Fréttablaðið - 30.10.2013, Page 24
KYNNING − AUGLÝSINGBílaleigur MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 20132
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000
Umsjónarmenn auglýsinga: Sverrir Birgir Sverrisson, s. 512-5432, sverrirbs@365.is
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Fólk sem leigir raf bíla af Enterprise Holdings Inc., sem er stærst á bandarísk-
um bílaleigumarkaði, skilar þeim
fljótlega og skiptir þeim út fyrir
bensínbíla. Frá þessu greinir
Bloom berg-fréttaveitan. „Margir
eru tilbúnir til að prófa rafbílana
en flestir bakka út úr samningun-
um eftir stuttan tíma,“ segir tals-
maður Enterprise. Helsta ástæða
er er óttinn við að drægi bílsins
nægi ekki til að koma honum á
milli hleðslustöðva.
Lítil eftirspurn
Hjá Enterprise leigja viðskiptavin-
ir rafbíla að meðaltali í 1,6 daga en
hefðbundna bíla í sex til sjö daga.
Fyrirtækið er með um 300 rafbíla á
sínum snærum sem er 40 prósent
færra en ætlunin var að bjóða upp
á árið 2010. Fyrirtækið Hertz Glo-
bal Holdings Inc. tilkynnti árið
2010 að það ætlaði að vera með
500 til 1.000 rafbíla í flota sínum
árið 2011. Því markmiði hefur ekki
verið náð enn vegna lélegrar eftir-
spurnar.
Tvinnbílar vinsælli
Auðveldara hefur verið að kynna
og leigja út tvinnbíla, blendinga af
raf- og bensínbílum, þar sem þeir
líkjast fremur hefðbundnum bif-
reiðum. Enterprise er til að mynda
með 11 þúsund tvinnbíla á sínum
snærum. „Fólk á auðveldara með
að skilja tvinnbílana og hræðslan
við drægið er ekki til staðar,“ segir
talsmaður bílaleigufyrirtækis.
Rafbílavæðing í uppnámi
Takmarkað drægi hefur hamlað
eftirspurn eftir rafbílum í Banda-
ríkjunum, bæði hjá bílaleigum og
í almennri sölu.
Nú eru um 140 þúsund rafbílar
á bandarískum vegum en opin-
ber stefna Baracks Obama Banda-
ríkjaforseta var að árið 2015 yrðu
milljón rafbílar í landinu. Þessi
seinkun á rafbílavæðingu hefur
sömuleiðis áhrif á mengunar-
varnir þar sem bílaumferð veld-
ur þriðjungi af koltvísýringslosun
landsins.
Tesla dregur lengst en kostar mikið
Hertz bætti nýlega Tesla-bílum við
flotann á tveimur stöðum, í Los
Angeles og San Francisco, sem
hluta af Draumabílaverkefninu
sem einnig inniheldur Ferrari-
og Viper-sportbíla. Tesla hefur
lengst drægi rafbíla á markaði –
Tesla Model S kemst lengst 483
kílómetra en flestir rafbílar missa
kraftinn eftir 160 km. Leiga á slík-
um bíl er há en bíll frá Tesla kostar
60 þúsund krónur á dag hjá Hertz
en 35 til 60 þúsund krónur hjá En-
terprise. Til samanburðar kost-
ar 7 til 15 þúsund krónur á dag að
leigja Nissan Leaf.
Einstök upplifun
Verðið á leigunni á Teslu bend-
ir til að fólk líti oft á það sem ein-
staka upplifun að fá að prófa raf-
bíla frekar en að það telji þá henta
til daglegra nota. Forsvarsmenn
bílaleigufyrirtækjanna telja að
rafbílar verði ekki vinsælir fyrr
en búið sé að auka drægi þeirra,
þeir verði á viðráðanlegu verði
auk þess sem setja þurfi upp fleiri
hleðslustöðvar um land allt.
Treysta ekki drægi rafbíla
Rafbílar hafa ekki náð þeim vinsældum sem bílaleigubílar í Bandaríkjunum sem sumir hefðu haldið og kosið. Meginástæðan er sú
að þeir sem leigja bíla treysta því ekki að komast á áfangastað vegna lélegs drægis batteríanna.
Tesla Model S hefur gott drægi en hins
vegar kostar morð fjár að leigja slíkan bíl
í Bandaríkjunum, allt frá 35 til 60 þúsund
krónur á dag.
NORDICPHOTOS/GETTY
Rafbílar hafa ekki náð miklum vinsældum sem bílaleigubílar í Bandaríkjunum. Ástæðan er lélegt drægi þeirra og fáar hleðslustöðvar.
NORDICPHOTOS/GETTY
Gott að hafa í huga
1. Gerðu létta athugun
á netinu
Skoðaðu ferðasíður og fáðu tilfinningu
fyrir þeim mögleikum sem eru í boði
áður en þú skoðar heimasíður bílaleig-
anna sjálfra.
2. Taktu allt með í
reikninginn
Áður en þú hrósar happi yfir verði
skaltu skoða það sem þú gætir þurft
að borga aukalega fyrir og meta hvað
þú raunverulega hefur þörf fyrir. Er til
dæmis nauðsynlegt að bóka auka bíl-
stjóra?
3. Þefaðu uppi tilboð
Hafðu augun opin fyrir helgartilboðum og sérstökum afsláttardögum í
miðri viku.
4. Veldu minni bíl
Athugaðu vandlega hvort þörf sé á stórum bíl í ferðina. Minnstu bílarnir
eru yfirleitt ódýrastir.
5. Hafðu á hreinu hvert má aka
Ef ætlunin er að aka yfir landamæri í ferðinni er vert að athuga hvort
einhverjar takmarkanir eru á því í samningnum, til að forðast óvæntan
kostnað.
6. Er þörf á sérstakri tryggingu aukalega?
Athugaðu hvaða tryggingar þú ert þegar með gegnum kreditkortið þitt
og hvort þær bifreiðatryggingar sem þú ert með dekka jafnvel það sem
þarf við leigu á bíl.
7. Fylltu tankinn
Það getur verið ódýrara að fylla á bílinn á bensínstöð en greiða fyrir bensín
á bílaleigunni. Ekki gleyma að fylla á tankinn áður en bílnum er skilað.
8. Á réttum tíma
Skipuleggðu ferðalagið vel svo þú skilir bílnum á tilsettum tíma. Í mörgum
tilfellum gæti talsverður kostnaður bæst við ef bílnum er skilað of seint.
Þetta er eitt af því sem gott er að hafa á hreinu í upphafi ferðar.
9. Slepptu flugvallargjaldinu
Hugsanlega fylgja aukaleg gjöld því að leigja bíl á flugvelli. Það gæti
borgað sig að leigja bílinn frekar á bílaleigu í bænum ef það passar inn í
ferðaáætlunina.
10. Eigin aukabúnaður
Ef börnin eru með í ferðinni gæti borgað sig að taka eigin bílstól með og
sleppa þannig við að leigja hann með bílnum.
heimild: www.today.is
KAGGINN BÍÐUR
Í HÖRPUNNI
Smelltu á vefinn og skoðaðu alla hina kaggana
sem eru til leigu og fáðu kannski díl líka.
WWW.GEYSIR.IS
SÍMI: 893 44 55