Fréttablaðið - 19.12.2013, Page 2

Fréttablaðið - 19.12.2013, Page 2
19. desember 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 2 SPURNING DAGSINS SAMGÖNGUR „Ég er kominn með sautján ára þreytu á þessu,“ segir Hrafn Heiðdal Úlfsson, íbúi í Barða- vogi í Reykjavík. Hrafn gengur á hverjum morgni í vinnuna, innan við eins kílómetra leið. Þá hafa bæjarstarfsmenn iðu- lega lokið við að moka snjó af gang- stéttinni. Þegar hann snýr aftur heim á leið seinna um daginn hefur snjómoksturstæki mokað snjónum aftur upp á gangstéttina af götunni og þarf hann þá að labba á götunni, sem allir vita að er stórhættulegt. „Þetta er búin að vera sama sagan með moksturinn frá því ég flutti í hverfið fyrir sautján árum. Ég hef hringt nokkrum sinnum en hef ekki gert það síðastliðin tvö ár, ég hef bara gefist upp á þessu. Svo ofbauð mér þegar ég var að labba í gærmorgun [þriðjudagsmorgun],“ segir Hrafn, ósáttur við gang mála. „Þegar ég labbaði klukkan tíu mín- útur fyrir níu sá ég að það var búið að moka gangstéttina. Ég hló inni í mér því ég vissi hvernig þetta yrði þegar ég labbaði til baka. Svona er þetta bara ár eftir ár og þetta er á öllum þessum gangstéttum hérna í hverfinu hjá okkur.“ Hrafn, sem er á fimmtugsaldri, segist hafa fengið loðin svör hjá borgaryfirvöldum þegar hann hefur óskað eftir að gengið verði í málið. „Að athuga og skoða, það er mjög algengt svar,“ segir hann. „Ég bara skil ekki hvers vegna er verið að eyða skattpeningunum í svona bull. Ég vil bara að þetta verði lagað. Þetta er hluti af mínum skatt- peningum og ég vil að þetta sé unnið skikkanlega.“ Hann segir að eldra fólk sem býr í hverfinu vogi sér ekki út úr húsi vegna ástandsins. „Það getur ekki labbað á götunni í hálkunni og ekki á gangstéttunum því þær eru verri heldur en áður en það var skafið. Það eru borgaðar fleiri milljónir á ári í þennan mokstur, sem er til einskis.“ freyr@frettabladid.is Ég bara skil ekki hvers vegna er verið að eyða skattpeningunum í svona bull. Hrafn Heiðdal Úlfsson. Jólaþorpið í Hafnarfirði er opið allar aðventuhelgar kl. 12-17 19. og 20. desember kl. 16-21 Þorláksmessu kl. 16-21 Dagskrá, myndir o.fl. á Facebook TVÍVERKNAÐUR VIÐ SNJÓMOKSTUR Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU Barðavogur Árla morguns Síðdegis Sautján ára þreyta á snjómokstrinum Íbúi í Barðavogi í Reykjavík er orðinn langþreyttur á snjómokstrinum í hverfinu sínu. Snjó er mokað aftur upp á gangstéttina sem hann gengur eftir í vinnuna. Hann segist hafa fengið loðin svör frá borgaryfirvöldum er hann hefur kvartað. Berglind, verður fjölskyldan á hjólum um jólin? „Það verða vonandi jólahjól.“ Bíll Berglindar Pétursdóttur, textahöfundar og dansara, bilaði og er ónýtur svo hún óskar sér nýs bíls í jólagjöf. HEILBRIGÐISMÁL Lögreglurann- sókn á máli hjúkrunarfræðings, sem grunaður er um mistök eða vanrækslu í starfi sem leiddi til þess að maður lést á gjörgæslu- deild Landspítalans á síðasta ári, er nú lokið. Málið er komið á borð ríkis- saksóknara og mun koma í ljós á næstunni hvort gefin verði út ákæra í málinu eða ekki. Það verður þá í fyrsta skipti sem heil- brigðisstarfsmaður á Íslandi er ákærður fyrir manndráp af gáleysi. Í Svíþjóð kom upp mál fyrir um tíu árum þegar hjúkrunarfræð- ingur var dæmdur sekur í hæsta- rétti fyrir manndráp af gáleysi. Ákæran og dómsorðið vöktu sterk viðbrögð og gagnrýni, meðal ann- ars vegna þess að bent var á einn ákveðinn blóraböggul í stað þess að greina kringumstæður máls- ins, verklag, skipulag og starfsað- stæður og fyrirbyggja að mistök hendi aftur. Sigríður Gunnarsdóttir, fram- kvæmdastjóri hjúkrunar á Land- spítalanum, segir starfsmenn spítalans hafa brugðist hárrétt við þegar upp kom grunur um mistök. „Starfsmenn létu vita af atvikinu og um leið hófst innri rannsókn hér á spítalanum. Þeirri rannsókn er lokið og kom í ljós að samverkandi þættir urðu þess valdandi að mistök urðu sem við höfum brugðist við með umbót- um. Staða hjúkrunarfræðingsins í málinu er nýr veruleiki fyrir okkur og gríðarlegt áfall fyrir alla.“ Sigríður segir svona atburð breyta lífi allra sem koma að honum. „Umfram allt hörmum við að svona hafi farið. Við höfum verið í góðu sambandi við aðstandendur og hugur okkar er hjá þeim.“ Hjúkrunarfræðingurinn sem um ræðir starfar ekki lengur á gjörgæsludeild þar sem atvikið átti sér stað heldur á annarri deild spítalans. - ebg Lögreglurannsókn lokið og mál hjúkrunarfræðings komið til ríkissaksóknara: Grunur um manndráp af gáleysi Samverk- andi þættir urðu þess valdandi að mistök urðu. Sigríður Gunnarsdóttir, framkvæmdarstjóri hjúkrunar á Landspítalanum. STJÓRNSÝSLA Stjórnsýsluúttektir Ríkisendurskoðunar á næsta ári munu aðallega beinast að mála- flokkum sem falla undir fjögur stærstu ráðuneytin. Fyrirhugað er að gera stjórn- sýsluúttektir á Ferðamálastofu, Framkvæmdasýslu ríkisins, sendiráðum, Útlendingastofnun, sendiráðum Íslands og samninga- málum ríkisins, að því er fram kemur í starfsáætlun stjórnsýslu- sviðs Ríkisendurskoðunar. Markmiðið með úttektunum er að kanna meðferð og nýt- ingu almannafjár, og hvort hag- kvæmni og skilvirkni sé gætt í rekstri stofnana og fyrirtækja ríkisins. - bj Úttektir næsta árs ákveðnar: Stærstu ráðu- neytin skoðuð VÍSINDI Ný rannsókn á beinum Neanderdalsmanna sem fundust í Frakklandi bendir sterklega til þess að Neanderdalsmenn hafi grafið látið fólk. Vísindamenn hafa lengi verið ósammála um hvort þessir fornmenn hafi grafið látna vini og ættingja, og bætast niðurstöður þessarar rannsóknar við aðrar sem sýna svipaðar niðurstöður. Rannsóknin, sem fjallað eru um á vefnum Science News, sýnir meðal annars að bein dýra sem fundust á sama stað og bein Neander- dalsmannanna voru verr farin, sem bendir til þess að bein fornmann- anna hafi verið grafin í jörð. - bj Rannsaka Neanderdalsmenn sem voru í Frakklandi: Rannsókn staðfestir greftrun GRAFNIR Ástæður þess að fornmenn grófu lík er ekki þekkt, en bæði praktískar og trúarlegar ástæður gætu hafa legið þar að baki. NORDICPHOTOS/AFP STJÓRNMÁL Fjárlaganefnd Alþingis hefur hafnað því að bæta inn í fjár- lagafrumvarpið heimild til að afsala borginni hluta Reykjavíkurflugvall- ar og kemur því í veg fyrir að landið verði tekið undir íbúabyggð. Borgaryfirvöld eru þegar komin vel á veg með að skipuleggja nýtt íbúðahverfi á svæðinu sem þau kalla nýja Skerjafjörð. Byggt er á samkomulagi sem gert var skömmu fyrir síðustu þingkosningar um að ríkið selji borginni umrætt land. Vegna mistaka í fjármálaráðu- neyti gleymdist að setja inn í fjár- lagafrumvarpið endurnýjaða heim- ild fyrir næsta ár. Samkvæmt heimildum fréttastofu lögðu embættismenn í fjármálaráðuneyt- inu til við fjárlaganefnd að þetta yrði lagfært og Reykjavíkurborg fengi hluta eða allt það land ríkis- ins við flugvöllinn sem er fyrir utan flugvallargirðingu. Stjórnarmeiri- hlutinn í fjárlaganefnd hafnaði hins vegar þessari tillögu þar sem ekki sé meirihlutastuðningur á Alþingi fyrir því að selja landið. - kmu Stjórnarmeirihluti fjárlaganefndar vill ekki selja land undir íbúabyggð: Borgin fær ekki flugvallarland NÝI SKERJAFJÖRÐUR Borgin er að skipuleggja 600-800 íbúðir á suð- vesturenda litlu flugbrautarinnar en nú virðast áform um byggingu í uppnámi. SAMGÖNGUR Skúli Mogensen, for- stjóri WOW Air, sakar rekstrar- aðila Keflavíkurflugvallar, Isavia, um að draga taum Icelandair í úthlutun á afgreiðslutímum. WOW Air kærði Isavia til Sam- keppniseftirlitsins og í úrskurði eftirlitsins kemur skýrt fram að Isavia beri að úthluta afgreiðslu- tímum jafnt. Isavia áfrýjaði mál- inu og segir Skúli að ef málið tefj- ist mikið lengur muni félagið ekki geta hafið flug til Norður-Ameríku eins og tilkynnt hefur verið. - jjk WOW Air ósátt við Isavia: Ójöfn úthlutun hamlar flugi KJARAMÁL Ekki er ljóst hvenær desemberuppbót til atvinnulausra verður greidd. Að sögn Gissur- ar Péturssonar, forstjóra Vinnu- málastofnunar, er stefnt að því að það verði fyrir jól. „Félagsmála- ráðherra gefur út reglugerð um greiðslu þessarar desemberuppbótar og þegar hún er komin í hús vindum við okkur í verkið. Hún var ekki komin þegar við hættum í dag [í gær],“ sagði Gissur. - fb / sjá síðu 6 Atvinnulausir fá jólauppbót: Greiða á út á næstu dögum GISSUR PÉTURSSON
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.