Fréttablaðið - 19.12.2013, Qupperneq 44
19. desember 2013 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 44
Laugardaginn 21. desember
2013 verða vetrarsólstöður,
nánar tiltekið í Reykjavík
samkvæmt Almanaki þjóð-
vinafélagsins kl. 17:11. Frá
þeirri stundu fer hádegis-
sól að hækka dag frá degi.
Enn mun þó vetur ríkja því
að sinn tíma tekur það sól-
ina að verma lofthjúpinn
svo að fari að vora. Veður-
far á hverjum stað mótast
af úthöfum og lofthjúpi sem vinna
í sífellu að því að fleyta ofgnótt
sólar orkunnar frá miðbaug í átt til
pólanna.
Fyrirrennari jólahátíðar
Mörg þúsund ár, sennilega tugir
þúsunda ára, eru síðan menn byrj-
uðu að fagna þessum tímamótum í
náttúrunnar ríki og halda hátíðir
á sumar- og vetrarsólstöðum. Er
skemmst frá að segja að jólin tóku
á sínum tíma við af hátíð sem upp-
runalega var haldin í tilefni vetrar-
sólstaða. Inntakið breyttist en auk
þess hafa hátíðahöld nútímans
orðið viðskila við sjálfar vetrar-
sólstöðurnar, daginn sem þær eru.
Nú eru bráðum þrír áratugir
síðan fyrsta árlega sumarsólstöðu-
gangan í Reykjavík og nágrenni var
farin. Lítill hópur samherja hefur
skipulagt gönguna og reynt að
koma á nýrri hefð sem við vonum
að haldist og eflist með tímanum.
Leiðin var lengi framan af breyti-
leg frá einu ári til annars en síðasta
áratuginn var gengin sama leiðin
nokkur ár í röð, m.a. hringleið um
Öskjuhlíð nokkrum sinnum og þrjú
undanfarin ár um Viðey. Tilgangur
sólstöðugöngunnar er í senn jarð-
bundinn og háfleygur.
Annars vegar er auðvitað heilsu-
samlegt og upplífgandi þegar sól
er hæst á lofti að taka þátt í rólegri
hópgöngu fólks á öllum aldri, njóta
samveru skyldmenna eða
kynna við ókunnuga – og
þar við bætist fróðleikur leiðsögu-
manna um það sem fyrir augu ber
á göngunni, fróðleikur um náttúru
og sögu. En hins vegar er sólstöðu-
göngunni ætlað að vera dálítil
stund til að leiða hugann að ráð-
gátum tilverunnar og gleðjast yfir
lífinu þrátt fyrir strit og erfiðleika,
gleðjast yfir því að hafa fengið
tækifæri til að taka þátt í hinu
mikla leikriti tilverunnar nokkur
ár. Fyrir hundrað árum voru við
ekki til og eftir önnur hundrað
verðum við ekki til, altént ekki hér!
Íhugað á sólstöðumínútu
Meginatriði hinnar árlegu
sólstöðu hátíðar er sólstöðumínútan
sem sólstöðugönguhópurinn hefur
nefnt svo, tímamótin tvenn á för
jarðar um sólu. Við stöldrum við,
sólstöðumínútuna, og íhugum í
þögn. Það er eitt sem er magnað
við sólstöðumínútuna ef svo mætti
segja: hún er á sama tíma um alla
jörð! Þetta finnst mörgum augljóst
en það er draumur sólstöðuhópsins
að fólk víðs vegar um lönd komi
sér saman um að fagna sólstöðu-
mínútunni, þá samtímis um alla
jörð í „meðmælagöngu með lífinu
og menningunni“.
Nú á vetrarsólstöðum skulum við
staldra við andartak og njóta þess
að furða okkur á eigin tilveru. Það
borgar sig. Sjáumst svo í næstu
sumarsólstöðugöngu.
NÁTTÚRA
Þór Jakobsson
veðurfræðingur
➜ Nú á vetrarsólstöðum
skulum við staldra við
andartak og njóta þess
að furða okkur á eigin
tilveru. Það borgar sig.
Sjáumst svo í næstu
sumarsólstöðugöngu.
Sólstöðumínútan
17:11, 21. 12. 2013 Kaupmáttur meðaltíma-
kaups á Íslandi er lægri en á
Spáni, þrátt fyrir að Íslend-
ingar séu ríkir af auðlind-
um og fái fleiri ferðamenn
miðað við höfðatölu. Því
veldur óhagkvæmni ein-
angraðs íslensks hagkerfis
þar sem störf eru varin og
mynduð með íhlutun stjórn-
málamanna.
Íslenskt hagkerfi ein-
kennist af stjórnlyndi og
ríkissósíalisma, og almenn-
ingur virðist halda að hlutverk
stjórnmálamanna sé að skapa störf
og hagvöxt. Hér eru einkenni að
verki sem ég kalla Íslendingaheil-
kennið, en mætti líka nefna Þetta-
reddast-heilkennið eða frekar
Reddið-þessu-heilkennið. Ég ætla að
reyna að gera þessu heilkenni skil
með þessum pistli.
Einkennin
Sá sem er haldinn Íslendingaheil-
kenninu er með eindæmum skamm-
sýnn. Hann aðhyllist ekki langtíma-
lausnir, heldur töfralausnir. Hann
hugsar oft stórt, en ekki mjög djúpt,
og mest í eigin þágu. Hann virðist
frjálslyndur gagnvart því hvernig
annað fólk lifir sínu lífi, sem er
stundum mistúlkað sem umburðar-
lyndi eða virðing, en í rauninni er
honum sama um annað fólk á meðan
það skaðar hann ekki. Hann óttast
útlendinga sem geta svipt hann lífs-
viðurværi sínu og jafnvel stolið auð-
lindum þjóðar hans. Hann vill auka
ríkidæmi sitt hratt, til dæmis með
því að láta virkja fallvötn og byggja
álver sem skapar gervihagvöxt.
Fylgifiskur gervihagvaxtar er
þó að hann gengur til baka, með til-
heyrandi samdrætti, en það stöðvar
ekki þann sem er haldinn Íslend-
ingaheilkenninu því hann hugsar
ekki svo langt. Hann þolir illa við-
varanir eða svartsýnisböl, sérstak-
lega ef slíkt kemur frá útlendingum.
Hann lætur sér ekki segjast, enda
væri það „aðför að sjálf-
stæðinu“ að fylgja ráðgjöf
útlendinga. „Allt sem er
íslenskt er gott, sérstak-
lega hin blessaða króna
sem kemur hagkerfinu
til bjargar með sveigjan-
leika sínum.“ Þó er krónan
í hlekkjum og blóðsýgur
íslenskt hagkerfi, þar sem
blóðið er í formi vaxta-
greiðslna til erlendra lánar-
drottna og kröfuhafa.
En sá sem er haldinn
Íslendingaheilkenninu er eindæma
þrjóskur þegar kemur að því sem
íslenskt er, enda er hann íslenskari
en páfinn. Ef lausnir bjóðast sem
fela í sér langtímasamstarf við
útlendinga þá er þeim hafnað á þeim
forsendum að lausnirnar séu ekki
töfralausnir, nema með þeirri und-
antekningu að um styrki sé að ræða.
„Þetta er líka allt saman útlending-
um að kenna. Íslendingar eru svo
sjálfstæð þjóð. Þetta reddast.“
Áhrif á samfélagið
Íslendinga sem eru veikir af Íslend-
ingaheilkenninu er að finna í öllum
starfsstéttum á Íslandi, og þeir
gegnsýra allt íslenskt samfélag,
svo að tala má um faraldur í þessu
samhengi. Birtingarmynd þessa er
einkum skýrust í fjármálaheimin-
um, fjölmiðlum og stjórnmálum.
Um það fyrstnefnda þarf ég ekki
að fara mörgum orðum, enda þekkja
allir þann skaða sem hefur hlotist af
Íslendingaheilkenninu á þeim vett-
vangi, þó að fæstir kunni góð skil
á heilkenninu sjálfu. Íslenskir fjöl-
miðlar eru að mestu leyti slúður-
fréttamiðlar með það megin-
markmið að endursegja hvað fólk
sagði í stað þess að greina og skýra
hvað gerðist eða mun gerast.
Eitt vinsælasta viðfangsefni fjöl-
miðlastéttarinnar er fjölmiðla-
stéttin sjálf. Hvar annars staðar í
heiminum birtast reglulega frétta-
tilkynningar um óléttu fjölmiðla-
kvenna? Hvar annars staðar í heim-
inum getur fólk orðið „frægt“ fyrir
ekki merkilegri afrek en að vera
fyllibyttur eða dópistar? Lágkúru-
legar slúðurfréttir eru vinsælasta
efni veffjölmiðlanna og framboðið
mætir eftirspurn.
Íslendingaheilkennið og grunn-
hyggnin ráða ríkjum. Ástandið
minnir óþægilega mikið á gamlar
zombí-kvikmyndir, með þeirri und-
antekningu að zombí-áhrifin eru
aðeins innvortis, smitast sennilega
ekki við bit, og gætu verið meðfædd.
Kjósendur vilja skammtímalausnir
Alþingi er helsta vígi Íslendinga-
heilkennisins. Þar ræða hugsjóna-
lausir stjórnmálamenn skammtíma-
lausnir sem eru best fallnar til þess
að kaupa atkvæði auðkeyptra kjós-
enda. Sem betur fer fyrir stjórn-
málamenn þá muna kjósendur ekki
langt aftur, og hugsa ekki langt
fram í tímann, enda flestir haldnir
Íslendingaheilkenninu. En stjórn-
málamönnum er refsað fljótt ef
þeir finna ekki skammtímalausnir
hið fyrsta sem gefa fólki aura í vas-
ann, og því eiga stjórnmálamenn
með framtíðarsýn ekki upp á pall-
borðið hjá kjósendum.
Til allrar hamingju fyrir ráð-
andi stjórnmálamenn þá hafa þeir
þjálfað hæfni sína í að finna fjár-
muni og þeir geta jafnvel tekið þá
af framtíðarskattgreiðslum, jafnvel
þó að óvíst sé að þær muni nokkurn
tímann eiga sér stað. Kjósendur
hafa engar áhyggjur af því, enda er
það þeim ofviða að hugsa svo langt
fram í tímann. „Þetta reddast.“
Að svo komnu er Íslendingaheil-
kennið einangrað við Ísland sökum
legu landsins. Ef þú býrð utan
Íslands, þá hef ég þetta að segja:
Don‘t panic.
Íslendingaheilkennið
SAMFÉLAGS-
MÁL
Árni Richard
Árnason
stærðfræðingur
➜ Sá sem er haldinn
Íslendingaheilkenninu er
með eindæmum skammsýnn.
400.000 KR.
FERÐAFJÖR NOTAÐRA BÍLA
FINNDU BÍLINN ÞINN Á
NOTADIR.BRIMBORG.IS
Kauptu notaðan bíl af Brimborg
og þú átt möguleika á að vinna
* GJAFABRÉF FRÁ WOWair
Vertu með!
FERÐAFJÖRINU
ER AÐ LJÚKA!
NOTAÐIR BÍLAR
Í MIKLU ÚRVALI
TÖKUM ALLAR
GERÐIR BÍLA UPPÍ!
Allir sem kaupa notaðan bíl af Brimborg á tímabilinu 7. nóvember 2013 til og með 20. desember 2013 fara í pott. Einn heppinn vinningshafi
verður svo dreginn út 23. desember 2013 og fær hann 400.000 kr. gjafabréf frá WOW air (athugið á ekki við um umboðssölubíla).
Skoðaðu úrvalið á
NOTADIR.BRIMBORG.IS
Söludeildir eru opnar virka daga kl. 9-17
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 6, sími 515 7030
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7040
Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050
Notaðir bílar
- Brimborg
ERUM Í SAMNINGSSTUÐI
GERÐU GÓÐ KAUP
MIKIÐ AF BÍLUM Á TILBOÐI!
DRÖGUM Á
ÞORLÁKSMESSU!