Fréttablaðið - 30.10.2013, Page 20
| 4 30. október 2013 | miðvikudagur
Róbert Guðfinnsson, athafnamað-
ur og Siglfirðingur, á stóran þátt í
þeirri miklu uppbyggingu sem nú
stendur yfir á Siglufirði í tengslum
við ferðaþjónustu, afþreyingu og
rannsóknir í líftækni.
Róbert hefur í gegnum félagið
Rauðku ehf. breytt gömlum fisk-
vinnsluhúsum við smábátahöfnina
á Siglufirði í veitingahús, kaffihús,
skemmtistað og gallerí.
Félagið ætlar einnig að opna
nýtt 68 herbergja hótel í bænum
og vinnur nú með sveitarfélaginu
Fjallabyggð að uppbyggingu níu
holu golfvallar.
Líftæknifyrirtækið Genís hf.,
sem er að mestu í eigu fjárfesta
sem tengjast Róberti, er síðan að
byggja nýja líftækniverksmiðju
í bænum við hliðina á veitinga-
rekstri Rauðku.
Fjárfestingar í tengslum við
þessi verkefni sem Róbert er
aðili að nema að hans sögn meira
en þremur milljörðum íslenskra
króna.
Vildi skapa nýjar tekjur og störf
„Þegar umræðan um Héðinsfjarð-
argöng fór af stað rétt eftir alda-
mótin sá maður fram á að hlutirn-
ir gætu breyst á Siglufirði en ára-
tugina á undan hafði verið eilíf
barátta við að halda fólki í samfé-
laginu,“ segir Róbert, spurður um
hvernig það kom til að hann fór
að fjárfesta í ferðaþjónustu og líf-
tækni á Siglufirði.
„Ég var á þeim tíma einn af
stjórnendum og eigendum sjáv-
arútvegsfyrirtækisins Þormóðs
Ramma og horfði upp á það hvern-
ig tæknivæðing og hagræðing í
sjávarútvegi leiddu til fækkunar
starfa og einhæfs atvinnulífs. Þá
leituðu menn eftir nýjum tækifær-
um til uppbyggingar og hvernig
hægt væri að skapa nýjar tekjur
og störf,“ segir Róbert.
Hann segir að þessar vanga-
veltur hafi meðal annars leitt til
þess að Þormóður Rammi ákvað
að stofna fyrirtækið Primex sem
vinnur efnið kítín úr rækjuskel.
„Þegar ég lét af störfum og seldi
minn hlut í Ramma árið 2005 þá
keyptum við félagi minn, Vilhelm
Már Guðmundsson, ásamt Nýsköp-
unarsjóði, rannsóknar- og þróun-
ardeildina út úr Primex. Sú eining
heitir í dag Genís hf.“
Í dag starfa fjórir starfsmenn
Genís í lítilli þróunarverksmiðju
fyrirtækisins á Siglufirði. Áform
eru um byggingu stærri verk-
smiðju á næstu árum.
„Við uppbyggingu Genís á Siglu-
firði mun störfum fyrir háskóla-
menntað fólk fjölga. Það er gríð-
arlega mikilvægt fyrir bæinn því
störf í svona samfélögum eiga til
að vera einhæf.“
Keypti gömul fiskverkunarhús
Sex ár eru liðin frá því að Róbert
fór fyrst að fjárfesta í verkefnum
tengdum ferðaþjónustu á Siglu-
firði. Þá ákvað hann að kaupa
gömul fiskverkunarhús í kring-
um smábátahöfnina í bænum.
„Ég hef lengi unnið að verkefn-
um erlendis og á ferðum mínum
hef ég skoðað mikið af smábáta-
höfnum sem áður voru gamlar
fiskihafnir en var breytt í ferða-
mannastaði. Því spurði ég sjálf-
an mig þeirrar spurningar hvort
það væri ekki alveg eins hægt að
byggja upp slík verkefni á stað
eins og Siglufirði. Við ákváðum
því strax í byrjun að gera smábáta-
höfnina í bænum að hjarta verk-
efnisins,“ segir Róbert.
Við norðanverða smábátahöfn-
ina standa nú veitingahús, kaffi-
hús, skemmtistaður og gallerí
Rauðku og við austanverða höfn-
ina stendur áðurnefnd verksmiðja
Genís.
„Við sunnanverða höfnina ætlum
við síðan að byggja 68 herbergja
hótel sem verður þrjú þúsund fer-
metrar að stærð og verður tekið í
notkun vorið 2015. Hótelið hefur
fengið nafnið Hótel Sunna, til heið-
urs gamalli síldarverkunarstöð
sem stóð áður á þessum reit,“ segir
Róbert og bætir því við að öll hús
Rauðku, þar með talið hótelið, séu
hönnuð í gömlum stíl til að falla
vel inn í umhverfið.
Helmingur hótelsins verður að
sögn Róbers byggður á landfyll-
ingu.
„Það var ekki gert vegna þess að
það væri skortur á landi á Siglu-
firði. Ástæðan er sú að hótel-
ið verður byggt þannig að útsýni
verður yfir bátahafnir úr öllum
herbergjum þess. Landfyllingin er
nú að síga og um leið og hún verð-
ur tilbúin, og þegar veður leyfir,
þá munum við hefja framkvæmd-
ir við hótelið.“
Mikil tækifæri á landsbyggðinni
Sveitarfélagið Fjallabyggð og
Rauðka stofnuðu á síðasta ári
sjálfseignarfélagið Leyningsás
sem stendur að uppbyggingu á
nýjum níu holu golfvelli og skíða-
svæðinu á Siglufirði.
„Þessi verkefni eru nauðsyn-
leg til að fá aukna breidd í ferða-
þjónustuna og gera þetta samfé-
lag meira aðlaðandi fyrir ungt
fólk sem velur Siglufjörð til fram-
tíðarbúsetu. Við sömdum því við
sveitarfélagið um að setja eign-
ir skíðasvæðisins inn í sjálfseign-
arfélag þar sem skíðasvæðið yrði
byggt enn frekar upp og byggður
yrði nýr níu holu golfvöllur. Þessi
verkefni voru sett inn í sjálfseign-
arfélag því við lögðum félaginu til
loforð um 300 milljónir króna og
þetta félag er að fullu í eigu sam-
félagsins,“ segir Róbert.
Hann segir það sína skoð-
un að tækifæri í fjárfestingum
í tengslum við ferðaþjónustu á
landsbyggðinni hafi ekki fengið
verðskuldaða athygli.
„Ég tel að fjölgun erlendra
ferðamanna sé eitt af stærstu
tækifærum landsbyggðarinn-
ar til að ná vopnum sínum aftur.
Reykjavíkursvæðið og Gullfoss
og Geysir taka ekki við einni og
hálfri milljón ferðamanna á ári á
næstu tíu árum eins og nýjustu
spár gera ráð fyrir. Því mega
þessi samfélög úti á landi ekki
vera íhaldssöm og blinduð af for-
tíðarhyggju heldur verða þau
að nýta tækifærin og einkafjár-
magnið verður einnig að skynja
þessi tækifæri úti á landi,“ segir
Róbert að lokum.
Smábátahöfnin hjarta verkefnisins
Fjárfestingar í tengslum við verkefni athafnamannsins Róberts Guðfinnssonar á Siglufirði nema meira en þrem-
ur milljörðum íslenskra króna. Þar á meðal eru framkvæmdir við nýtt 68 herbergja hótel, líftækniverksmiðju og
nýjan níu holu golfvöll. Róbert segir fjölgun erlendra ferðamanna fela í sér mikil tækifæri fyrir landsbyggðina.
SIGLFIRÐINGUR Róbert Guðfinnsson segir mikilvægt að fjölga störfum fyrir
háskólamenntað fólki á Siglufirði. Fréttablaðið/Arnþór
FJÁRFESTA Í FERÐAÞJÓNUSTU Við smábátahöfnina á Siglufirði standa nú veitingahús, kaffihús, skemmtistaður og gallerí Rauðku. Líftæknifyrirtækið Genís er einnig með aðstöðu þar og nýtt hótel bætist í hópinn vorið 2015.
Fréttablaðið/Stefán.
VIÐTAL
Haraldur Guðmundsson | haraldur@frettabladid.is
Sveitarfélagið Fjallabyggð hefur að undanförnu fjárfest
í mikilvægum innviðum á Siglufirði eins og skólamann-
virkjum, þjónustubyggingum og bættri hafnaraðstöðu.
Að auki hefur þurft að bæta stoðvirki fyrir snjóflóðavarnir
í fjallinu Hafnarhyrnu fyrir ofan Siglufjörð.
Sigurður Valur Ásbjarnarson, bæjarstjóri Fjallabyggðar,
segir að nóg sé til af húsnæði í bænum þrátt fyrir að
mörg hús hafi á undanförnum árum verið keypt og
notuð sem sumarhús.
„Hér voru áður hátt í fimm þúsund íbúar en við erum
nú um ellefu hundruð. Þegar þeim sem sem eiga hús-
næði hér í bænum og nota það sem sumarhús fór að fjölga þá fylgdu því
auknar tekjur í gegnum fasteignaskatta en það hefði mátt vera meiri fjölgun
í bænum svo hér væru fleiri útsvarsgreiðendur. En við skulum vona að það
sé næsta skrefið og að öll þessi verkefni sem nú eru í deiglunni komi til
með að stuðla að framþróun byggðarinnar,“ segir Sigurður.
NÓG TIL AF HÚSNÆÐI Á SIGLUFIRÐI
SIGURÐUR VALUR
ÁSBJARNARSON