Fréttablaðið - 19.12.2013, Qupperneq 80
19. desember 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 68
BRÚÐKAUPSBOMBA ÁRSINS 2013
Mikið var um brúðkaup á árinu í stjörnuheimum en athygli vekur að 8. júní var vinsælasta dagsetningin fyrir þennan stóra dag hjá
fræga fólkinu. Brúðkaupin voru jafn misjöfn og þau voru mörg – allt frá ævintýrabrúðkaupi i Disneylandi til afslappaðrar veislu með
hlaðborði af djúpsteiktum kjúklingi og vöffl um. Fréttablaðið leit yfi r árið og fékk að skyggnast inn í nokkur myndaalbúm stjarnanna.
07/09
Stórleikarinn
Patrick Stewart, 73ja
ára, kvæntist söngkonunni
Sunny Ozell, 35 ára, en það
var leikarinn Sir Ian McKellan
sem gaf þau saman. Sunny
klæddist frönskum blúndukjól
frá Temperley London og birti
Patrick mynd af þeim á
Twitter þegar þau voru
búin að segja já.
08/06
Athafnakonan
Kristin Cavallari gift-
ist leikstjórn andanum
Jay Cutler í Nashville.
Sonur þeirra Camden fékk
að taka þátt í fjörinu og
nú á parið von á barni
númer tvö.
04/05
Leikkonan Keira
Knightley giftist
hljómborðsleikaranum
James Righton í Provence
í Frakklandi. Keira var
klædd í Chanel frá toppi
til táar og var fimmtíu
gestum boðið í
gleðina.
31/08
Leikkonan Kate
Bosworth gekk að
eiga leikstjórann Michael
Polish á búgarði í Montana.
Kate klæddist tveimur
kjólum frá Oscar de la
Renta, öðrum í sjálfri
athöfninni og hinni í
veislunni.
26/05
Breaking Bad-
stjarnan Aaron Paul
gekk að eiga sína heitt-
elskuðu, kvikmyndagerðar-
konuna Lauren Parsekian, í
Malibu í Kaliforníu. Þemað
var einfaldlega París enda
trúlofuðu þau sig þar
árið 2011.
21/10
Idol-stjarnan
Kelly Clarkson giftist
Brandon Blackstock í
Tennessee og var svo mikil
leynd yfir brúðkaupinu að fjöl-
miðlar fengu ekki veður af því
fyrr en daginn eftir. Tæplega
mánuði seinna tilkynnti
Kelly að skötuhjúin ættu
von á sínu fyrsta
barni.
12/10
Leikkonan Rose
McGowan sagði já við
listamanninn Davey Detail
í Los Angeles og klæddist
unaðslegum kjól frá Monique
Lhuillier. Sextíu gestir fögnuðu
með hjónunum og boðið var
upp á Suðurríkjahlaðborð,
meðal annars djúp-
steiktan kjúkling og
vöfflur.
01/07
Söngkonan
Avril Lavigne klæddist
svörtum kjól frá Monique
Lhuillier þegar hún gekk að
eiga Nickelback-goðið Chad
Kroeger í frönskum kastala.
Dagsetningin var engin til-
viljun því 1. júlí 2013 var eitt
ár liðið frá þeirra fyrsta
stefnumóti.
02/11
NSYNC-
sjarmörinn Chris
Kirkpatrick sagði já við
sína heittelskuðu Karly
Skladany í Orlando í Flórída.
Allir hljómsveitarmeðlimir
NSYNC mættu á svæðið
og var ítalskt þema í
brúðkaupinu.
10/09
Glamúrfyrir-
sætan Holly Madison
gekk í það heilaga með
Pasquale Rotella í Disney-
landi. 150 vinir og ættingjar
glöddust með parinu
og var dóttir þeirra,
Rainbow Aurora,
heiðursgestur.
08/06
Madeleine Svía-
prinsessa fann ástina
í örmum bankamannsins
Christopher O‘Neill en þau
giftu sig í Stokkhólmi. Um
470 gestir voru viðstaddir
en prinsessan klæddist
sérsaumuðum kjól frá
Valentino. 08/06
Stjörnukokkurinn
Curtis Stone kvæntist
Lindsay Price á Mallorca
á Spáni. Meðal gesta var leik-
konan Tiffani Thiessen sem
lék með Lindsay í Beverly
Hills 90210 og auðvitað var
sonur Curtis og Lindsay,
Hudson, með í
gleðinni.
14/09
Tónlist spilaði
stórt hlutverk í brúð-
kaupi tónlistarmannsins
John Legend og Chrissy
Teigen. Meðal gesta voru
Stevie Wonder og Kanye West en
brúðguminn kom ástinni sinni á
óvart með frumsamdri ballöðu.
Chrissy klæddist þremur
mismunandi kjólum frá
Veru Wang.