Fréttablaðið - 22.10.2013, Page 36

Fréttablaðið - 22.10.2013, Page 36
MENNING 22. október 2013 ÞRIÐJUDAGUR LEIKLIST ★★★★★ Hús Benhörðu Alba Höfundur: Federico Garcia Lorca. Leik- stjórn: Kristín Jóhannesdóttir. Þýðing: Jón Hallur Stefánsson. Leikmynd: Brynja Björnsdóttir. Búningar: Þórunn María Jónsdóttir. Lýsing: Þórður Orri Pétursson. Hljóð: Ólafur Örn Thor- oddsen. Tónlist: Hildur Ingveldardóttir Guðnadóttir. Kórstjórn: Margrét J. Pálmadóttir. LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR SÝNIR Í GAMLA BÍÓI Leikrit Federicos Garcia Lorca, Hús Bernhörðu Alba, er smá- mynd af einræðisríki. Það var síð- asta leikrit spænska stórskáldsins áður en fasistarnir drápu hann í ágúst 1936, við upphaf borgara- styrjaldarinnar. Í húsi þessu drottnar hin ríka ekkja Bern- harða yfir fimm dætrum sínum ógiftum. Þær eru kvaldar af karl- mannsleysi og á bak við rimlana ólga ástríðurnar: bældir ástaórar, afbrýði, örvænting, öfund, heift, hatur. Að lokum mætir dauðinn til leiks, eins og í Blóðbrúðkaupi og Yermu, hinum harmleikjum Lorca sem halda nafni hans á lofti ásamt ljóðlist hans. Í sviðsetningu Kristínar Jóhannesdóttur á leiknum, sem var frumsýndur í Gamla bíói fyrir helgi, fer flest forgörðum sem gerir list Lorca að því sem hún er. Í löngu blaðaviðtali kveðst Krist- ín hafa verið að velta fyrir sér spurningum um kúgun og vald og því hafa ákveðið að bjóða ýmsum „gestum“ sem tengjast bar- áttu kvenna fyrir mannréttind- um sínum inn í sýninguna. Með öðrum orðum: hún leyfir sér að nota texta Lorca til að skapa sér sjálfri prédikunarstól að messa yfir lýðnum. Simone de Beauvo- ir kemur í stutta heimsókn meðal annarra og svo er öðru hvoru verið að lesa upp tilvitnanir í fræg karlrembusvín á borð við Napó- león, heilagan Tómas Aquin as og fleiri. Þessum „heimsóknum“ er einfaldlega dreift um sýninguna, alveg tilviljunarkennt, að því er best verður séð. Og afskaplega ólistrænt, verður að segjast. Garcia Lorca var upphaflega tónlistarmaður og textar hans einkennast af miklu músíkalíteti, líka þessi leikur. Ólíkt Blóðbrúð- kaupi og Yermu er hann raunsæ- islegur að formi, en býr um leið yfir þeim hreinleik formfestunn- ar sem fegurst birtist í harmleikj- um Grikkja og Frakka. En það er fátt músíkalskt eða hreinlegt við það sem nú fer fram á fjölum Gamla bíós. Sýningin hjakkar áfram í skrykkjóttu og silalegu tempói og leiktúlkunin fer alltof oft út í móðursýkislegt garg og öskur. Spennan milli hinnar hvít- kölkuðu spennitreyju spænska sveitaþorpsins og sársaukans sem aldrei má opinbera, grunn- tónninn í verki Lorca, er farinn veg allrar veraldar. Hér þenja leikkonurnar sig hver í kapp við aðra, veltast fram og aftur um sviðið, með barsmíðum og sjálfs- meiðingum, á kafi í sadískum og masókískum hugarórum. Hús Bernhörðu Alba hefur stundum verið kallaður harmleikur þagn- arinnar; hér er hann orðinn að harmleik hávaðans. Bernharða sjálf er mögnuð mannlýsing af hendi skáldsins. Hún er ógnvaldurinn sem er innst inni hræddastur allra. Hún setur almenningsálitið, ættarheiður- inn, ofar öllu öðru; lifir í slíkum ótta við dóma annarra að hún lokar inni geðveika móður sína, því að nágranna og þorpsbúa má ekki gruna neitt. Kristín lætur Þröst Leó Gunnarsson leika kon- una; að því er mér skilst vegna þess að hún fann enga íslenska leikkonu sem gæti gert frúnni boðleg skil. En Þröstur er ekki réttur leikari í hlutverk af þessu tagi, alveg burtséð frá kynferði. Honum er algerlega um megn að sýna þá andlegu grimmd sem Bernharða beitir aðra, grimmd- ina sem er ekki vísbending um styrk, heldur þá togstreitu sem er að gera hana geðveika – og gerir hana geðveika í leikslok. Það er engin leið að skilja hvernig nokk- ur geti óttast það furðufyrirbæri sem þarna birtist kjólklætt. Hvað þá að hægt sé að finna til samúð- ar með því – eða yfirleitt nokk- urri annarri persónu sem hér kemur fram. Mér finnst engin ástæða til að ræða frammistöðu leikenda við aðstæður sem þessar. Eins og oft verður raunin í vondu leikstjórn- arleikhúsi eru leikendur einungis strengbrúður í höndum einvald- ans, og því ósanngjarnt að gera þá ábyrga fyrir öllum mistök- um og smekkleysum. Og þetta er sannarlega vont leikstjórnarleik- hús, mjög vont meira að segja. Annars var gaman að fá að koma á ný í leikhús í Gamla bíó. Vel til fundið hjá leikhússtjóra Leikfélagsins að leggjast í slíka útrás. Ætli Borgarleikhúsið sé að springa í höndunum á honum? Eitt hið besta í sýningum Krist- ínar Jóhannesdóttur hefur oft verið skemmtilegt og nýstárlegt tónlistarval og svo er einnig hér. Þýðing Jóns Halls Stefánssonar hljómaði látlaust og skáldlega; þó ég sé ekki læs á frumtextann gæti ég best trúað því að hún sé trú bæði anda hans og inntaki. Þetta tvennt, þýðingin og tónlist- in, valda því að ég get gefið sýn- ingunni eina stjörnu með þokka- legri samvisku. Jón Viðar Jónsson NIÐURSTAÐA: Það er afskaplega lítið eftir af meistaraverki Garcia Lorca þegar það kemur út úr pól- itískri hakkavél Kristínar Jóhannes- dóttur. Sorglegt, er eina orðið sem hægt er að hafa yfir þetta. Harmleik breytt í prédikun DÆTUR BERNHÖRÐU “Hér þenja leikkonurnar sig hver í kapp við aðra, veltast fram og aftur um sviðið, með barsmíðum og sjálfsmeiðingum, á kafi í sadískum og masókískum hugarórum.” Miðasala fer fram á Miði.is og í síma 540-9800 Skráðu þig á póslistann okkar á www.jolagestir.is 2 DAGAR Í MIÐASÖLU! PÓSTLISTAFORSALA FER FRAM Á MORGUN GÓA OG FJARÐARKAUP KYNNA MEÐ STOLTI 14. DESEMBER Í HÖLLINNI Jólastjarnan 2013Söngkeppni fyrir 16 ára og yngri sem slegið hefur í gegn. Skráningarfrestur rennur út á miðnætti á morgun miðvikudag. Vísir.is/jolastjarnan i f i i l i f í . i f t t i tti i i . . Sigurbjörg Þrastardóttir flytur eigin ljóð og ann- arra skálda um Reykjavík og aðrar borgir í bókakaffi í Gerðubergi annað kvöld. Að auki segir hún frá skapandi starfi sínu með Metro- poetica-hópnum, sem er samstarfsvettvang- ur sex evrópskra skáldkvenna sem skrifa um borgir, og greinir frá því hvernig lesa má götukort eins og bókmenntaþýðingar. Bókakaf i í Gerðubergi: Æðasláttur borgarinnar

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.