Fréttablaðið - 19.12.2013, Síða 30

Fréttablaðið - 19.12.2013, Síða 30
19. desember 2013 FIMMTUDAGURSKOÐUN HALLDÓR FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is HELGAREFNI: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is MENNING: Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is DÆGURMÁL: Lilja Katrín Gunnarsdóttir liljakatrin@frettabladid.is VÍSIR: Kristján Hjálmarsson, kristjan@visir.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÁ DEGI TIL DAGS Í síðustu viku var í fyrsta skipti úthlutað úr nýjum hönnunarsjóði íslenska ríkis- ins. Fyrir á bæli eru ýmsir aðrir gagnlegir sjóðir t.d. rannsóknarsjóður í sjávarútvegi, framleiðnisjóður landbúnaðarins, byggða- sjóður og atvinnuþróunarsjóðir, en þetta er fyrsti hönnunarsjóðurinn. Hönnunarsjóður veitir styrki til verk- efna á sviði hönnunar og arkitektúrs; m.a. þróunar og rannsókna, verkefna og markaðsstarfs auk ferðastyrkja. Sjóður- inn veitir að hámarki 5 milljónir króna til hvers verkefnis og aldrei meira en 50% kostnaðaráætlunar. Styrkþegar fjármagna því verkefnin að stærstum hluta með öðrum hætti. Hæsti styrkur sjóðsins í ár er 3,8 milljónir, en meðalupphæð styrkja er 1-2 milljónir króna. Þegar umsóknarfrestur rann út höfðu rúmlega 200 umsóknir borist um 400 milljónir króna, eða tífalda þá upphæð sem til skipta var. Þessi mikli áhugi hönnunar- geirans er ánægjuleg staðfesting á þörf og mikilvægi sjóðsins. Með þennan fjölda góðra umsókna var sjóðsstjórn vandi á höndum. Ásamt samhentu og metnaðar- fullu starfi starfsmanna Hönnunarmið- stöðvar Íslands tókst að þrengja valið. Það segir sig sjálft að mörg verðug verkefni urðu útundan. Þeim til huggunar er ein- ungis sú staðfesta stjórnar að sjóðurinn fái framhaldslíf og eflist síðan með hverju ári sem líður. Von um framsýni þingmanna við fjárlagagerð skaðar ekki heldur. Meðal verkefna sem hljóta styrki í ár eru nýjar fatalínur eldri og leiðandi, sem og ungra og upprennandi fatahönnuða. Nokk- ur fatahönnunarfyrirtæki hljóta styrki til markaðssetningar erlendis. Það gera líka vöru- og húsgagnahönnuðir og er um að ræða mikilvæga fjárfestingu í starfsemi fjölmargra fyrirtækja. Einnig hljóta verk- efni á sviði grafískrar hönnunar og arki- tektúrs styrki ásamt þróunarverkefnum í leirkerahönnun, skartgripahönnun og text- ílhönnun. Þá hljóta fimm rannsóknar- og söguskráningarverkefni einnig styrki. Styrkirnir dreifast jafnt til ungra hönnuða, sem eru að stíga sín fyrstu skref, og þeirra reyndari sem hyggja á land- vinninga. Hvort tveggja er mikilvægt fyrir fjölbreytni og heilbrigði í íslensku atvinnu- lífi. Nú var 42 milljónum dreift á 49 einstak- linga og fyrirtæki. Það er þunnt smurt, en ef framlegð og ávöxtun verður í átt að því sem kom fram á síðum Fréttablaðsins um nýsköpunarsjóði fyrir skömmu gæti upp- skera ríkisinss orðið rúmlega 420 milljónir eftir 10 ár. Það er ágætis viðbit fyrir komandi kyn- slóðir. Þeir fi ska sem róa HÖNNUN Ólafur Mathiesen formaður stjórnar Hönnunarsjóðs „MJÖG FÍN OG ÁHUGAVERÐ BÓK SEM ÉG MÆLI MEÐ FYRIR ALLA.“ HARPA MJÖLL REYNISDÓTTIR, DV Rökrétt hjá ESB Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, segir rökrétt hjá ESB að hafa hætt við að greiða Íslendingum IPA-styrki, þetta kom fram í fréttum RÚV í gær. Bjarni sagði að ekki mætti draga of miklar ályktanir af þessari ákvörðun ESB og kvaðst ráðherrann ekki gera neinar sérstakar athugasemdir við ákvörð- unina nema þá að fyrirvarinn hefði verið heldur skammur. Þetta eru hóf- stilltari viðbrögð en hjá Gunnari Braga Sveinssyni utanríkisráðherra. Hann brást ókvæða við þessari ákvörðun ESB og sagði hana koma sér í opna skjöldu og vinnubrögðin forkastanleg. Þrátt fyrir að hann hefði sjálfur tilkynnt ESB í sumar að hlé yrði gert á aðildar- viðræðum og hafa á síðasta kjörtíma- bili kallað styrkina mútur. Ekki sáttur við desemberuppbót Karl Garðarsson, þingmaður Fram- sóknarflokksins, er ekki ýkja glaður með þá ákvörðun Alþingis að greiða atvinnulausum desemberuppbót. Þingamaðurinn sagði við upphaf þing- fundar í gær að allir vildu að atvinnu- lausir hefðu það gott eins og aðrir landsmenn um jólin. Það hljóti hins vegar að þurfa að setja spurningar- merki við að fara þá leið að greiða desemberuppbót ekki síst vegna eðlis hennar. Desemberuppbót sé hugsuð sem uppbót fyrir unnin störf og því verði að spyrja af hverju hún sé látin ná yfir atvinnuleitendur. Elín gleðst „Ríkisstjórnin hefur ákveðið að greiða atvinnuleitendum desemberuppbót. Nú er hægt að halda gleðileg jól. Ég er stolt af mínu fólki,“ bloggar Elín Hirst, þingkona Sjálfstæðisflokksins. Þá lýsir hún mikilli ánægju með að sérstakt áhugamál hennar og fleiri um að fatl- aðir fái endurgreiddan virðisaukaskatt af íþróttatækjum er í höfn. „Þetta eru oftast rándýr tæki sem þarf að hanna sérstaklega til dæmis skíði fyrir lamaða og svo framvegis, en reynast afar vel og gera fólki kleift að njóta gæða lífsins. Það er nú bæði inn í fjáraukalögum fyrir 2013 og fjár- lögum 2014 en hafði áður verið fellt út úr fjárlögum líklega í kringum árið 2010, en eng- inn skilur af hverju,“ segir Elín. johanna@frettabladid.is S igurður Pálmi Sigurbjörnsson kaupmaður skrifaði athyglisverða grein í Fréttablaðið í gær. Hann vísaði þar til viðtals við Andrés Magnússon, framkvæmda- stjóra Samtaka verzlunar og þjónustu, í fréttum RÚV þar sem fjallað var um dræma sölu á fatnaði fyrir jólin. Sigurður Pálmi gefur ekki mikið fyrir þær útskýringar Andrésar að háum tollum, verzlunarferðum Íslendinga og aukinni netverzlun sé um að kenna. Hann bendir á að þegar sem bezt gekk hjá fataverzlun- inni hafi Íslendingar ekki síður verið duglegir að fara í verzlunarferðir og getað keypt inn á mun hagstæðara gengi en nú. Ofan á vörur keyptar á netinu bætist sendingarkostnaður, tollar og virðisaukaskattur, rétt eins og á vörur sem kaupmenn flytji inn. Tollar og virðisaukaskattur hafi lítið breytzt frá því í góðærinu. Kaupmaðurinn í Sports Direct segir að verzlunin verði að líta í eigin barm: „Það liggur fyrir að íslensk verslun er óhag- kvæm, hún kaupir inn á háu verði vegna smæðar og fjarlægðar við meginlandið og hefur offjárfest gríðarlega í verslunarhús- næði. Íslensk verslun notar til dæmis tæplega þrisvar sinnum meira verslunarhúsnæði en breskir kollegar. Og fjármagnið til að borga eitt hæsta leiguverð í Evrópu kemur beint úr vasa neytenda.“ Það er heilmikið til í þessari gagnrýni – frá kaupmanni sem hefur stuðlað að lækkun vöruverðs í sínum geira. Í skýrslu McKinsey um hvernig mætti efla hagvöxt á Íslandi kom fram að ein leiðin til að efla framleiðni í íslenzkri verzlun væri að lækka tolla, en íslenzk verzlun væri líka langt á eftir nágranna- löndunum hvað varðaði framleiðni bæði vinnuafls og verzlunar- rýmis. Með öðrum orðum vinna of margir í búðum á Íslandi og þær eru í of stóru húsnæði. Það getur enginn lagað nema verzlunarfyrirtækin sjálf. Andrés Magnússon sagði í áðurnefndu sjónvarpsviðtali að stjórnvöld bæru mesta ábyrgð á stöðunni. „Þau hafa í hendi sér að ná þessum viðskiptum heim,“ sagði hann. En það er ekkert endilega hlutverk stjórnvalda að „ná viðskiptunum heim“. Íslenzk verzlun má alveg hafa dálitla útlenda samkeppni til að halda henni á tánum. SVÞ hafa réttilega lagt mikla áherzlu á að draga úr tollvernd og öðrum hindrunum í vegi innflutnings búvara, til þess að landbúnaðurinn fái aukna samkeppni og neytendur njóti lægra verðs sem af henni hlýzt. En svo kvarta þau þegar nefnd um eflingu póstverzlunar leggur til að sendingar sem kosta minna en 2.000 krónur verði undanþegnar aðflutningsgjöldum. Kaup- menn þiggja með öðrum orðum tollverndina þegar hún er í boði. Þetta mál er ekki svart og hvítt. Auðvitað þarf íslenzk verzlun að búa við hagstætt tollaumhverfi. En það er rétt hjá Sigurði Pálma að verzlunin þarf að vera sveigjanlegri til að geta brugðizt við nýrri samkeppni á borð við alþjóðlega netverzlun. Það dugir ekki að ákalla bara stjórnvöld sér til hjálpar. Verzlunarfyrirtækin þurfa að líta í eigin barm: Að ná við- skiptunum heim Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.