Fréttablaðið - 19.12.2013, Side 47
Fágæti úranna er það sem gerir þau eftirsóknarverð og einnig það að á skífu þeirra stendur
Reykjavík. Þetta, ásamt vönduðu
verki, framleiðslu og sígildu útliti,
gerir úrin okkar einstök,“ segir Gilbert
Ó. Guðjónsson úrsmíða-
meistari um úr JS Watch
co. Reykjavík sem vakið
hafa athygli um víða ver-
öld og nú gæta tímans
fyrir heimsfræga einstak-
linga sem lagt hafa leið
sína til Gilberts á Lauga-
veginum til að eignast
íslenskt úr.
Gilbert segir armandsúr
vera sígilda jólagjöf sem
alltaf hitti í mark.
„Úr er í senn skart og
nytjahlutur. Úrin okkar eru
íslensk frá grunni, þau eru
hönnuð á teikniborði JS hér
heima og allir íhlutir sérframleiddir
eftir okkar hönnun í sérhæfðum verk-
smiðjum í Þýskalandi og Sviss. Þá eru úrin
sett saman hérlendis undir afar ströngu
gæðaeftirliti,“ segir Gilbert sem nýtir ára-
langa þekkingu og reynslu sína af úrsmíði
til að tryggja að hvert og eitt úr standist
ströngustu kröfur.
Vörulína JS Watch co. Reykjavík fer
ört stækkandi og úrval úra hefur aldrei
verið meira. Nánari upplýsingar um úr og
hönnun má finna á www.gilbert.is
REGÍNA Í LINDAKIRKJU
Regína Ósk verður með sína árlegu fjölskyldujóla-
tónleika í Lindakirkju í Kópavogi annað kvöld kl. 20.
Flutt verða lög af jólaplötu hennar ásamt klassísk-
um jólaperlum. Margir landsþekktir tónlistar-
menn koma fram ásamt Regínu, þeirra á meðal
er hinn eini sanni Raggi Bjarna.
FRISLAND CLASSIC Þetta nýja úr skartar
antík silfurskífu með rómversku og arabísku
letri, handblámuðum vísum, handsaumaðri
strútsól og kassa úr ryðfríu 316L-eðalstáli með
safír-kristal gleri að framan og aftan svo sjá má
gangverk úrsins, sem er sjálftrekkjandi með 25
rúbínsteinum, í gegnum bakhlið úrsins.
101 32MM Glæný úr-
smíðin skartar vínrauðri,
slípaðri skífu með róm-
versku letri, stálól, kassa
úr ryðfríu 316L-eðal-
stáli og safír-kristalgleri
að framan og aftan. Því
má sjá gangverk úrsins,
sem er sjálftrekkjandi
með 25 rúbínsteinum, í
gegnum bakhlið úrsins.
EINSTÖK OG FÁGÆT
JS WATCH KYNNIR Í einni af minnstu verslunum Laugavegs eru smíðuð há-
gæðaúr sem vakið hafa heimsathygli og þeim skarta heimsþekktir einstaklingar.
GILBERT
Gilbert Ó.
Guðjónsson
úrsmíðameistari
nýtir áralanga
þekkingu og
reynslu af
úrsmíði til að
tryggja ströng-
ustu kröfur.
Laugavegi 63 S: 551 4422
laxdal.is
Vertu vinur á
Facebook
Skoðið
JÓLAGJÖF
DÖMUNNAR
FRANK LYMAN /GLÆSIKJÓLAR
Laugaveg i 178 - S ím i : 568 9955
www.tk.is
Mikið af flottum tilboðum
TÆKIFÆRISGJAFIR
Margar gerðir
Ný sending!