Fréttablaðið - 26.11.2013, Qupperneq 14
26. nóvember 2013 ÞRIÐJUDAGURSKOÐUN
HALLDÓR
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is HELGAREFNI: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is MENNING: Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is
DÆGURMÁL: Lilja Katrín Gunnarsdóttir liljakatrin@frettabladid.is VÍSIR: Kristján Hjálmarsson, kristjan@visir.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000
eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á
landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
ISSN 1670-3871
FRÁ DEGI
TIL DAGS
Friðrika
Benónýsdóttir
fridrikab@frettabladid.is
Þegar flóðbylgja sópaði burtu híbýl-
um milljóna manna í Suður-Asíu bentu
nokkrir spekingar á að hamfarir gætu
haft góð áhrif: Þær gætu orðið til að
átök á svæðinu vikju fyrir uppbygg-
ingu. Sumir héldu því fram eftir íslenska
bankahrunið að í því fælist líka stórkost-
legt tækifæri til að endurnýja stjórnmál
og stjórnsýslu, jafnvel sjálfa stjórnmála-
umræðuna í landinu.
Kannski hefur forsætisráherranum
verið hugsað til slíkra hamfara þegar
hann upplýsti fundarmenn á ráðstefnu
um orkumál á norðurslóðum í haust um
tækifærin sem loftslagsbreytingar skapa
í norðri: Vissulega eru fyrirséðar afleið-
ingar hlýnunar á heimsvísu hrikalegar,
en tækifæri okkar til að ná auðlindum úr
jörðu mega ekki spillast fyrir það.
Margt hefur orðið okkur Íslendingum
tækifæri gegnum tíðina: Tvær heims-
styrjaldir, kalda stríðið. Hvers vegna
ekki loftslagsbreytingar á sama hátt? Á
endanum erum við jú bara smáþjóð.
Í ræðu sinni á ráðstefnunni benti for-
sætisráðherra á að þetta kynni ef til vill
að hljóma eins og þversögn: Fyrst eru
allir sammála um að sjálfbærni eigi að
vera leiðarstefið á norðurslóðum. En svo
eiga allir að vera sammála um að pumpa
upp allri olíu, gasi og málmum sem þar
er að finna. Hvernig er hægt að vera
bæði sjálfbær og gjörnýta óendurnýjan-
legar auðlindir?
Jú, svarið er líklega það sama og við
spurningunni hvernig hægt sé að vera
giftur mörgum konum: Fyrst einni, svo
þeirri næstu. Þannig er hægt að vera
margkvæntur án þess að vera fjölkvæn-
ismaður. Þetta snýst jú á endanum um
tímasetningar. Raðkvæni er ekki fjöl-
kvæni.
Það kann að vera að tjón sé stundum
tækifæri, jafnvel að missa allt. En þetta
segir maður þó aðeins eftir að skaðinn er
skeður. Forsætisráðherra sjálfstæðs ríkis
sem hvetur til þess að stuðla fyrst að sem
mestu tjóni, telur tjónið geta verið tæki-
færi og bendir á að hægt sé að taka upp
sjálfbærni þegar engir aðrir kostir verða
eftir er annaðhvort óábyrgur eða hann
metur það svo að orð hans skipti engu
máli og að afstaða hans hafi hvorki áhrif
á skoðanir annarra né á gang mála. Ætli
maður verði ekki bara að vona að það síð-
ara eigi við um okkar mann?
Er tjón tækifæri?
UMHVERFIS-
MÁL
Jón
Ólafsson
prófessor við
Háskólann á Bifröst.
➜ Það kann að vera að tjón sé
stundum tækifæri, jafnvel að missa
allt. En þetta segir maður þó aðeins
eftir að skaðinn er skeður.
Möguleg viðbrögð
Stjórnarandstaðan brást ókvæða við
yfirlýsingum forsætisráðherra um
helgina um að hún myndi ekki hika
við að ljúga til að gagnrýna boðaðar
skuldatillögur ríkisstjórnarinnar sem
kynntar verða á föstudaginn. Árni
Páll Árnason, formaður Samfylkingar-
innar, sagði í fréttum Bylgjunnar í
gær að Sigmundur Davíð sæi óvini
í hverju horni og það væri áður
óséð að menn reyndu að þagga
niður viðbrögð við tillögum
sem ekki séu fram komnar.
Guðmundur Steingrímsson, for-
maður Bjartrar framtíðar, sagði
málflutninginn undarlegan
og að flokkurinn hefði
verið málefnalegur
þegar kæmi að þessum
málum.
Það hlýtur að verða spennandi að
fylgjast með viðbrögðum forsætis-
ráðherra við þessum viðbrögðum
stjórnarandstöðunnar um ætluð
viðbrögð hennar við mögulegum
tillögum sem ekki enn hafa litið
dagsins ljós.
Nýtt ríkisfang borgarstjóra
Jón Gnarr gerði mannanafnanefnd
að umfjöllunarefni á Facebook-síðu
sinni í gær þar sem hann kvartaði
yfir því að útlendingar hefðu það
betra en Íslendingar þegar kemur
að ættarnöfnum. Borgarstjórinn
er ósáttur við að hafa ekki
fengið að breyta milli-
nafni sínu formlega
úr Gunnar í Gnarr
sem og að dóttir
hans sem skírð hafi
verið Camilla heiti formlega Kamilla.
Telur hann vænlegast að leita nýs
ríkisfangs þar sem ríkið þurfi að við-
urkenna eftirnöfn erlendra manna.
Hann lýsir eftir ríki sem er tilbúið að
veita honum ríkisfang þar sem hann
hafi ekki efni á að fara í dómsmál.
Óhætt er að segja að borgarstjóri
hafi nokkuð til síns máls í gagnrýni
sinni, en mannanafnanefnd hefur átt
bágt undanfarin misseri eftir að hafa
tapað dómsmáli um lögmæti
kvenkynsnafnsins Blær, sem
dómstólar dæmdu lögmætt.
Áhugavert væri að fá niður-
stöðu slíks dómsmáls
Jóns Gnarr sem yrði
líklegast síðasti naglinn
í kistu nefndarinnar
ynni hann málið.
fanney@frettabladid.is
þar sem bæði er r
dansað ZUMBA Fitness og ZUMBA Toning.
Einföld og skemmtileg dansspor.
Þri. og fim. kl. 16:30
Þjálfari: Hjördís Zebitz
Verð kr. 13.900.-
í form!
H
annes Hólmsteinn Gissurarson skrifar bloggpistil
á Pressuna þar sem hann nafngreinir alla þá sem
lækað hafa niðrandi statusa á Facebook um fram-
göngu hans í Spegli RÚV á föstudaginn. Illugi Jök-
ulsson bregst við með því að skrifa Hannesi opið
bréf á sínu bloggi þar sem hann segir meðal annars: „Í fyrsta
lagi þykir mér undarlega ósmekklegt af þér að vera búinn að
skrá svona nákvæmlega hjá þér alla sem hafa lækað skoðun
sem þér fellur ekki, jafnvel
þótt sú skoðun snúist reyndar
um sjálfan þig.“ Vinir og við-
hlæjendur beggja bloggara
bregðast snöfurmannlega við
og endalausir umræðuþræðir
myndast á Facebook-síðum
þeirra félaganna Hannesar og
Illuga þar sem meðal annars
kemur fram að það sé nú ekkert nýnæmi að lækarar séu nafn-
greindir í fjölmiðlum og vísa ýmsir til þess er Hildur Lillien-
dahl og fleiri töldu upp alla sem lækað höfðu status Rúnars
Helga Vignissonar rithöfundar um ónærgætna umfjöllun um
kynferðisbrotamál Jóns Baldvins Hannibalssonar. Umræðan
fer um víðan völl og fólki er skipt í fylkingar eftir lækum
eða vöntun á þeim, hraunað yfir andstæðinga og samherjar
mærðir og umræðan eltir eigið skott út í það óendanlega.
Þessi umræða er merkileg fyrir margra hluta sakir. Í fyrsta
lagi er lækun statusa á Facebook heldur rýr mælikvarði á
stuðning fólks við hina eða þessa skoðunina. Flestir skruna
yfir fréttaveituna með hálfum huga og eru ansi gikkglaðir á
læktakkanum þegar þeim þykir vinir sínir komast vel að orði
eða vekja athygli á þekkilegum málstað. Hugsa það ekkert
nánar og halda áfram að skruna. Það er því heldur óþægilegt
að rekast á nafn sitt á lista yfir meinta stuðningsmenn þessa
eða hins í fjölmiðlum nokkrum klukkustundum síðar. Í öðru
lagi er alls engan veginn hægt að skipta fólki í skoðanaflokka
eftir lækum á Facebook. Þar tíðkast hin og þessi lækbandalög
og nánast sama hvaða vitleysu ákveðnir aðilar pikka inn, þeir
hljóta samstundis fjölda læka frá aðdáendum sínum. Það er því
í mörgum tilfellum manneskjan sem verið er að læka – ekki
skoðunin. Í þriðja lagi lýsir það ákaflega hvimleiðum ritskoðun-
artilhneigingum að telja og tíunda læk á Facebook, skipta fólki
upp í stuðningsmenn og andstæðinga og skella stimplavélinni í
gang í jötunmóð. Heldur einhver í alvöru að fólk þrauthugsi læk
sín og standi og falli með þeim? Að læka statusa á Facebook
er í besta falli samkvæmisleikur sem fólk tekur þátt í af því
allir hinir gera það, ekki tæki til að koma skoðunum sínum
á framfæri. Það er orðinn frekar ógnvekjandi heimur þegar
eitt sárasaklaust læk gerir þig að vitorðsmanni í aðför að öðru
fólki, málstað eða málefnum. Fer ekki að verða tímabært að
slaka á ofsóknarkenndinni, hætta að sjá djöfulinn í hverju horni
og láta læk annarra sem vind um augu þjóta? Þau eru nefnilega
oftast algjörlega óhugsað taugaviðbragð í gikkfingrinum, ekki
yfirlýsing sem mark er takandi á.
Rafræn ritskoðun ryður sér til rúms:
Lækaðu mig, þá
mun ég læka þig