Fréttablaðið - 19.12.2013, Side 73

Fréttablaðið - 19.12.2013, Side 73
FIMMTUDAGUR 19. desember 2013 | MENNING | 61 Kraumslistinn 2013 var kynntur í sjötta sinn í gær. Á Kraums- listanum í ár er að finna sjö framúr- skarandi plötur frá metnaðarfullu tónlistarfólki. „Það var ekki auðvelt verkefni að gera upp á milli allra þeirra góðu platna sem skipuðu Úrvalslistann og komu út á árinu enda enginn vafi á því að tónlistarárið 2013 var gott og mikill kraftur í íslensku tónlistarfólki,“ segir Jóhann Ágúst Jóhannsson, framkvæmdastjóri Kraums tónlistarsjóðs. Tuttugu manns áttu sæti í dóm- nefnd Kraumslistans 2013 en það voru þau Andrea Jónsdóttir, Anna Andersen, Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson, formaður dómnefndar, Benedikt Reynisson, Bob Cluness, Egill Harðar son, Elísabet Indra Ragnars- dóttir, Guðni Tómasson, Haukur Viðar Alfreðsson, Helena Þrastar- dóttir, Helga Vala Helgadóttir, Helga Þórey Jónsdóttir, Höskuldur Daði Magnússon, María Lilja Þrastar- dóttir, Ólafur Halldór Ólafsson, Ragnheiður Eiríksdóttir, Trausti Júlíusson, Valdís Thor og Þórunn Edda Magnúsdóttir. Plöturnar sjö sem sköruðu fram úr og skipa Kraumslistann eiga það sameiginlegt að vera frum- legar, spennandi og fjölbreyttar en Kraumur mun leggja sitt af mörk- um á komandi ári við að kynna þessi verk fyrir erlendum fjöl- miðlum og fólki sem starfar innan tónlistargeirans. Sjóðurinn mun styðja við Kraums- listaplöturnar og jafnframt auka við möguleika listamannanna á bak við þær til að koma verkum sínum á framfæri erlendis með því að kaupa ákveðinn fjölda af plötunum og dreifa þeim til ýmissa starfsmanna tónlistarbransans erlendis. - glp Sjö metnaðarfullar plötur skipa Kraumslista ársins 2013 Á listanum í ár er að fi nna sjö plötur frá metnaðarfullu, íslensku tónlistarfólki. ■ Cell7– Cellf ■ Dj. flugvél og geimskip - Glamúr í geimnum ■ Grísalappalísa - Ali ■ Gunnar Andreas Kristinsson– Patterns ■ Just Another Snake Cult - Cupid Makes a Fool of Me ■ Mammút - Komdu til mín svarta systir ■ Sin Fang - Flowers ➜ Kraumslistinn 2013 Verðlaunaplötur (listinn er birtur í stafrófsröð) KYNNINGIN Mynd frá því á kynningu á Kraumslistanum í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Vefsíðan Rolling Stone er búin að taka saman lista yfir fimm verstu sjónvarpsþætti ársins og nær Óskarsverðlaunahátíðin með kynninum Seth MacFarlane næstum því að hreppa sigursætið vafasama. 1. The Goldbergs (ABC) „Gamaldags fjölskyldugaman- þáttur frá gamaldags sjónvarps- stöð. Hvað gæti klikkað? Hver elskar ekki grín frá níunda ára- tugnum? Og fólk öskrandi hvað á annað? Kveikið á kerti fyrir það sem er eftir af bandarískum gamanþáttum,“ er skrifað á vef- síðunni. 2. Óskarinn með gaurnum sem samdi Ted (ABC) „Nei, í alvörunni, þetta gerðist. Þeir leyfðu lúðanum sem skrifaði kvikmyndina Ted að kynna Óskarinn. „Seth MacFarlane“ er nafn hans. Hann truflaði kvik- myndastjörnur í ræðum þeirra því hann þurfti meiri tíma til að syngja lög og segja skrýtlur. George Clooney vann Óskarinn fyrir að framleiða Argo en hann fékk ekki að segja orð því það var ekki nægur tími þar sem kynn- irinn vildi syngja einn dúettinn enn með Kristin Chenoweth. Þetta gerðist í alvöru,“ er skrifað á Rolling Stone. 3. Community (NBC) „Flestir þættirnir voru svo slæmir að ég gat ekki klárað þá og Community geymdi það versta þar til síðast – síðustu tveir þætt- irnir voru svo hræðilegir að allir virtust vera að öskra: Hjálpið mér úr þessum helvítis þætti!“ 4. True Blood (HBO) „Eru þeir komnir að nöktum búálfum? Veit það einhver?“ skrifar pistlahöfundur síðunnar. 5. Ironside (NBC) „Þetta var þess virði að reyna það. Nei, annars, örugglega ekki.“ - lkg Óskarinn meðal verstu EITT ÞAÐ VERSTA True Blood er fjórði versti þáttur ársins. OPIÐ MÁN-FÖS 9-18 | LAU 11-15 | ÁRMÚLI 40 | S: 517 4600 | WWW.MARKID.IS Birt með fyrirvara um myndbrengl og prentvillurÞjónustu samningur til 15. júní fylgir öllum nýjum hjólum! Mikið úrval Innifalið í þjónustusamningi: Almenn yfirferð á hjólinu, stilling á gírum og bremsum í 6-12 mánuði 10% afsláttur af vinnu á verkstæði og hjólavörum Hámark 2 virkir dagar biðtími á verkstæði 20% afsláttur af hjálmi NORCO PLATEAU Verð áður 79.900kr. Verð nú63.920kr. Dömu borgarhjól Dempari í gaffli og sæti NORCO CITY GLIDE Verð áður 109.900kr. Verð nú76.930kr. Klassískt dömu borgarhjól NORCO STORM 6.1 Verð áður 89.900kr. Verð nú 71.920kr. NORCO STORM 6.2Verð áður 69.900kr. Verð nú55.920kr. Verð áður 139.900kr. 97.930kr.NORCO CITY GLIDE 8NORCO STORM 9.1Verð áður 94.900kr. Verð nú75.920kr. 29” hjól Mikið úrval af hjólavörum Topp þjónusta - 30 ára reynsla um Jólin Ekki gleyma að leika þér SETTU ÚTIVERU Í PAKKANN! 20%AF ÖLLUM SKÍÐAPÖKKUM SKÍÐAVÖRUR FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA!
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.