Fréttablaðið - 30.10.2013, Qupperneq 2
30. október 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 2
SPURNING DAGSINS
VINNUMARKAÐUR „Það er ákveðin hætta á stöðnun í
atvinnulífinu,“ segir Ólafur Darri Andrason, hagfræð-
ingur ASÍ.
Samtökin hafa kynnt nýja hagspá fyrir árin 2013 til
2015. Samkvæmt henni verður hagvöxtur fremur lítill á
tímabilinu eða 1,7 prósent í ár, 2,2 prósent á næsta ári og
2,5 prósent að tveimur árum liðnum. ASÍ segir að skýr-
ingarnar á litlum hagvexti séu meðal annars hversu erf-
iðlega gengur að auka verðmætasköpun í þjóðfélaginu og
hversu lítið sé fjárfest.
Fjárfestingar minnka um 8,8 prósent í ár, vaxa í 14,1
prósent á næsta ári og verði orðnar 6,2 prósent árið 2015.
Ólafur Darri segir að skuldastaða heimilanna hafi held-
ur batnað. Útflutningshorfur hafi líka batnað sem skýrist
af fjölgun ferðamanna og auknum aflaheimildum, inn-
flutningur eykst á tímabilinu samhliða hóflegum vexti í
fjárfestingu og einkaneyslu.
Þá segir Ólafur Darri að dregið hafi úr sveiflum á
gengi krónunnar sem geti skýrst að einhverju leyti af
aðgerðum Seðlabankans sem boðaði virkari aðgerðir á
gjaldeyrismarkaði í maí með það að markmiði að auka
gengisstöðugleikann. Þrátt fyrir það sé enn búist við mik-
illi verðbólgu þótt horfur hafi batnað. -jme
Lítill hagvöxtur verður á árunum 2013 til 2015 samkvæmt hagspá ASÍ
Óttast stöðnun í atvinnulífinu
DAUFT YFIR Lítill hagvöxtur verður á næstunni gangi
hagspá ASÍ eftir. Ólafur Darri Andrason hagfræðingur segir
að staðan á vinnumarkaði hafi batnað nokkuð. Atvinnu-
leysi mælist nú um 4,7 prósent en litlar líkur séu taldar á
að það minnki mikið á spátímanum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Tryggvi, mótmælti enginn
sölu Gálgahrauns?
„Nei, álfarnir höfðu samband og
lýstu velþóknun sinni á sölunni.“
Tryggvi Páll Friðriksson, uppboðshaldari hjá
Gallerí Fold, seldi málverkið Gálgahraun eftir
Kjarval í fyrradag.
SANDGERÐI
Meiri peningar í árshátíð
Bæjarráð Sandgerðis hefur samþykkt að
hækka framlag til árshátíðar starfsmanna
bæjarins úr 300.000 krónum í 500.000.
KÍNA, AP Kínverska lögreglan
hefur rannskað tvo nafngreinda
Úígúra í tengslum við rannsókn
á atviki sem varð í gær á Torgi
hins himneska friðar (Tianan-
men-torgi) í Peking.
Þá var bifreið ekið inn í mann-
fjöldann með þeim afleiðingum
að fimm manns létust og 38 slös-
uðust.
Ekki er vitað hvort lögreglan
telur að Úígúrarnir tveir hafi
verið í bifreiðinni, sem ekið var
á mannfjöldann, en þrír þeirra
fimm sem létu lífið voru í bifreið-
inni. - gb
Ekið á fólk í Peking:
Grunur beinist
að Úígúrum
DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja-
víkur hefur fallist á að veita rúm-
lega sextugri konu lögskilnað frá
manni sínum, sem hún hefur ekki
séð í 37 ár og gæti allt eins verið lát-
inn. Konan giftist manninum í Bret-
landi í júní árið 1975, fluttist ein til
Íslands árið eftir og hefur síðan
gerst íslenskur ríkisborgari.
Síðan hefur hún ekkert spurt af
manninum. Hún reyndi að fá skiln-
að með hjálp bresks prests árið 1986
en það mistókst af því að hún mis-
ritaði nafn hans á nauðsynleg skjöl.
Undanfarið ár hefur konan lagst
í töluverða rannsóknarvinna til að
hafa uppi á manninum, án árang-
urs. Meðal annars var haft samband
við íslensku utanríkisþjónustuna,
Hjálpræðisherinn í Bretlandi og
vefsíðu sem sérhæfir sig í að finna
horfna einstaklinga. Ekkert gekk og
með hliðsjón af framburði konunnar
um að hjónabandið hafi aðeins verið
til málamynda fellst dómurinn á að
konan mætti skilja við manninn án
þess að hann fengi nokkru um það
ráðið. - sh
Rúmlega sextug kona gerði árangurslausa leit að málamyndamanni sínum:
Fær að skilja við horfinn mann
Skilnaðarmál sárasjaldan fyrir dóm
Helga Vala Helgadóttir, lögmaður konunnar, segir skilnaðarmál sárasjaldan
koma til kasta dómstóla. Hún muni aðeins eftir einu öðru og það hafi hún
einnig séð um. Þá hafi íslensk kona viljað skilja við mann sem hafði flutt
til útlanda en reyndist ómögulegt að hafa uppi á. Vitað var að sá var lífs.
NÍGERÍA
Franskir gíslar frelsaðir
Fjórir franskir gíslar hafa verið frelsaðir
í Nígeríu eftir að hafa verið í haldi
hryðjuverkamanna frá september 2010.
Þeir voru teknir höndum þegar árás var
gerð á tvö frönsk fyrirtæki í Nígeríu.
FÓLK Inga María Eyjólfsdóttir hóf
nám í dönskum leiklistarskóla
haustið 2012 en neyddist til að
hætta í skólanum þegar yfirmaður
skólans varð uppvís að fjármála-
misferli.
„Yfirmaður skólans rak skyndi-
lega alla kennarana þegar hann sá
í einkatölvupóstum þeirra að þau
voru með hugmyndir um að stofna
einhvern tíma í framtíðinni sinn
eigin skóla,“ útskýrir Inga María.
„Við nemendurnir vorum ekki
par sáttir við að vera án kennara
og ákváðum í samstarfi við þá að
stofna okkar eigin skóla. Þegar
við fórum að rannsaka hvernig
skólinn hafði verið fjármagnað-
ur komumst við að því að nöfn-
in okkar höfðu verið nýtt til þess
að svíkja peninga út úr kommún-
unni.“
Svindlið var með þeim hætti
að yfirmaður skólans fékk styrki
fyrir að vera með námskeið í
nafni nemenda sem voru aldrei
haldin. „Við vitum ekkert hvar
þessir peningar eru núna,“ segir
Inga. Málið var kært til lögreglu.
„Skólinn sem við stofnuðum
svo heitir CISPA,“ segir Inga.
CISPA stendur fyrir Copenhag-
en International School of Per-
forming Arts. „Hann er áfram-
hald af hinum skólanum, starfar
á sama námsgrundvelli. Ég er
eini Íslendingurinn sem ákvað að
halda áfram. Hin sáu ekki fram á
að geta haldið áfram af því að þau
fengu ekki lán frá LÍN.“
Nú er hún í fjórum störfum til
þess að fjármagna önnina. „Ég er
að vinna á kaffihúsi, svo tek ég að
mér heimilisþrif, ég passa börn og
ég vinn á bar.“
Spurð að því hvar hún finni
tíma og orku til þess að sinna
störfunum ásamt fullu námi segir
hún: „Í viljanum til að gefast ekki
upp. Ég sé ekki annað fyrir mér
en að gera þetta sem ég er að
gera.“
Hún viðurkennir þó að hún sé
orðin mjög þreytt. „Ég veit að ég
er að keyra mig út. Maður harkar
samt áfram.“
Inga sótti um styrk til Hafnar-
fjarðarbæjar í sumar og bíður nú
eftir svörum. „Þeir gefa sig út
fyrir að veita menningarstyrki.
Ég er Hafnfirðingur, fædd og upp-
alin þar, og lít á mig sem menn-
ingarlegt fyrirbæri þannig séð,“
segir hún og hlær. Hún sendi
einnig menntamálaráðherra bréf
í tvígang í því skyni að biðja um
aðstoð til þess að fjármagna nám
sitt.
„Ef ég næ ekki að klára að
borga þarf ég að hætta og byrja að
vinna til þess að borga fyrir það
nám sem ég er þegar búin með. Þá
missi ég líka heimili mitt af því að
ég bý á stúdentagörðum.“
„Þetta er ömurlegt,“ viðurkenn-
ir Inga. „Það er verið að brjóta
niður drauminn manns. Planið að
koma til Danmerkur, fara í þenn-
an skóla og hafa fengið lánað fyrir
því til þess að mennta sig í því
sem maður vill er allt í einu svo
brothætt.“ nanna@frettabladid.is
Fjársvik skólastjóra
hefta leiklistarnám
Íslenskur leiklistarnemi í Danmörku stofnaði nýjan skóla ásamt kennurum sínum
er fyrri skóli fór á hausinn vegna fjármálamisferlis. Hún er í fjórum störfum sam-
hliða námi til að fjármagna það þar sem námið er ekki lánshæft hjá LÍN.
FJÖLBREYTT NÁM „Þarna erum við að vinna með erkitýpur,“ útskýrir Inga en fjöl-
breytt nám er í skólanum sem er þegar kominn með góðan orðstír innan leiklistar-
geirans í Danmörku. MYND/CISPA
SJÁVARÚTVEGUR Lundey NS, fjöl-
veiðiskip HB Granda, tók niðri í
Breiðafirði síðastliðinn sunnudag.
Smávægilegar skemmdir urðu á
skipinu að því er segir á vef HB
Granda. Skipið losnaði eftir að sjó
var dælt úr kjölfestutönkum.
Atvikið átti sér stað er skipið
var að síldveiðum á Hofsstaðavogi.
Aðstæður þar eru mjög erfiðar
fyrir skip með stórar nætur.
Reiknað er með að Lundey kom-
ist aftur til veiða um næstu helgi.
-skó
Veiðar við erfiðar aðstæður:
Skip tók niðri í
Breiðafirði
NEYTENDAMÁL
Auglýsing Nýherja í lagi
Neytendastofa mun ekki aðhafast
vegna auglýsingar Nýherja þar sem
sagði „Vertu með ALT undir CTRL“ þar
sem þær fólu ekki í sér samanburð.
SPENNTAR Stelpurnar voru ánægðar með að vera komnar með Airwaves-armband-
ið sem veitir aðgang að tónlistarhátíðinni. MYND/DANÍEL
FÓLK Vinkonurnar fimm, Anja, Antonia, Maritz, Charlotte og Kiki,
fóru í gær að sækja armböndin sín á tónlistarhátíðina Iceland Airwa-
ves sem hefst í dag.
Stúlkurnar eru allar frá Þýskalandi fyrir utan Maritz sem er frá
Hollandi. Þær komu til landsins í gær og fóru samstundis að sækja
armböndin sín enda mjög spenntar fyrir hátíðinni. Að sögn Egils
Tómassonar, starfsmanns hátíðarinnar, komu erlendir tónlistarmenn
og gestir að sækja miðana sína í gær en hann telur að örtröðin muni
myndast fyrir alvöru í dag. - nej
Tónleikagestir hófu að sækja armbönd sín á Airwaves í gær:
Örtröð myndast fyrir alvöru í dag