Fréttablaðið - 26.11.2013, Side 34

Fréttablaðið - 26.11.2013, Side 34
26. nóvember 2013 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 26 „Myndirnar okkar hafa feng- ið mjög góðar viðtökur, vakið mikið umtal og hrifningu, en þetta eru stórar og dýrar mynd- ir þannig að salan hefur svo sem ekki verið neitt til að hrópa húrra fyrir,“ segir Sara spurð hvernig á því standi að þær systur, hún og Svanhildur, hafi gripið til þess ráðs að koma málverkum sínum á framfæri á kaffibollum. „Þegar frænka okkar kom síðan að máli við okkur og kynnti okkur þann draum sinn að fara að fram- leiða það sem hún kallar „lista- mál“, sem sagt kaffikrúsir með áprentuðum málverkum, leist okkur mjög vel á hugmyndina og slógum til.“ Fimm af málverkum þeirra systra hafa verið prentuð á bolla nú þegar, í litlu upplagi, en meiningin er að hefja fjölda- framleiðslu síðar ef allt gengur upp, bæði á bollum með verkum þeirra og fleiri málara. „Þá getur fólk eignast málverkin fyrir til- tölulega lítið fé og drukkið í sig listina á hverjum degi,“ útskýrir Sara. „Það er nú varla hægt að komast í nánari snertingu við listaverk en það.“ Sara er með vinnustofu á Korpúlfsstöðum og þær Svan- hildur taka þátt í opnu húsi þar á fimmtudaginn, þegar allir lista- mennirnir sem þar starfa opna vinnustofur sínar fyrir almenn- ingi. „Við erum bara með um hundrað bolla til að selja,“ segir Sara, „þannig að það má segja að þetta séu nokkurs konar kynn- ingareintök.“ Opna húsið stend- ur frá kl. 17 til 21 á fimmtudag- inn og auk opnu vinnustofanna verða tónlistarmenn á staðnum og skemmta gestum. „Þetta verð- ur skammdegishátíð,“ segir Sara. „Hugsuð til að létta fólki lundina í myrkrinu og við vonum að sem flestir leggi leið sína til okkar og skoði það sem hér er verið að gera.“ fridrikab@frettabladid.is Nú getur fólk drukkið í sig listina Myndlistarmennirnir Sara og Svanhildur Vilbergsdætur hafa vakið mikla athygli fyrir dúettmálverk sín sem þær mála í sameiningu. Nú hafa fi mm af málverkum þeirra verið prentuð á kaffi mál og þær systur hyggja á nýja landvinninga. SAMVINNA Þær Sara og Svanhildur kalla sig Dúósystur og oftar en ekki eru þær sjálfar viðfangsefni verkanna, settar í listasögulegt sam- hengi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI LISTAMÁL Fimm af málverkum systranna hafa öðlast framhaldslíf á kaffikrúsum. MENNING BÆKUR ★★★★ ★ Sigrún og Friðgeir– Ferða- saga SIGRÚN PÁLSDÓTTIR JPV-ÚTGÁFA Saga þeirra Sigrúnar Briem og Friðgeirs Ólasonar lækna er saga bjartsýni, ástar, gleði og óþrot- legrar þrautseigju og nöturleg örlög þeirra því enn átakanlegri en ella. Þetta unga, gáfaða, bar- áttuglaða fólk fórst ásamt þrem- ur börnum sínum þegar Goðafossi var sökkt rétt utan landsteinanna 10. nóvember 1944, óskiljanleg og grimm örlög. Í bók sinni Sigrún og Friðgeir segir sagnfræðingur- inn Sigrún Pálsdóttir sögu þeirra frá æsku til dauðadags á ákaflega lifandi og sannfærandi hátt allt þar til þau hverfa í hafið og það er varla þurr hvarmur á nokkrum lesanda að lestri loknum. Sigrún Pálsdóttir er sagnfræð- ingur og tekur sér engin skálda- leyfi, rekur söguna eingöngu út frá skráðum heimildum og stund- um saknar lesandinn þess að fá ekki nánari lýsingar á því hvað ungu hjónin eru að hugsa og gera, en engu að síður er frásögnin mjög lifandi og þau hjón verða ljóslif- andi fyrir augum lesandans sem stendur sig að því að hvetja þau áfram í huganum eins og krakki í þrjúbíói jafnvel þótt hann viti vel að þeim verður ekki langs lífs auðið. Svo sterkum tökum ná per- sónur þeirra á huga lesandans. Stærsti hluti bókarinnar fjallar um ár þeirra í Bandaríkjunum en þangað halda þau í miðri heims- styrjöld til að sækja sér frek- ari menntun í læknisfræðinni. Að íslenskum sið treysta þau á eigin sannfæringar- kraft, guð og lukk- una til að komast inn í bandaríska háskóla, en það reynist ekki alveg eins auðvelt og þau höfðu haldið. Tekst þó auðvit- að fyrir rest og þegar þau hyggja á heimför er Friðgeir orðinn doktor frá sjálf- um Harvard og Sigrún búin með kandídatsár sitt meðfram því að eignast tvö börn, en eitt áttu þau fyrir. Aldarfarslýsingin í bókinni er fantavel unnin og liggur við að maður sjái fyrir sér fátæktar- hverfin í Harlem, andi að sér reyknum í djassklúbbunum og finni lyktina á rottufylltum rann- sóknarstofum. Kannast auðvitað við þetta allt úr svarthvítum bíó- myndum fortíðarinnar en hér er aukið við þá mynd sem þar birtist og stríðsáraandinn í Bandaríkjun- um skilar sér vel. Aðrar persónur en þau hjón eru lausari dráttum dregnar og erfitt að tengjast þeim, enda eru þær aðeins statistar á leiksviði læknanna tveggja sem bæði eru svo stórar og hrífandi persónur að lesandinn hefur engan áhuga á því að líta af þeim eitt augnablik til að kynnast fólkinu í kringum þau. S i g r ú n e r listagóður penni og þrátt fyrir að fylgja ströng- um vinnureglum sagnfræðinn- ar tekst henni að skapa sögu sem tekur f lestum skáldsögum fram hvað varðar áhuga- verðar persónur og spennandi fram- vindu. Lokakafl- inn sem lýsir þeim fimm mínútum sem það tekur Goðafoss að sökkva er skrifaður af slíkri tilfinningu og innsæi að hárin bókstaflega rísa á höfði lesanda og tárin trilla. Gjör- samlega mögnuð upplifun. Friðrika Benónýsdóttir NIÐURSTAÐA: Fantavel skrifuð og áhugaverð saga hjóna sem hlutu grimm örlög. Magnaðri lesning en flestar skáldsögur. Óbætanlegur harmur „Þetta er skemmtilegt og flott pró- gramm,“ segir Gissur Páll Gissur- arson söngvari sem ætlar að koma fram sem Verdi sjálfur í Salnum í kvöld, með pípuhatt og hvítan trefil, og syngja sex aríur eftir tónskáld- ið í tilefni 200 ára afmælis þess. Sú frægasta er La Donna è Mobile úr Rigoletto. Flytjendur með honum á tónleikunum eru Pamela De Sensi flautuleikari og Eva Þyri Hilmars- dóttir píanóleikari. „Eva Þyri og Pamela verða með skemmtilega úrdrætti úr óperum Verdis, annars vegar úr La Traviata og hins vegar Rigoletto – tipla á helstu stefjunum,“ lýsir Gissur Páll. Það verður greini- lega stíll yfir þessu hjá þremenningun- um því auk tónanna ætlar Gissur Páll að segja aðeins frá Verdi og efninu sem flutt verður. „Það er alltaf skemmtilegt að fá aðeins að gægjast á bak við verkin,“ segir hann og tekur fram að tón- leikarnir verði í styttri kantinum eða bara klukku- tími að lengd. - gun Kemur fram sem Verdi Tónleikar til heiðurs Giuseppe Verdi verða í Salnum í kvöld því 200 ár eru liðin frá fæðingu hans. TENÓRINN Gissur Páll æfir fyrir hádegi og segir það að fást við Wagner og Verdi þá sé eins og að stunda ólympískar lyftingar í morgunsárið.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.