Fréttablaðið - 22.10.2013, Síða 41
ÞRIÐJUDAGUR 22. október 2013 | MENNING |
SYKURLAUST
STREPSILS
með jarðaberjabragði
Við eymslum og
ertingu í hálsi!
- nú sykurlaust og
með jarðaberjabragði
Strepsils Jordbær Sukkerfri munnsogstöflur. Inniheldur: 2,4-tvíklóróbensýlalkóhól 1,2 mg,
amýlmetakresól 0,6 mg. Ábendingar: Eymsli og erting í hálsi. Skammtar og lyfjagjöf: Fullorðnir og börn
6 ára og eldri: 1 munnsogstafla er látin leysast hægt upp í munni á 2-3 klst. fresti. Frábendingar: Ofnæmi
fyrir virku efnunum eða einhverju hjálparefnanna. Varnaðarorð og varúðarreglur: Ekki nota stærri
skammt en ráðlagður er. Sjúklingurinn skal leita læknis ef hann er í vafa eða ef einkenni lagast ekki eða
versna innan nokkurra daga. Lyfið inniheldur ísómalt og maltitól sem geta haft væg hægðalosandi áhrif.
Sjúklingar með arfgengt frúktósaóþol, sem er mjög sjaldgæft, skulu ekki taka lyfið. Lesið leiðbeiningar
á umbúðum og í fylgiseðli fyrir notkun. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Markaðsleyfishafi:
Reckitt Benckiser Healthcare A/S. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ.
20
13
R
B
00
2
St
re
ps
ils
Miðasala fer fram á Miði.is, Harpa.is, í miðasölu Hörpu og í síma 528-5050.
EINLEIKIN GAMANSEMI Í HÖRPU
KVÖLDSTUND MEÐ LADDA Í EIGIN PERSÓNU
„Stórkostleg sýning!“- Heimir Karlsson, Bylgjan
„Á sviðinu birtistmanni lítill drengurmeð stórt hjarta.“- Helgi Snær Sigurðarson, Morgunblaðið.
Síðustu sýningar komnar í sölu!
Skoski Hollywood-leikarinn Ewan
McGregor verður gestgjafi á hrekkja-
vökuballi til styrktar Barnahjálp
Sameinuðu þjóðanna, Unicef. Allur
ágóðinn rennur til barna í hinu stríðs-
hrjáða Sýrlandi.
Aðrar stjörnur á ballinu, sem verð-
ur haldið í London 31. október, verða
söngvarinn Robbie Williams, leik-
arinn Roger Moore og fyrirsætan
Claudia Schiffer.
McGregor hefur stutt við bakið á
Unicef frá árinu 2004. Hann segir
mikilvægt að halda ballið til að safna
peningum fyrir sýrlensku börnin.
„Eins og staðan er núna er meira en
ein milljón barna á flótta og rúmlega
þrjár milljónir barna þurfa á hjálp að
halda í Sýrlandi. Ástandið hjá þeim
er grafalvarlegt,“ sagði leikarinn
við tímaritið Harper‘s Bazaar. „Uni-
cef vinnur dag og nótt við að útvega
hreint vatn, bóluefni, menntun og
sálfræðiaðstoð fyrir þessi börn.“
McGregur hefur einnig tjáð sig um
ballið á Twitter. „Hlakka til hrekkja-
vökuballs Unicef í Bretlandi fyrir sýr-
lensk börn,“ skrifaði hann.
Hrekkjavaka fyrir sýrlensk börn
Ewan McGregor verður gestgjafi á hrekkjavökuballi til styrktar Unicef.
EWAN MCGREGOR
Skoski leikarinn verður gestgjafi á
hrekkjavökuballi Unicef.
Tískan næsta vor og sumar
verður litrík ef marka má
tískuvikurnar sem fóru fram
víða um heim í lok ágúst
og september. Appelsínu-
gulur og dökkblár
verða þeir litir
sem verða hvað
mest áberandi,
ef frá eru tald-
ir litir á borð
við hvítan,
ljósbrúnan
og fölgráan.
Þessir sterku
litir eru til-
breyting frá
pastellitun-
um sem halda
gjarnan inn-
reið sína þegar
sól tekur að hækka á
lofti.
Sterkir litir næsta vor
Appelsínugulur og dökkblár verða ríkjandi næsta vor.
GENNY
CHRISTIAN
DIOR
GIANFRANCO
FERRE
RALPH
LAUREN