
Kaffi-
stofan
Fjölbreytt úrval af vörum fyrir
kaffistofuna, allt á einum stað.
www.volkswagen.is
Fullkominn ferðafélagi
Tiguan kostar aðeins frá
5.360.000 kr.
Volkswagen Tiguan
Í Volkswagen Tiguan sameinast fullkomið fjórhjóladrif, sparneytin dísilvél
og einstakir aksturseiginleikar sem veita þér algjört ferðafrelsi. BlueMotion
tæknin frá Volkswagen leggur áherslu á lágmarks eyðslu eldsneytis og
hámarks umhyggju fyrir umhverfinu. Kynntu þér kosti Volkswagen Tiguan
og veittu þér sannkallað frelsi til að ferðast.
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði
A
uk
a
b
ún
a
ð
ur
á
m
yn
d
: á
lfe
lg
ur
, s
va
rt
ir
þ
a
kb
o
g
a
r
o
g
lj
ó
sk
a
st
a
ra
r
í f
ra
m
st
uð
a
ra
.
HEILBRIGÐISMÁL „Við vonum
að það verði hægt að opna
á Vífilsstöðum 20. nóvem-
ber, þann sama dag ættu
fimmtán hjúkrunarsjúk-
lingar að geta flutt þangað,“
segir Páll Matthíasson, for-
stjóri Landspítalans. Hann
segir að á Landspítalanum
liggi nú á milli 40 og 50
manns sem hafi gilt færni-
og heilsumat en bíði eftir
því að flytja á hjúkrunarheimili.
Flesta þessa sjúklinga verði hægt
að útskrifa af spítalanum og flytja
á Vífilsstaði
Páll segir að það skipti miklu máli
fyrir starfsemi á Landspítalanum að
geta útskrifað þetta fólk.
„Það myndast rúm fyrir bráð-
veikt fólk og þetta dregur úr álagi
á starfsfólk sjúkrahússins.“
Páll segir að það skipti ekki síður
máli fyrir hjúkrunarsjúk-
lingana að komast af Land-
spítalanum og á hjúkr-
unarheimili. Þeir komist
í rólegra umhverfi og fái
hjúkrun við hæfi.
Opnun Vífilsstaðaheim-
ilisins komi því til með að
létta álagi af lyflækninga-
sviði Landspítala en um
leið sé komið til móts við
þarfir hjúkrunarsjúkling-
anna.
Páll segist vongóður um að
hægt verði að manna lausar stöð-
ur á Vífils stöðum. Þessa dagana sé
verið að ráða fólk til starfa.
Á Vífilsstöðum verða 42 hjúkr-
unarrými. Áætlað er að það kosti
136 milljónir króna að opna heimil-
ið og reka það á þessu ári. Á næsta
ári er talið að rekstrarkostnað-
ur Vífilsstaða verði 349 milljónir
króna.
Samkvæmt áætlunum er gert ráð
fyrir að endurskoða rekstrarform-
ið á Vífilsstöðum að reynslutíma
liðnum. Þá verður það metið hvort
bjóða eigi reksturinn út – hvort
aðrir séu betur til þess fallnir en
Landspítalinn að reka heimilið.
Páll segir að jafnframt verði
metið hvort þörf sé fyrir stað þar
sem fólk geti dvalið á meðan það
bíður eftir endanlegu úrræði.
Hann segir að ekki sé hægt að
draga fjöður yfir að þörf sé á fleiri
hjúkrunarrýmum á höfuðborgar-
svæðinu og þörfin komi til með að
aukast í framtíðinni eftir því sem
þjóðin eldist.
johanna @frettabladid.is
Vífilsstaðaspítalinn
senn opnaður á ný
Forstjóri Landspítalans segir að fyrstu hjúkrunarsjúklingarnir sem dvelja á lyf-
lækningasviði sjúkrahússins verði fluttir á Vífilsstaði 20. nóvember. Það létti mjög
álagi af spítalanum. Skoðað verður hvort rekstur Vífilsstaða verði boðinn út.
PÁLL
MATTHÍASSON
FLUTNINGAR Stefnt er að þvi að flytja 15 hjúkrunarsjúklinga á Vífilsstaði
20. nóvember, næstu daga þar á eftir verða 25 til 30 fluttir.