Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.11.2013, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 26.11.2013, Qupperneq 4
26. nóvember 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 4 AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundur@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is SVONA ERUM VIÐ Elísabet Margeirsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá Fimmtudagur 5-13 m/s. ROK OG RIGNING Bætir heldur í vindinn er líður á daginn og má búast við hvassviðri eða stormi og mikilli úrkomu um tíma í dag, einkum á vestanverðu landinu. Milt í veðri en kólnandi á morgun með minnkandi vindi og éljum. 9° 15 m/s 9° 16 m/s 10° 15 m/s 10° 17 m/s Á morgun 8-18 m/s. Gildistími korta er um hádegi 4° 2° 3° -2° 0° Alicante Basel Berlín 15° 5° 3° Billund Frankfurt Friedrichshafen 4° 4° 2° Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas 4° 4° 21° London Mallorca New York 6° 15° 10° Orlando Ósló París 25° -2° 5° San Francisco Stokkhólmur 16° 3° 8° 10 m/s 9° 15 m/s 9° 10 m/s 7° 11 m/s 10° 11 m/s 10° 13 m/s 6° 15 m/s 5° 2° 5° 4° 3° ATVINNULÍFIÐ Þangslætti hjá Þör- ungaverksmiðjunni á Reykhólum er nú lokið á þessari vertíð. Alls voru slegin 14.000 tonn af þara á vertíðinni og framundan næstu mánuði er mjölvinnsla úr hrossa- þara. Öll framleiðsla verksmiðjunnar er seld fyrirfram og er meiri eftir- spurn en unnt er að anna. Munu markaðir eins og Japan, Indland og Suður-Afríka, sem lokuðust í kreppunni, vera smám saman að taka við sér á ný. Í tilkynningu segir Garðar Jónsson, starfandi framkvæmda- stjóri Þörungaverksmiðjunnar, að afkoma vertíðarinnar sé vel við- unandi þrátt fyrir að hvorki væri slegið né framleitt mjöl í fjórar vikur í sumar vegna viðhalds. Fjárfest var fyrir nærri 100 millj- ónir króna í verksmiðjunni á þessu ári. Meðal annars var keyptur nýr stjórnbúnaður og rafkerfi endur- nýjað. Þá var fjárfest í verkefn- um sem lúta að öryggis-, gæða- og umhverfiskröfum. - skó Vertíð hjá Þörungaverksmiðjunni á Reykhólum lengri vegna góðs tíðarfars: Lokaðir markaðir að opnast SÍÐUSTU ÞANGPOKARNIR Hér er verið að landa síðustu þangpokum vertíðarinnar. MYND/ÞÖRUNGAVERKSMIÐJAN JÓL Jólablaðið 2013 fylgir Frétta- blaðinu í dag. Í blaðinu, sem er 120 síður, er að finna fjölda girni- legra uppskrifta, viðtöl við áhuga- vert fólk og hugmyndir að ýmsu jólaföndri og -skrauti. Meðal efnis má nefna Jólaspil sem fjölskyldan getur spilað í aðdraganda jóla, viðtal við Agnesi M. Sigurðardóttur biskup og umfjöllun um jólasiði til forna og jólahald þriggja hettumunka sem búa í Reyðarfirði. Þá eru gefnar fjölbreyttar upp- skriftir að aðalréttum, eftirrétt- um og meðlæti, til dæmis dýrindis súkkulaðisósu sem nota má með dádýrssteik eða annarri villibráð. Jólablað Fréttablaðsins 2013: Uppskriftir, við- töl og jólaskraut JÓLIN 2013 Jólablað Fréttablaðsins er troðfullt af skemmtilegu efni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI SJÁVARÚTVEGUR Niðurstöður liggja nú fyrir úr haustralli Haf- rannsóknastofnunar Íslands. Meðal niðurstaðna var að heildar- vísitala þorsks mældist sú hæsta frá 1996 þegar farið var í fyrstu stofnmælinguna að haustlagi. Sú hækkun er í góðu samræmi við stofnmat sem gert var í vor. Einn- ig kom fram að meira er af þorski sem lengri en 80 sm. Stofnvísitala ýsu hækkaði nú frá síðasta ári og er nú svipuð og árið 2009. - skó Haustralli Hafró lokið: Þorskstofninn aldrei sterkari FÓLK Kristrún Heimisdóttir, lektor við Háskólann á Akureyri, hefur verið ráðin fram- kvæmdastjóri Samtaka iðnað- arins. Hún hefur áður starfað hjá SI og var lög- fræðingur sam- takanna í tæp fimm ár. Var hún valin í starf- ið úr hópi 45 umsækjenda. Kristrún segist í tilkynningu frá SA vera full tilhlökkunar. Hennar fyrsta verk verður að heimsækja sem flest fyrirtæki til að heyra sjónarmið þeirra. - skó Nýr framkvæmdastjóri SI: Kristrún ráðin KRISTRÚN HEIMISDÓTTIR SVEITARSTJÓRNIR Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar ákvað í síðustu viku að endurskoða áformaðar breytingar á þjónustugjaldskrám sem taka áttu gildi um næstu ára- mót. „Með þessari ákvörðun vill sveitarstjórn leggja af mörkum til að sporna við verðbólgu og auka kaupmátt komandi kjarasamninga. Sveitarstjórn telur að allir verði að bera sameiginlega ábyrgð og vinna saman að því markmiði,“ segir í samþykkt sveitarstjórnar- innar. - gar Dalvík endurskoðar hækkun: Vilja sporna við verðbólgunni FJARSKIPTI Bjóða út ljósleiðara Bæjarráð Snæfellsbæjar hefur sam- þykkt að heimila útboð um ljósleið- araverkefni. Um er að ræða sam- starfsverkefni þriggja sveitarfélaga á svæðinu. Kynna á sveitarfélögum niðurstöður útboðs og hvort eða hversu mikið fjármagn þurfi frá hverju sveitarfélagi til framkvæmdanna. KJARAMÁL Forystufólk Alþýðusam- bands Íslands og Samtaka atvinnu- lífsins hélt fund um komandi kjarasaminga með ríkissáttasemj- ara í gær. Rætt var um svigrúm til launahækkana og mikilvægi aðhaldssemi í verðlagsákvörðunum ríkis, sveitarfélaga og fyrirtækja. Viðræðunefnd SA og ASÍ hittist á óformlegum fundi til þess að ræða vinnuáætlun viðræðnanna. Ákveð- ið var að nefndin hittist aftur í dag. „Þetta var ágætt upphaf en það er alveg ljóst að mat manna á stöð- unni er mjög misjafnt,“ segir Þor- steinn Víglundsson, framkvæmda- stjóri Samtaka atvinnulífsins. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir samtökin ekki hafa sett fram kröfur um launaliðinn á þessari stundu en markmiðið með fund- inum hafi verið að átta sig á stöð- unni. Tímarammi viðræðnanna hefur ekki verið settur, en aðilar höfðu áður sett sér sameiginlegt mark- mið um að ljúka viðræðum fyrir lok samningstímans, sem lýkur 30. nóvember næstkomandi. „Það er ótímabært að segja til um það hversu langan tíma þetta mun taka, en það er ljóst að þetta verður mikið verkefni. Í okkar huga er mikilvægara að ná góðri niðurstöðu, þótt það taki tíma,“ segir Þorsteinn, en bætir því við að viðræðurnar séu komnar á fulla ferð og að það muni ekki standa á þeim að vinna eins hratt og kost- ur er. Á fundinum voru launahækk- anir ræddar í þaula og segir Þor- steinn ljóst að aðilar leggi ólíkt mat á svigrúmið til hækkana. Mönnum beri þó saman um að svigrúmið sé ekki mikið. „Það er bara verkefni sem við vinnum úr í framhaldinu,“ segir Þorsteinn. Aðilar eru almennt sammála um að verðlagsþróun á samningstím- anum skipti sköpum um trúverðug- leika kjarasamninga. Verðlags- ákvarðanir ríkis, sveitarfélaga og fyrirtækja skipti höfuðmáli og því mikilvægt að þessir aðilar sýni aðhaldssemi í þeim efnum. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir nauðsynlegt að ræða hvernig fyrirtækin komi til móts við laun- þega með verðlækkunum. Mörg sveitarfélög hafi hlýtt kalli Reykja- víkurborgar um verðskrárlækkan- ir en ekkert hafi heyrst frá stærstu fyrirtækjum landsins. „Ætla þau að gefa út yfirlýsingu um að þau ætli ekki að velta launahækkun- um út í verðlag?“ spyr Gylfi. „Þau gætu lýst því yfir hvert fyrir sig. Það yrði gott innlegg í þessa veg- ferð,“ segir hann. eva@frettabladid.is Svigrúmið til launa- hækkana ekki mikið Viðræðunefnd SA og ASÍ hittist á óformlegum fundi með ríkissáttasemjara. Engar kröfur hafa verið settar fram, en ljóst að mat á svigrúmi til launahækkana er ólíkt. Forseti ASÍ kallar eftir yfirlýsingu um verðlagshækkanir frá fyrirtækjum landsins. KJARAVIÐRÆÐUR Viðræðunefnd ASÍ og SA hittist á óformlegum fundi með ríkis- sáttasemjara. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Þetta var ágætt upp- haf en það er alveg ljóst að mat manna á stöðunni er mjög misjafnt. Þorsteinn Víglundsson, framkvæmda- stjóri Samtaka atvinnulífsins 1.112 gjaldþrot voru skráð hér á landi árið 2012. Þeim fækkaði þá um tæp 30% frá árinu áður. Flest gjaldþrot voru í byggingarstarf- semi og mannvirkjagerð. LEIÐRÉTT Litir víxluðust í grafík sem fylgdi frétt um könnun á afstöðu fólks til inngöngu í Evrópusambandið í Fréttablaðinu í gær. Eins og fram kom í texta fréttar- innar eru 58,3 prósent á móti aðild en 41,7 prósent fylgjandi aðild.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.