Fréttablaðið - 30.10.2013, Síða 18
| 2 30. október 2013 | miðvikudagur
Gengi félaga í Kauphöll Íslands
Á UPPLEIÐ
Félög sem hækkuðu
í verði
Á NIÐURLEIÐ
Félög sem lækkuðu
í verði
STÓÐU Í STAÐ
Félög sem stóðu
í stað
MESTA HÆKKUN
ICELANDAIR
98,3% frá áramótum
ÖSSUR
12,2% í síðustu viku
MESTA LÆKKUN
NÝHERJI
-24% frá áramótum
9
0
4
Allar markaðsupplýsingar eru aðgengilegar á
Dagatal viðskiptalífsins
dagatal viðskiptalífsinsl i i lí i
Miðvikudagur 30. október
➜ Vinnumarkaður á 3. ársfjórðungi
2013
➜ Nýskráningar og gjaldþrot
hlutafélaga og einkahlutafélaga
í september 2013
➜ Fjöldi útgefinna vegabréfa
Fimmtudagur 31. október
➜ Vöruskipti við útlönd janúar-
september 2013
➜ Hverjir eiga viðskipti?
Miðvikudagur 6. nóvember
➜ Vöruskipti við útlönd október
2013 – bráðabirgðatölur
➜ Gistinætur og gestakomur á
hótelum í september 2013
➜ Fasteignamarkaðurinn í
mánuðinum eftir landshlutum
➜ Útgáfudagur Peningamála og
vaxtaákvörðunardagur
Föstudagur 8. nóvember
➜ Útboð ríkisbréfa
Fróðleiksmolinn
Heimild: Hagstofa Íslands | Skoða nánar: http://data.is/HfBzsI
Mánaðarleg raforkunotkun í Gwst.
1400
1200
1000
800
600
400
200
0
1995 2000 2005 2010
Hagstofa Íslands birtir tölur um raforkunotkun og flokkar eftir stórnot-
endum og almenna notkun svo sem eins og heimilin í landinu o.fl.
Myndin sýnir mánaðarlega raforkunotkun frá janúar 1995 til júní 2013.
Raforkunotkun heimila (bláa línan) er árstíðabundin, hæst í desember
en lægst í júní og júlí ár hvert. Raforkunotkun stórnotenda (brúna línan)
hefur vaxið mikið á tímabilinu, úr 200 gígawattstundum (GWst) á mán-
uði árið 1995 í 1.150 Gwst.
Raforkunotkun - Almenn notkun, Gwst Raforkunotkun- Stórnotkun, Gwst.
Gwst.
Ár
Þriðji kerskálinn
í Straumsvík
tekinn í notkun
Álver Norður-
áls á Grundar-
tanga kom til
sögunnar.
Norðurál eykur
framleiðslugetu
álversins í 260
þúsund tonn.
Álver Alcoa Fjarða-
áls á Reyðarfirði
tekið í notkun.
Hækkar
ræstikostnaður
um 44% hjá þér
1. desember?
44%
Hafðu samband við okkur
í síma 581 4000 eða kíktu á
www.solarehf.is og kynntu
þér lausnir okkar.
Sólar ehf. • Kleppsmýrarvegur 8 • 104 Reykjavík
Sími. 581 4000 • www.solarehf.is
Sólar er einn af stærstu ræstingar-
og fasteignaumsjónar aðilum á Íslandi.
Síðan 2002 höfum við veitt ótal fyrir-
tækjum og stofnunum þjónustu okkar.
Aðallisti Kauphallarinnar | Nasdaq OMX Iceland
Félag Gengi í gær Frá áramótum Vikubreyting
Atlantic Airways (DKK) 164,50 36,0% 0,0%
Atlantic Petroleum (DKK) 155,00 -15,8% 0,0%
Bank Nordic (DKK) 133,00 29,1% 0,0%
Eimskipafélag Íslands 226,50 -1,5% 0,0%
Fjarskipti (Vodafone) 28,70 -11,8% 5,3%
Hagar 36,15 58,9% 5,7%
Icelandair Group 16,30 98,3% 1,9%
Marel 125,00 -11,0% 2,5%
Nýherji 3,08 -24,0% 1,7%
Reginn 13,61 23,7% 1,0%
Tryggingamiðstöðin* 30,35 13,7% 0,8%
Vátryggingafélag Íslands** 11,14 20,8% 0,6%
Össur 212,00 9,3% 12,2%
Úrvalsvísitalan OMXI6 1.166,25 7,7% -0,9%
First North Iceland
Félag Gengi í gær Frá áramótum Vikubreyting
Century Aluminum 1150,00 0,0% 0,0%
Hampiðjan 12,80 36,2% 5,3%
HB Grandi 16,20 8,0% 0,0%
Sláturfélag Suðurlands 1,22 13,0% 0,0%
*fyrsta verð 8. maí 2013 **fyrsta verð 24. apríl 2013
Vísbendingar eru um að kjara-
samningar árið 2011 hafi virkað
sem bremsa á bata sem þá var haf-
inn á vinnumarkaði. Þetta kemur
fram í nýrri umfjöllun í Markaðs-
punktum greiningardeildar Arion
banka. Samningar eru lausir 30.
nóvember næstkomandi.
Bent er á að nú fari á ný í hönd
kjarasamningar og niðurstöður
þeirra muni hafa umtalsverð áhrif
á efnahagsþróun næstu missera.
„Þá einkum þróun verðbólgu og
kaupmáttar,“ segir í umfjölluninni.
2011 var samið um almenna
launahækkun upp á 11,4 prósent
yfir samningstímabilið, sem var
þrjú ár. „Frá undirritun kjara-
samninganna í maí 2011 hefur
launavísitalan hækkað um 17,6
prósent á meðan kaupmáttur
hefur aðeins aukist um 7,4 pró-
sent á sama tíma sökum hækk-
andi verðlags. Bendir það til þess
að kjarasamningarnir hafi falið í
sér of miklar launahækkanir sem
hafi verið fyrirtækjum um megn,“
segir í Markaðspunktum.
Verðlagshækkanir eru sagð-
ar nær óhjákvæmilegar ef nafn-
laun hækki umfram framleiðni-
vöxt. „Sýndi það sig vorið 2011
en þá fór verðbólga vaxandi á ný
í kjölfar kjarasamninga, eftir að
hafa lækkað mikið frá árinu 2009.“
Fleiri þættir eru þó sagðir hafa þar
haft áhrif, svo sem gengislækk-
un og hækkun olíuverðs. Vísitöl-
ur sem greiningardeildin styðst
við sýna þó áhrif sem ekki verða
skýrð af utanaðkomandi þáttum.
Bent er á að vísitala launa hafi
að meðaltali hækkað um 2,8 pró-
sent við hverja þrepahækkun sem
samningarnir 2011 skiluðu, en svo-
kölluð kjarnavísitala bara um 0,4
prósent á næstu þremur mánuðum
eftir hækkun.
Áhrif samninga á hlutfall starf-
andi fólks eru einnig sögð benda
til þess að kjarasamningar hafi
grafið undan bata á vinnumark-
aði. Í kjölfar kjarasamninganna
hafi mátt greina töluvert bakslag
í hlutfallsaukningu starfandi fólks
á vinnumarkaði.
„Til að mynda hafði hlutfallið
hækkað um 0,4 prósentu-
stig á fjórða ársfjórðungi
2010, miðað við þriðja árs-
fjórðung 2010, en aðeins
um 0,3 prósentustig ári
síðar. Þannig lækkaði hlut-
fall starfandi fólks nokk-
uð í kjölfar kjarasamning-
anna.“
Að baki kjarasamning-
unum árið 2011 eru sögð
hafa verið háleit mark-
mið þar sem blása átti til
sóknar í atvinnulífinu. „Samning-
arnir byggðu á forsendum sem
voru ef til vill full metnaðarfull-
ar miðað við þær efnahagslegu að-
stæður sem ríktu á þessum tíma
enda hefur meirihluti þeirra ekki
gengið eftir,“ segir í umfjöllun-
inni. „Í stað þess að tryggja stöð-
ugleika í efnahagslífinu þá fylgdu
samningunum vaxandi verðbólga
og bakslag í bata vinnumarkaðar.
Þannig varð raunverulegur ábati
launafólks langt frá því sem lagt
var upp með.“ Sagt er nauðsyn-
legt að í komandi kjarasamning-
um verði tekið tillit til þess hvaða
áhrif samningsgerðin kunni að
hafa á verðlag, verðbólguvænt-
ingar, vaxtastig og þróun vinnu-
markaðar.
Víti til varnaðar í
samningum frá 2011
Líkur eru sagðar á að launahækkanir sem samið var um til þriggja
ára 2011 hafi hamlað bata sem þá var hafinn á vinnumarkaði.
Greiningardeild Arion banka vill að litið verði til reynslunnar.
Actavis plc, móðurfélag Ac-
tavis á Íslandi, hagnaðist um
65,6 milljónir bandaríkjadala á
þriðja ársfjórðungi samkvæmt
árshlutauppgjöri sem birt var í
Kauphöllinni í New York í gær.
Upphæðin samsvarar 7,9 millj-
örðum króna. Um er að ræða
14,5 prósenta samdrátt á milli
ára, en fyrirtækið hagnaðist um
76,7 milljónir dala á sama tíma-
bili í fyrra.
Tekjur félagsins eru í tilkynn-
ingu sagðar hafa aukist um 57
prósent og hafi numið 2,01 millj-
arði dala samanborið við 1,29
milljarða á þriðja fjórðungi 2012.
„Hagnaður á hlut á þriðja árs-
fjórðungi 2013 jókst um 55 prósent
í 2,09 dali samanborið við 1,35 dali
á þriðja ársfjórðungi í fyrra.“ Nið-
urstöðurnar eru sagðar án áhrifa
kaupa Actavis á Warner Chilcott
1. október síðastliðinn.
H a g n a ð u r á n a f s k r i f t a
(EBITDA) jókst um 61 prósent
og nam 489,2 milljónum dala á
þriðja fjórðungi samanborið við
304,6 milljónir á sama tíma 2012.
- óká
NOTAÐ TÖFLUBRÉF Actavis áætlar að
tekjur fyrir 2013 nemi um 8,6 milljörðum
bandaríkjadala og hagnaður á hlut verði
9,26 til 9,39 dalir. Fréttablaðið/ÓKÁ
Hagnaður Actavis á þriðja ársfjórðungi nam 65,6 milljónum dala eða 7,9 milljörðum króna:
Tekjuauki nemur 57 prósentum
Flugfélagið WOW air tók form-
lega við flugrekstrarleyfi frá Sam-
göngustofu í gær. Um 30 ár eru frá
því að slíkt leyfi var veitt félagi
sem stundar áætlunarflug til og
frá Íslandi.
WOW lítur á leyfið sem lið í
að styrkja og byggja upp rekst-
ur félagsins. Lykilatriði sé fyrir
áframhaldandi vöxt að fljúga undir
eigin flaggi. Fyrsta flugið undir
merkjum WOW air var til Kaup-
mannahafnar í morgun. - skó
WOW fær flugrekstrarleyfi:
Fljúga undir
eigin flaggi
Á LEIÐ Í LOFTIÐ Wow er nú formlega
orðið flugfélag. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
EFNAHAGSMÁL
Óli Kristján Ármannsson | olikr@frettabladid.is
GLEÐI 2011
Vilhjálmur Egilsson sem
þá var hjá Samtökum
atvinnulífsins og Gylfi
Arnbjörnsson hjá ASÍ
féllust í faðma þegar
samningar voru í höfn í
maí 2011.
Fréttablaðið/Anton