Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.12.2013, Qupperneq 1

Fréttablaðið - 19.12.2013, Qupperneq 1
ÖRYGGISMÁL Starfsmenn Toll- stjóra og Geislavarna ríkisins hafa á þessu ári gert upptæka allmarga leysibenda sem eru margfalt afl- meiri en almenn notkun réttlætir. Þeir sem reyna að koma slíkum tækjum inn til landsins eru oft unglingar. Þorgeir Sigurðsson, fagstjóri hjá Geislavörnum, segir að leysi bendar sem eru ætlaðir til almennra nota hafi geislun sem er undir einu millivatti (mW). Að sögn Þorgeirs er styrkur aflmesta leysibendis- ins sem reynt hefur verið að koma inn í landið 5.000 mW [5W] og var tækið stöðvað í tolli. Slíkt tæki er stórhættulegt, enda þarf aðeins endurkastið af geisla af styrk yfir 500 mW til að valda augnskaða, auk hættu á bruna á húð og íkveikjuhættu. Helst sækjast unglingar eftir því að eignast svo öfluga leysi benda. Á vefsíðu, þaðan sem margir af vinsælustu leysunum koma, er algengt að styrkur þeirra sé allt að 2.000 mW. Þeir eru hins vegar ekki merktir framleiðanda og eru oft mun öflugri en þeir eru gefnir upp fyrir að vera. Einar Stefánsson, prófessor og yfirlæknir augndeildar Landspítala, segir að almennt valdi brunar í auga af völdum þessara geisla varanlegum skaða. Hann segir að kannski sé alvarlegast að börn og unglingar líti á tækin sem leikföng, þegar ekkert gæti verið fjær sanni, og bætir við að tækin séu 10 til 20 sinnum aflmeiri en þau sem eru notuð í lækningaskyni. Alvarlegt atvik kom upp í maí. Þá var 13 ára gamall piltur færður til meðferðar á LSH með alvarlegan skaða á báðum augum af völdum leysibendis sem var um 200 sinnum aflminni en þeir sem nú er reynt að koma inn í landið. - shá / sjá síðu 4 FRÉTTIR MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012 Fimmtudagur Sími: 512 5000 19. desember 2013 298. tölublað 13. árgangur SKOÐUN Árni Richard Árnason hefur áhyggjur af Íslendingaheilkenninu sem teygir sig víða um samfélagið. 44 SPORT Arnór Atlason ætlar að fórna öllu til þess að komast á EM í janúar með íslenska landsliðinu. 82 SÉRBLAÐ Fólk REGÍNA Í LINDAKIRKJURegína Ósk verður með sína árlegu fjölskyldujóla- tónleika í Lindakirkju í Kópavogi annað kvöld kl. 20. Flutt verða lög af jólaplötu hennar ásamt klassísk- um jólaperlum. Margir landsþekktir tónlistar- menn koma fram ásamt Regínu, þeirra á meðal er hinn eini sanni Raggi Bjarna. GILBERT Gilbert Ó. Guðjónsson úrsmíðameistari nýtir áralanga þekkingu og reynslu af úrsmíði til að tryggja ströng- ustu kröfur. Laugaveg i 178 - S ím i : 568 9955 www.tk.is Mikið af flottum tilboðum TÆKIFÆRISGJAFIRMargar gerðir Nú er opio allan sólarhringinn í Engihjalla KRINGLUNNI & SMÁRALIND OPIÐ TIL 22 Í KVÖLD 5 DAGARTIL JÓLA MENNING Söngkonan Hallveig Rún- arsdóttir upplifði kraftaverkastund á tónleikum í kirkju í Færeyjum. 74 Panta stórhættulega leysibenda af netinu Reynt er að flytja til landsins leysibenda sem gefa þúsundfalt sterkari geisla en almenn notkun réttlætir. Unglingar líta á tækin sem leikföng. Ekkert er fjær sanni, segir yfirlæknir augndeildar LSH sem lýsir þeim sem „stórhættulegum“. FÓLK Það er ekki vitað hversu margar konur koma til með að nýta sér aðstöðuna í Konukoti um jólin. Konukot er neyðarskýli fyrir heimilislausar konur og þar eru rúm fyrir átta. Engum er þó vísað frá, þó allt sé orðið fullt er búið um konurnar á dýnum eða sófum. Á daginn á meðan lokað er í Konukoti fara konurnar gjarnan í Dagsetrið við Eyjaslóð þar sem Hjálpræðisherinn rekur athvarf fyrir heimilislausa. Í Konukoti fá konurnar kvöldmat og morgunmat áður en þær fara út í daginn. Í Dagsetrinu fá gestirnir hádegismat og síðdegiskaffi. Að meðaltali koma 25 til 30 manns í Dagsetrið á degi hverjum. B æði Konukot og Dagsetrið eru að stórum hluta rekin fyrir gjafafé og styrki frá Reykjavíkurborg. Á báðum stöðum stendur undir- búningur jóla sem hæst. Búið er að þrífa, baka og skreyta. Fátt eftir nema að setja upp jólatré. Konukot verður opið yfir hátíðarnar og Dag- setrið verður opið yfir jóladagana. Sjálfboðaliðar koma og sjá um jóla- matinn sem er samkvæmt hefðinni, hamborgarhryggur, hangikjöt og lambakjöt, og allir sem þangað koma fá jólagjafir. - jme / sjá síðu 10 Sjálfboðaliðar og starfsmenn að ljúka jólaundirbúningi í neyðarskýlum: Fá jólamat, húsaskjól og gjafir BIÐ Bergþóra Guðmundsdóttir er ein þeirra sem heimsækja dagsetrið á Eyjaslóð og þegar kvöldar liggur leið hennar oft í Konu- kot, neyðarskýli fyrir heimilislausar konur. FRÉTTABLAÐIÐ/DANIEL Bolungarvík -1° NV 10 Akureyri -2° NV 12 Egilsstaðir 2° NV 10 Kirkjubæjarkl. -2° NV 12 Reykjavík 0° NV 8 DJÚP LÆGÐ Norðvestan 10-23 m/s í dag með mikilli slyddu eða snjókomu fyrir norðan og austan. Snjókoma vestantil síðdegis. Yfirleitt vægt frost en hlánar á láglendi A-til. 4 FÓLK Lokalag Áramótaskaupsins í ár verður frumsamið af Bagga- lút, Steinda Jr. og Stop Wait Go. „Ég geri þá kröfu að lagið ómi í öllum áramótapartíum og bara langt fram á nýja árið,“ segir Steindi um lagið. Umfjöllunar- efnið er Íslendingum vel þekkt. Í stuttu máli fjallar lagið um að strengja áramótaheit. Við Íslend- ingar erum einstaklega góðir í því að lofa öllu fögru síðustu klukku- stundir hvers árs, en svo er allt annað hvort við förum eftir því,“ Steindi seg- ist vona að allir lands- menn skemmti sér yfir skaupinu. „Ann- ars fer ég í felur í þrjá daga þangað til allir verða búnir að gleyma skaup- inu.“ - kak / sjá 90 Steindi með Baggalút: Lokalagið frumsamið Geta hakkað sig inn í tölvukerfi bíla á ferð Hægt er að stýra bílum þráðlaust, aftengja bremsur eða drepa á vélum með því að brjótast inn í tölvukerfi þeirra. 18 Sautján ára þreyta Íbúi í Barðavogi í Reykjavík er langþreyttur á sleifar- lagi við snjómokstur í hverfinu. 2 Þingmenn fara í jólafrí Samkomu- lag hefur náðst um þinglok fyrir jól. Atvinnulausir fá desemberuppbót og fallið hefur verið frá komugjöldum á spítala. 6 Illa tekið í steyptar götur Sam- göngustjóri Reykjavíkur segir malbik hafa yfirhöndina gagnvart steypu við gatnagerð. 8 VIÐSKIPTI Almar Guðmunds- son, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, gagnrýnir að frumvarp um breytingar á tollalögum leiði ekki til þess að innflutningur á landbúnaðar- afurðum verði í samræmi við núverandi neyslu. Hann segir að það magn sem heimilt sé að flytja inn hljóði einungis upp á fimm prósent af neysluviðmiði frá níunda áratug síðustu aldar og neysluvenjur landans hafi breyst síðan þá. Skrifstofustjóri í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu segir ástæðuna fyrir núverandi viðmiði vera að samningur WTO miði við þetta tiltekna viðmið. - hg / sjá síðu 22. Gagnrýna tollafrumvarp: Ekki í samræmi við neysluvenju ALMAR GUÐMUNDSSON STEINDI JR.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.