Fréttablaðið - 30.10.2013, Side 14
30. október 2013 MIÐVIKUDAGURSKOÐUN
HALLDÓR
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is HELGAREFNI: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is MENNING: Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is DÆGURMÁL: Sara McMahon sara@frettabladid.is
VÍSIR: Kristján Hjálmarsson, kristjan@visir.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000
eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á
landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
ISSN 1670-3871
FRÁ DEGI
TIL DAGS
Ímyndum okkur að þegar borgarstjórn
biður Reykvíkinga um að taka af fjár-
munum sínum til að leggja í sameigin-
legan sjóð eigi þeir að mæta í Ráðhúsið,
standa í röð og rétta borgarfulltrúum
peningaseðlana sína. Það væri augljós-
lega ekki skilvirkt, en þannig yrði þó
líklega borin meiri virðing fyrir því að
útsvarið er peningar borgarbúa sem þeir
treysta að farið sé með eins vel og hægt
er.
Nú er útsvarið í Reykjavík í leyfilegu
hámarki; 14,48% af því sem borgar-
búar vinna sér inn. Útsvarsprósentu
má aldrei líta á sem lögmál heldur á
hún alltaf að vera til skoðunar með það
að markmiði að borgarbúar haldi sem
mestu eftir af tekjunum.
Parkinson nokkur setti fram lögmál
um að hvert verkefni sem unnið væri
hjá hinu opinbera tæki þann tíma sem
því væri úthlutað. Seinna setti Niska-
nen fram kenningar um að forsvars-
menn opinberra stofnana hefðu tilhneig-
ingu til að þenja út umsvif þeirra, nema
kjörnir fulltrúar settu þeim mörk. Með
þetta til hliðsjónar má velta fyrir sér
hvort það segi sig ekki sjálft að væri
leyfilegt útsvar hærra, væri það áfram
nýtt upp í topp. Ef það væri lægra, væri
að sama skapi fundið út úr því.
Undanfarin ár hefur aðhaldið verið
fært frá borgarkerfinu yfir á borgarbúa
með hærri álögum. Þegar unnið er með
abstrakt tölur í Excel-skjölum tapast
skynjunin á að við erum að tala um bein-
harðar og dýrmætar ráðstöfunartekjur
borgarbúa. Þess vegna er líka alltof
auðvelt að hækka útsvarið um prósentu-
brot. Það væri ekki eins auðvelt að biðja
borgarbúa að koma aftur í Ráðhúsið og
standa aftur í röð til að borga aðeins
meira – og líklegra að kerfið myndi rýna
tölurnar betur til að þurfa ekki að biðja
þá um það. Þannig á nálgunin að vera.
Það er lágmark að borgarfulltrúar
muni – sérstaklega núna þegar borgar-
stjórn liggur yfir fjárhagsáætlun – að
þeir þurfa að fara með útsvarstekjurnar
eins og sérhver borgarbúi hafi gert sér
ferð í Ráðhúsið og rétt þeim peningana
sína.
Of auðvelt að taka meira
FJÁRMÁL
Hildur
Sverrisdóttir
borgarfulltrúi
➜ Það væri ekki eins auðvelt að
biðja borgarbúa að koma aftur í
Ráðhúsið og standa aftur í röð til
að borga aðeins meira – og líklegra
að kerfi ð myndi rýna tölurnar
betur til að þurfa ekki að biðja þá
um það.
M
egineinkenni íslenskrar umræðuhefðar er tor-
tryggnin. Allir sem viðra skoðanir sínar, beðnir
eða óumbeðnir, eru grunaðir um að reka erindi
einhvers annars en sjálfs sín. Þeir hljóta að hafa
einhvern annan málstað að verja en liggur í
augum uppi. Það hlýtur að vera eitthvert plott í pokahorninu.
Það virðist vera óhugsandi að fólk myndi sér skoðanir út
frá eigin hyggjuviti og menntun óháð því hvort sú skoðun er
þóknanleg þessum eða hinum pólitíska arminum, og þá er átt við
pólitík í víðasta skilningi. Það er alltaf leitað að tengslum við-
komandi við þetta eða hitt batt-
eríið og því veifað sigri hrós-
andi að þessi hafi sko einu sinni
sést á fundi hjá femínistum eða
mætt í partí í Valhöll. Sem sagt
verið einhvers staðar þar sem
hann hafi fengið línuna lagða.
Fólk æsir sig yfir því að
fræðimenn í sömu grein séu
ekki sammála um leiksýningu, að sú sem lofar hana hljóti að
stjórnast af feminískum öfgum og sá sem lastar hana hljóti
að aðhyllast gamaldags hugmyndafræði hvítra miðaldra karl-
skrögga. Rökin eru þau að þar sem viðkomandi aðilar séu
menntaðir í sömu fræðigrein hljóti þeir að eiga að komast að
sömu niðurstöðu nema einhver annarleg sjónarmið séu undir-
liggjandi. Eins og það sé ekki akkúrat drifkraftur fræðanna að
fólk nálgast þau frá ólíkum sjónarhornum og varpar mismun-
andi ljósi á þau.
Sama gildir um þá sem tjá sig um nýjan þjóðmálaþátt í
sjónvarpi hvort sem er til lofs eða lasts. Þeim er umsvifalaust
skipað á ystu brúnir andstæðra vængja stjórnmálanna og öll sú
umræða ratar beinustu leið út í skurð. Það er sem sagt ekki inni
í myndinni að fólki geti líkað eitthvað sem pólitískir andstæð-
ingar hafa fram að færa eða mislíkað einhver nálgun samherja
í tíkinni þeirri. Út frá því virðist gengið að allir hafi gengist
undir einhvern trúnaðareið um það að hafa aldrei nokkra sjálf-
stæða skoðun á nokkrum hlut. Og undir öllu kraumar sú land-
læga firra að ef þú aðhyllist einhverja ákveðna skoðun í ákveðnu
máli þá leiði það af sjálfu sér að þú hafir þessa eða hina skoð-
unina á öllum öðrum málum. Þú ert annaðhvort í þessu liði eða
hinu og öll frávik frá stefnu liðsins virðast svo fáránlega lang-
sótt hugmynd að hún er aldrei einu sinni dregin fram.
Þessi stimplunarárátta og tortryggni eyðileggur alla opinbera
umræðu á Íslandi. Það er endalaust ekið í hringi, helst með
skítadreifara í eftirdragi, og árangurinn verður í samræmi við
það. Engu er breytt, engir nýir vinklar leyfðir, umræðan hjakk-
ar í sama farinu og sömu málin koma upp ár eftir ár eftir ár með
sömu formerkjum og sömu grátlegu niðurstöðu, eða niðurstöðu-
leysi öllu heldur. Það er líkast því að í gangi sé endalaus umferð
af Frúnni í Hamborg þar sem sá sem spurður er má hvorki segja
svart né hvítt, já né nei án þess að vera umsvifalaust dæmdur úr
leik. Og umræðan um sömu málin, eða náskyld mál, byrjar aftur
á byrjunarreit í næstu umferð. Svo eru allir steinhissa á að hér
verði lítil framþróun.
Umræðan um umræðuna:
Ekki segja svart,
ekki segja hvítt
Friðrika
Benónýsdóttir
fridrikab@frettabladid.is
PR-mennirnir í KSÍ
Þóri Hákonarsyni og félögum í KSÍ
hafa verið býsna mislagðar hendur
undanfarin misseri og ósjaldan sem
þeir hafa komið heldur klaufalega fyrir
sjónir almennings. Menn muna til
dæmis eftir stóra strípibúllumálinu frá
Zürich árið 2009, og eitthvað örlaði á
vanstillingu í viðbrögðum sambands-
ins þegar í ljós kom að Aron Jóhanns-
son hafði kosið að leika með banda-
ríska landsliðinu fyrr í ár. Og enn gekk
þeim illa að fóta sig á svellinu í
gær, þegar þeir sættu gagnrýni
fyrir það að selja eftirsóttustu
aðgöngumiða á fótboltaleik í
Íslandssögunni um miðja nótt
og láta engan vita af því
fyrirfram. KSÍ mun hafa
staðið til boða nýverið
að fá almannatengla til
að annast allt umstangið í kringum
miðasöluna. Því var hafnað. Þeir hafa
væntanlega metið það svo að þeir
væru alveg nógu færir í almanna-
tengslunum sjálfir. Það var rangt mat.
Sjálfstætt Seltjarnarnes
Magnús Örn Guðmundsson hefur
ákveðið að gefa kost á sér í 4. til 5. sæti
á lista Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnar-
nesi. Í tilkynningu kemur fram að
Magnús leggi meðal annars „áherslu
á sjálfstætt Seltjarnarnes“. Þetta er
tímabær yfirlýsing. Með sjálfstæðu
Seltjarnarnesi yrði draumur Jóns
Gnarr um tollahlið á Nesveginum
loksins að veruleika og það þyrfti ekki
nema eina formúlubraut úti á
Gróttu til að Nesið gæti
með réttu kallað sig
Mónakó norðursins.
Þekkti málið vel
Á þessum stað í gær var vikið að
því að það væri hæpið hjá Brynjari
Níelssyni að halda því fram að þyngri
refsingar lægju við því að stela og
dreifa höfundarréttarvörðu efni á vefn-
um en að kaupa sér vændi, enda hafi
annað komið í ljós í eina dómnum yfir
hópi manna sem gerði það fyrrnefnda
– svokölluðum DC++-dómi: þeim var
ekki gerð refsing, ólíkt vændiskaup-
endum sem hafa allir verið sektaðir.
Það sem ekki kom fram í blaði
gærdagsins var að Brynjar
vissi auðvitað vel af þessu
þegar hann skrifaði
pistilinn sinn um málið.
Hann var jú verjandi
DC++-mannanna.
stigur@frettabladid.is