Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.10.2013, Qupperneq 27

Fréttablaðið - 30.10.2013, Qupperneq 27
365 MIÐLAR | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Jónas Unnarsson Ellen Pompeo, aðalsöguhetja Gray‘s Anatomy, hefur leikið Meredith í yfi r 200 þáttum. Í nýlegu viðtali við New York Post greindi hún frá því að höfundur þátt- anna, Shonda Rhimes, hefði upphafl ega ætlað leikar- anum Isaiah Washington að leika ástmög hennar, Derek Shephard. „Þau vildu að Washington léki kærastann minn en Shondu var mjög í mun að koma svörtum manni að. Mér fannst það ekki nógu góð hug- mynd og vildi ekki fá hann sem mótleikara, fannst það of líkt raunveruleikanum,“ sagði Pompeo í viðtalinu en leikkonan er gift tónlistarframleiðandanum Chris Ivery, sem er svartur. „Ég sagðist heldur vilja Dempsey- gaurinn.“ Pompeo fékk sínu framgengt og Washington fékk í staðinn hlutverk Peter Burke. Þessi stöðulækkun fór ekki vel í Washington að sögn Pompeo. Leikarinn var síðar látinn taka poka sinn vegna fordómafullra um- mæla hans um samleikara sinn T.R. Knight. Þó Pompeo hafi ekki viljað endurspegla eigið líf með því að eiga svartan elskhuga í þáttunum má segja að nýtt hlutverk Meredith sem móður dragi dám af hennar eigin lífi . Í þáttunum á Meredith Zolu, fjögurra ára ætt- leidda svarta dóttur, og í raunveruleikanum á hún dótt- urina Stellu á svipuðum aldri. VILDI EKKI WASHINGTON Ellen Pompeo með eiginmanni sínum, tónlistarframleiðandanum Chris Ivery. Pompeo með dóttur sína, Stellu. NORDICPHOTOS/GETTY Ellen Pompeo sem leikur Meredith í Gray‘s Anatomy sagði frá því nýverið að hún hefði kosið Dempsey fram yfir Washington þegar kom að vali á mótleikara. Lokaþáttur Mistresses fer í loftið í kvöld. Á nýja árinu er von á nýrri þáttaröð sem sýnd verður á Stöð 2 strax í kjölfar frumsýningar þáttanna á ABC- sjónvarpsstöðinni vestra. Söguþráðurinn spinnst um vin- kvennahóp sem fl æktur er í óuppbyggileg og á stundum harðbönnuð ástarsambönd og glímir við framhjáhöld, elti- hrella, afturgöngur og fl eira sem rígheldur áhorfendum. Þokkagyðjan Alyssa Milano fer með aðalhlutverkið, lög- fræðinginn Savi sem í byrjun þáttanna lenti í einnar nætur gamni með vinnufélaga og þarf að takast á við eftirmál þess. „Endalokin verða tvísýn en ýmsum spurningum svarað, eins og því hver barnsfaðir Savi er,“ segir Alyssa sem verður gest- gjafi í stjörnuútgáfu Project Runway á milli þáttaraða. „Ég vona að Savi nái áttum í næstu þáttaröð og fyrirgefi sjálfri sér öll mistökin. Þeir sem vilja komast á bragðið ættu að horfa á síðasta þáttinn því frillurnar eru heillandi kvensur á sérstökum stað í lífi nu og framhaldið verður krassandi.“ FRILLURNAR SNÚA AFTUR Stöð 2 hefur sýningar á þáttaröðinni World Without End á mánudagskvöld. Þættirnir eru byggðir á samnefndri metsölubók eftir Ken Follett og eru sjálfstætt framhald þáttaraðar- innar Pillars of the Earth sem sýnd var á Stöð 2 sl. vetur. Follett styðst við sögulegar stað- reyndir og spinnur í kringum þær magnaða sögu um völd og baráttu, trú og ást. Hann notar tvo sögulega viðburði, upphaf hundrað ára stríðsins sem Bretar háðu við Frakka og svartadauða, sem var einn skæðasti heims- faraldur sögunnar og náði hámarki í Evrópu um miðja 14. öld. Meðal leikenda eru Cynthia Nixon (Sex and the City), Ben Chaplin, Peter Firth og Miranda Richardson. Leikstjóri er Michael Caton-Jones sem m.a. leikstýrði stórmyndinni Rob Roy. STÓRBROTIN SAGA WORLD WITHOUT END Hefst á mánudag kl. 22.35 MISTRESSES Í kvöld kl. 21.40

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.