Fréttablaðið - 26.11.2013, Síða 10
26. nóvember 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR |
PIPA
R
\
TBW
A
SÍA
1334
55
miðvikudaginn 27. nóvember kl. 16.00–17.30 í sal 104 á Háskólatorgi.
Big Data – ógrynni gagna.
Ávinningur eða kostnaður?
Dagskrá:
Setning fundar
Dr. Guðmundur Freyr Úlfarsson, prófessor og formaður stjórnar
Verkfræðistofnunar Háskóla Íslands.
Big Data – Status Quo & Trends
Dr. Morris Riedel, Head of Research Group for High Productivity
Data Processing, Jülich Supercomputing Centre (JSC), Þýskalandi.
Erindi dr. Riedel verður flutt á ensku.
Hagnýting gagna og greininga á Íslandi
Hr. Brynjólfur Borgar Jónsson, M.Sc., ráðgjafi hjá Capacent.
Léttar veitingar.
Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
Dr. Morris Riedel
Ársfundur Verkfræðistofnunar Háskóla Íslands
EFNAHAGSMÁL Ríflega sex millj-
arða skattafsláttur ríkisins vegna
vistvæns eldsneytis mun ekki skila
sér í lægra bensínverði í nánustu
framtíð. Þvert á móti gæti elds-
neytisverð hækkað. Milljarðarnir
sex munu að stærstum hluta fara
úr landi til erlendra birgja.
Um áramót taka gildi ný elds-
neytislög sem kveða á um að sölu-
aðilum eldsneytis beri að tryggja
að að minnsta kosti þrjú og hálft
prósent seldrar orku verði af end-
urnýjanlegum uppruna. Um þar-
næstu áramót hækkar þessi tala
upp í 5 prósent. Lögin eru sam-
kvæmt tilskipun frá Evrópusam-
bandinu en þar er ætlast til að 10
prósenta markinu verði náð 2020.
Í raun hefði Ísland því ekki þurft
að gera neitt í þessum efnum fyrr
en eftir sex ár. Ríkið fellir niður
olíugjald á endurnýjanlegt elds-
neyti og verður af þeim sökum af
um 800 milljónum króna á næsta
ári og 1.100 milljónum króna á
hverju ári eftir það. Það mun hins
vegar ekki skila sér til neytenda í
formi lægra eldsneytisverðs.
„Nei, við gerum ekki ráð fyrir
því að eldsneytisverð muni lækka
þar sem þessir orkugjafar sem
þarf að flytja inn, þetta lífræna
eldsneyti, það er mun dýrara
en það eldsneyti sem við selj-
um í dag,“ segir Guðrún Ragna
Garðars dóttir, framkvæmdastjóri
Atlantsolíu.
Undir orð Guðrúnar tekur Jón
Ólafur Halldórsson, framkvæmda-
stjóri sölusviðs hjá Olíuverslun
Íslands.
En ef olíufyrirtækin sjá ekki
hagnaðinn af 800 milljóna króna
afslætti og ekki heldur neytendur,
hvert fara þá þessi peningar? „Til
þeirra erlendu birgja sem munu
selja okkur lífdísilolíu annars
vegar og etanól hins vegar,“ segir
Guðrún Ragna.
Eitt af meginmarkmiðum lag-
anna er að draga úr kaupum olíu-
félaganna á eldsneyti erlendis og
um leið auka innlenda framleiðslu
á þessu sviði. Hvorugt virðist hins
vegar ætla að ganga eftir.
„Því miður er staðan bara sú að
innlend framleiðsla er ekki á því
stigi að við getum nýtt okkur hana
og það er töluvert langt í það.“ - hh
Sex milljarða skattaafsláttur nær ekki til neytenda:
Afsláttur að mestu
til erlendra birgja
ELDSNEYTISVERÐ ÓBREYTT Ný eldsneytislög sem taka gildi um áramót hefðu
ekki þurft að taka gildi fyrr en eftir sex ár en kosta ríkið um það bil sex milljarða í
skatttekjur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Rannsóknir á orku
og umhverfi
Orkurannsóknasjóður Landsvirkjunar styrkir margvíslegar
rannsóknir á sviði umhverfis- og orkumála.
Opinn kynningarfundur á verkefnum sem sjóðurinn hefur
styrkt verður haldinn fimmtudaginn 28. nóvember í sal
Þjóðminjasafnsins við Suðurgötu kl. 13 - 16.30.
Haldin verða átta erindi milli kl. 13
og 15. Að þeim loknum verða önnur
verkefni kynnt og boðið upp á
léttar veitingar.
Guðrún Gísladóttir
Þróun landvistkerfis í Húnavatns-
sýslum síðustu árþúsundir.
Tómas Jóhannesson
Mælingar á yfirborði og yfirborðs-
breytingum íslenskra jökla með
leysimælingum.
Fjóla Sigtryggsdóttir
Vöktun virkjunarlóna og stíflna.
Guðrún Marteinsdóttir
Vistfræðileg tengsl ferskvatns-
rennslis til sjávar og hrygningar
og klaks þorsks.
Sigurður Erlingsson
Metró - Athugun á gagnsemi lestar-
kerfa fyrir almenningssamgöngur á
höfuðborgarsvæðinu.
Stefán Arnórsson
Rætur háhitasvæða:
Lekt bergs, ummyndun og kvikugös -
jarðefnafræðileg athugun.
Snjólaug Ólafsdóttir
Örlög brennisteinsvetnis frá
jarðvarmavirkjunum.
Sigurður Brynjólfsson
Hreinsun á H2S og CO2 frá jarðvarma-
virkjunum í tveggja þrepa efnarafal
með rafsamruna og örverum.
Opnað verður fyrir umsóknir næsta
árs þann 30. nóv. nk.
AIRWAVES Á þremur af fjórum stöðum
sem Heilbrigðiseftirlitið heimsótti
þurftu tónleikahaldarar að lækka í græj-
unum. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
HEILBRIGÐISMÁL Of mikill hávaði
var á þremur tónleikastöðum
af fjórum sem Heilbrigðiseftir-
lit Reykjavíkur mældi á tónlist-
arhátíðinni Iceland Airwaves sem
haldin var í byrjun nóvember.
Fulltrúar á vegum Heilbrigðis-
eftirlitsins gerðu hljóðmælingar
með „nýjum Brüel & Kjær-hljóð-
mæli“ en samkomustöðum ber
að fara eftir viðmiðunarmörkum
sem gefin eru upp í reglugerð um
hávaða, að því er segir í tilkynn-
ingu frá eftirlitinu.
Staðir sem ætlaðir eru til tón-
leikahalds geta fengið heimild
fyrir meiri hávaða en aðrir stað-
ir, en þó skal jafngildishljóðstig
aldrei fara yfir 102 desibel.
„Á þeim stöðum þar sem hávaði
fór yfir viðmiðunarmörk var farið
fram á að dregið yrði úr hávaða
tafarlaust og í kjölfar eftirlits var
gerð krafa um að gerðar yrðu ráð-
stafanir til að hávaði innanhúss
verði framvegis ekki yfir leyfileg-
um mörkum,“ segir í tilkynningu
frá Heilbrigðiseftirlitinu. - kh
Mældu hávaða á Airwaves:
Létu lækka á
þremur stöðum