Fréttablaðið - 19.12.2013, Page 4

Fréttablaðið - 19.12.2013, Page 4
19. desember 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4 ÖRYGGISMÁL Starfsmenn Tollstjóra og Geislavarna ríkisins hafa á þessu ári gert upptæka allmarga leysi- benda sem eru margfalt aflmeiri en almenn notkun réttlætir. Þeir sem reyna að koma slíkum tækjum inn til landsins eru oft unglingar. Þorgeir Sigurðsson, fagstjóri hjá Geislavörnum, segir að leysi bendar sem eru ætlaðir til almennra nota hafi geislun sem er undir einu millivatti (mW). Sérstakt leyfi fyrir sterkari bendum fær venju- lega aðeins fagfólk til sértækra nota, enda getur leysir sem er afl- meiri en eitt mW valdið sjónskaða á augnabliki. Að sögn Þorgeirs er styrkur afl- mesta leysibendisins sem reynt hefur verið að koma inn í landið 5.000 mW [5W] og var tækið stöðvað í tolli. Slíkt tæki er stór- hættulegt, enda þarf aðeins endur- kastið af geisla af styrk yfir 500 mW til að valda augnskaða, auk hættu á bruna á húð og íkveikju- hættu. Spurður hverjir það séu helst sem sækjast eftir því að eignast leysibenda sem eru svo öflugir segir Þorgeir það í langflestum til- fellum vera stráka og stelpur undir 18 ára aldri sem hafa aðgang að greiðslukorti. Á vefsíðu, þaðan sem margir af vinsælustu leysunum koma, er algengt að styrkur þeirra sé 100- 2000 mW. Þeir eru hins vegar ekki merktir framleiðanda og eru oft mun öflugri en þeir eru gefnir upp fyrir að vera. Þorgeir minnir á að þegar hefur notkun þessara tækja valdið fólki skaða hér á landi. Augnlæknar fengu 13 ára gamlan dreng til meðferðar á Landspítala í maí með alvarlegan skaða á báðum augum af völdum leysibendis sem var langt undir 100 mW. Dæmin eru fleiri um augnskaða, en önnur alvar- leg dæmi eru þar sem börn hafa gert sér það að leik að beina öflug- um geisla að ökumönnum flugvéla og bifreiða. svavar@frettabladid.is 1 af hverjum tíu Íslendingum, rétt rúmlega, notuðu ljósabekki þegar notkun þeirra var könnuð nú í ágúst. Einhverjum þætti það mikið en kannski ekki ef litið er aftur til janúarmánaðar árið 2004. Þá var hlutfallið 30% aðspurðra sem „fóru reglulega í ljós“. Einar Stefánsson, prófessor og yfirlæknir augndeildar Land- spítala, annaðist drenginn sem hlaut augnskaðann í vor en er ekki heimilt að gefa upplýsingar um líðan hans í dag. „Hins vegar get ég sagt að almennt séð valda svona brunar varanlegum skaða. Sem betur fer get ég ekki sagt að þetta sé algengt en maður sér á almannafæri oft græna geisla dansa á húsum. Það eru því allmargir guttar sem eru með svona tæki undir höndum,“ segir Einar en vill ekkert fullyrða um hvort mikið sé af tækjum sem hafa ógnarstyrk eins og þeir sem hafa verið gerðir upptækir. Hann segir að kannski sé alvarlegast að börn og unglingar líti á tækin sem leikföng, þegar ekkert gæti verið fjær sanni. „Í því felst hættan, og þetta er sami hópurinn og er að leika sér með flugelda í kringum áramót, oft með skelfilegum afleiðingum. Þetta verða foreldrar og aðrir að hafa hugfast.“ Einar segir að leysibendir sem er 5.000 mW sé án nokkurs vafa stór- hættulegt tæki og tekur dæmi. „Tækin sem við notum í lækningum til að brenna í augað eru nokkur hundruð millivött. Þannig að tækin sem verið er að smygla hingað eru 10 til 20 sinnum aflmeiri en það sem við notum í lækningaskyni,“ segir Einar. Margfalt aflmeiri en lækningatækin Leysibendar sem brenna og blinda stoppaðir í tollinum Brögð eru að því að reynt sé að flytja til landsins leysibenda sem eru þúsundfalt aflmeiri en almenn notkun réttlætir. Þeir aflmestu brenna húð og valda sjónskaða á augnabliki. 13 ára drengur slasaðist alvarlega í vor. LEYSIBENDAR Líta sakleysislega út en tækin geta valdið stórskaða, t.d. sjónskaða á augnabliki. EINAR STEFÁNSSON Samgöngur: Geisli sem beint er aðeins augnablik í augu fl ug- eða ökumanns getur orsakað stórslys. Augu: Geisli sem er upp að 5mW er talinn að mestu skaðlaus, nema horft sé beint í hann. Yfi r 50 mW ógnar geislinn sjón alvarlega. Ef geislinn er 500 mW eða sterkari þá veldur hann sjónskaða án undantekninga. Húð: 200-300 mW geisli veldur óþægindum í húð. Geisli yfi r 500 mW veldur bruna á húð. AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundur@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is SVONA ERUM VIÐ Elísabet Margeirsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá Laugardagur 5-10 m/s en hvassara á Vestfj örðum. HVASSVIÐRI víðast hvar í dag með mikilli úrkomu um norðan- og austanvert landið en veðrið gengur niður síðdegis norðaustantil. Ágætt veður í fyrstu á morgun einkum fyrir norðan en næsta lægð kemur síðdegis með hvassri austanátt og úrkomu syðra. -1° 10 m/s 0° 10 m/s 0° 8 m/s 3° 18 m/s Á morgun Vaxandi A-átt með úrkomu síðdegis. Gildistími korta er um hádegi 0° 0° 0° -2° -6° Alicante Basel Berlín 18° 6° 7° Billund Frankfurt Friedrichshafen 7° 8° 5° Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas 6° 6° 21° London Mallorca New York 11° 18° 6° Orlando Ósló París 22° 3° 10° San Francisco Stokkhólmur 14° 2° -2° 12 m/s 3° 18 m/s 2° 10 m/s 4° 12 m/s -2° 12 m/s 0° 11 m/s -6° 0 m/s 2° -1° 1° -2° -3° BRUSSEL, AP Evrópskir fjármála- ráðherrar eru nálægt samkomu- lagi sem eykur líkur á sameigin- legu regluverki Evrópulanda um fjármálafyrirtæki. Tilgangurinn er að auka tiltrú á bönkum, auka aðhald gagnvart þeim og koma í veg fyrir að þeir geti ógnað efnahag heilu landanna, líkt og gerðist í bankahruninu hér. Fjárhagsvandræði margra Evrópulanda eru rakin til þess að þau hafi þurft að hlaupa undir bagga með bönkum sínum. Ráðherrar frá evrulöndunum sautján funduðu stíft í Brussel í gær áður en rætt var við kollega utan hópsins. Jeroen Dijsselbloem, fjár- málaráðherra Hollands og leiðtogi evruhópsins, segir ráðherrana hafa lagt mikið á sig í leit að leiðum til að fjármagna aðgerðir til stuðnings bönkum sem standi höllum fæti. Deilt hefur verið um hvort fjár- magna eigi aðgerðir með skattfé. Þjóðverjar telja að bankarnir eigi sjálfir að annast þessar greiðslur. - fb Evrópskir fjármálaráðherrar nálgast samkomulag í tengslum við bankana: Styttist í evrópskar bankareglur RÆÐA MÁLIN Jeroen Dijsselbloem, fjármálaráðherra Hollands (til hægri), ræðir við Margrethe Vestager, fjármála- ráðherra Danmerkur. FRÉTTABLAÐIÐ/AP ATVINNUMÁL Íslenski sjávar- klasinn (ÍS) hefur vakið athygli utan landsteinanna en í byrjun mánaðarins heimsótti stór hópur fólks frá sveitarfélögum á Norður löndunum hús Sjávar- klasans. Þar fékk hópurinn kynn- ingu á starfsemi ÍS og verkefnum innan hans. Fólkið starfar við atvinnu- þróun víða um Norðurlönd og var hér á landi í samvinnu við Reykjavíkur borg. Koma þess er í tengslum við verkefni sænska ráðgjafafyrirtækisins Tendensor um stjórnun aðdráttarafls fyrir hæfileika og hæfni fyrir minni borgir og sveitarfélög. - shá Hópur heimsótti hús ÍS: Sjávarklasinn vekur athygli JÓL Þrátt fyrir að margir hafi þann háttinn á að senda jólakveðjur á rafrænan hátt, til dæmis með tölvupósti eða í gegnum sam- félagsmiðla, hefur ekki dreg- ið úr fjölda jóla- korta sem send eru með pósti. Þ et t a seg i r Brynjar Smári Rúnarsson, markaðsstjóri Póstsins. „Við áætlum að við munum koma um 2,5 milljónum jólakorta til skila í ár, sem er mjög svipað og verið hefur síðustu ár.“ Brynjar segir að vissulega hafi almennar bréfasendingar með pósti dregist verulega saman síðustu árin, en svo virðist þó vera að jólakortahefðin muni lifa enn um sinn. - þj 2,5 milljónir korta sendar: Jólakort halda sínum hlut BRYNJAR SMÁRI RÚNARSSON SAMGÖNGUR Strætisvagn á vesturleið á milli Húsavíkur og Akureyrar fór út af á norð- austurvegi í gær, rétt við gatna- mótin við hringveginn. Fjórir farþegar voru í vagn- inum en enginn slasaðist og var þeim komið til Akureyrar. Ekki urðu fleiri ferðir á þessari leið í gær enda hált á þessum slóðum og talið að vindhviða hafi feykt vagninum af veginum. Óvíst er um skemmdir á vagninum. - ebg Áætlunarferðir röskuðust: Strætó fór út af í hálku og roki
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.