Fréttablaðið - 30.10.2013, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 30.10.2013, Blaðsíða 10
30. október 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 10 BRETLAND, AP Fárviðrið í norðan- verðri Evrópu á mánudag kost- aði fimmtán manns lífið. Sá síð- asti var ökumaður í Danmörku en hann lést þegar hann ók á tré, sem hvassviðrið hafði fellt um koll. Veðrið er eitt það versta sem geisað hefur á þessum slóðum árum saman. Hundruð trjáa rifn- uðu upp með rótum, þök fuku af húsum og samgöngur féllu niður. Alls létu sex manns lífið í Þýska- landi, fimm í Bretlandi, tveir í Danmörku, einn í Frakklandi og einn í Hollandi. Fjöldi manns varð fyrir meiðslum af ýmsu tagi og í Sví- þjóð, Danmörku, Eistlandi og Lett- landi var rafmagnslaust á nokkr- um stöðum í gærmorgun. - gb Fárviðri kostaði 15 mannslíf Veðrið í norðanverðri Evrópu á mánudag varð eitt hið versta sem geisað hefur á þeim slóðum. Truflanir urðu á samgöngum og töluvert eignatjón varð í fárviðrinu. Fimmtán létust í óveðrinu, flestir í Þýskalandi og Bretlandi. HUNDRUÐ TRJÁA RIFNUÐU UPP Víða lentu trén á bifreiðum, eins og þarna sést í Amsterdam. NORDICPHOTOS/AFP GASSPRENGING Í LONDON Talið er að sprenging hafi orðið þegar tré féll niður á gasleiðslur. Sprengingin lagði þrjú hús í rúst. NORDICPHOTOS/AFP HAMAGANGUR Öldurnar brotna á hafnargarði í Boulogne í Frakklandi. NORDICPHOTOS/AFP LÖGREGLUMÁL „Við teljum að hann hafi verið á alltof miklum hraða,“ sagði Jesper Lotz lögreglumað- ur í viðtali við Extra Bladet í gær. Leigubílstjóri sem keyrði á Dag- nýju Grímsdóttur, 26 ára íslenska konu, í Kaupmannahöfn aðfaranótt 20. október síðastliðins, með þeim afleiðingum að hún lést af sárum sínum, hefur verið kærður fyrir manndráp af gáleysi. Jesper segir að Dagný hafi að öllum líkindum verið að kalla á leigubíl þegar slysið varð og verið komin langt út á götuna. Lögreglan hefur talað við leigubílstjóra sem keyrði framhjá stuttu fyrir slysið og segist hafa þurft að sveigja frá til þess að aka ekki á hana. Slysið, sem varð skammt frá gatnamótum Hans Christian And- ersens-breiðgötunnar og Tietgens- gade, er enn í rannsókn og bíður lögreglan meðal annars eftir niður- stöðum úr krufningu. Dagný var 26 ára gömul og hafði búið í Kaupmannahöfn í nokkurn tíma þar sem hún stundaði nám. - vg Leigubílstjórinn sem ók á Íslending ákærður fyrir manndráp af gáleysi: Bíllinn á allt of miklum hraða DAGNÝ GRÍMSDÓTTIR Dagný bjó í Danmörku og var aðeins 26 ára gömul þegar hún lést. KÖNNUN Fleiri eru andvígir en hlynntir nýjum Álftanesvegi sem liggur um Gálgahraun/Garða- hraun samkvæmt nýrri könn- un MMR. Alls eru 42,4 prósent andvíg lagningu vegarins en 24,1 prósent hlynnt. Um 32,6 prósent sögðust hvorki hlynnt né andvíg. Nær helmingur íbúa höfuð- borgarsvæðisins, um 48,5 pró- sent, er andvígur lagningu vegar- ins, en 25,7 prósent eru andvíg. Um 32 prósent íbúa landsbyggð- arinnar eru andvígi því að vegur- inn verði lagður og 24 prósent eru því hlynnt. Könnun MMR var gerð dagana 25. til 29. október, þátttakend- ur voru 939 og 90,7 prósent tók afstöðu til spurningarinnar. - bj Viðhorf til nýs Álftanesvegar: Fleiri andvígir en hlynntir HRAUN Hraunavinir hafa mótmælt lagningu nýs Álftanesvegar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA DANMÖRK Dönsk stjórnvöld hafa kynnt tillögur um hertar aðgerðir gegn glæpagengjum. Lagt er til að refsingar vegna vopnaburðar verði þyngdar og geti orðið allt að eins og hálfs árs fangelsi. Stjórnvöld vilja einnig takmarka möguleika á að félagar í glæpagengjum geti fengið reynslulausn úr fangelsum. Jafnframt er lagt til að mögu- leikinn á tvöfaldri refsingu verði aukinn ef um er að ræða glæp í tengslum við innbyrðis átök glæpa- gengja. -ibs Stjórnvöld í Danmörku: Barátta gegn glæpagengjum SKIPULAGSMÁL Norski arkitektinn Eirik Rønning Andersen sigr- aði í hugmyndasamkeppni um bætta aðstöðu fyrir ferðafólk í Stórurð og nágrenni Dyrfjalla að því er segir á vef Fljótsdalshér- aðs. Verðlaunin voru ein milljón króna. Fljótsdalshérað og Borgar- fjarðarhreppur stóðu fyrir sam- keppninni. Markmiðið var að styrkja ímynd Dyrfjalla og Stóru- rðar sem ferðamannastaðar og bæta aðgengi göngufólks. - gar Samkeppni um Dyrfjöll: Norðmaður fékk milljón www.volkswagen.is A uk ab ún að ur á m yn d: 1 6“ á lfl eg ur , þ ok ul jó s Volkswagen Polo Sparar sig vel Meðaleyðsla aðeins 5,5 lítrar á hverja 100 km Polo Trendline 1.2 bensín, 70 hestafla, beinskiptur Polo 1.2 bensín kostar aðeins: 2.460.000 kr. HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.