Fréttablaðið - 19.12.2013, Page 86

Fréttablaðið - 19.12.2013, Page 86
19. desember 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | Í ár er fimmti desembermánuður- inn þar sem ég skrifa pistil fyrir Fréttablaðið um kynlíf og jóla- gjafir. Ég hef farið um víðan völl í þeim málum og gjarnan reynt að stýra lesendum í gegnum þessa verslun og byggt bæði á minni reynslu og faglegri þekkingu. Ég hef talað gegn því að gefa nærfatn- að í jólagjöf því slík gjöf endur- speglar oftar langanir þess sem gefur frekar en þess sem þiggur. Það má vel vera skemmtileg gjöf að gefa, og jafnvel þiggja, en að mínu mati á einhverjum öðrum árstíma, við annað tilefni. Sama má segja um kynlífstæki. Það getur verið vandasamt verk að velja slík tól og því vissara að gefa það sem tækifærisgjöf (mögulega að morgni aðfangadags í einrúmi). Ég er hrifin af gjöfum sem stuðla að afslöppun og vellíðan eins og gjafabréf í nudd eða ein- hverja aðra upplifun, jafnvel ávís- un á stefnumót. Hér vísa ég í hina sígildu inneignarmiða sem mér þykja vera góð og hugulsöm gjöf. Ég er kannski ögn væmin en ég er einnig hrifin af skírskotun í innileika sambandsins í gegnum tónlist eða myndaalbúm. Jólagjaf- irnar sem mér þykir hvað vænst um fást því ekki í næstu verslun nema að hluta til. Hér má endi- lega gefa ímyndunaraflinu lausann tauminn og setja markið hátt. Þessar hugleiðingar hafa leitt mig um nokkrar verslanir þar sem ég plokka út smáhluti sem ég tíni svo saman í gjöf handa mínum heittelskaða. Stundum hefði verið skynsamlegra að kaupa bara eina stóra gjöf, það sem hann hafði beðið mig um og virkilega langað í, en ekki bláu skyrtuna sem minnti mig á fyrsta ferðalagið okkar en var ekkert sérlega klæðileg. Ég er að reyna að tóna mig niður í tákn- rænu gjafavali og vera skynsam- legri, kaupa frekar út frá prak- tík, en þó í bland við hugulsemi. Reyndar ber að taka fram að við gefum hvort öðru mjög magran fjárhagsramma fyrir jólagjafir svo úrvalið þrengist enn frekar við það. Er ég velti þessu fyrir mér þá rann það upp fyrir mér að ég vildi gefa honum gjöf sem uppfyllti mín skilyrði en var þó innan fjár- hagsrammans. Ég gaf honum geit, verkfæri, og kassa af smokkum sem hann svo gaf til einstaklinga í mismunandi löndum í Afríku í gegnum Hjálparstarf kirkjunnar og Unicef. Eiginmanninn vantar nefnilega ekkert nema kannski meiri tíma með fjölskyldunni. Ætli það sé ekki samnefnari með okkur flestum um jólin. Það eina sem við virðumst aldrei eiga nóg af er tími svo það gæti verið verðmætasta jólagjöfin Fyrir afganginn getur þú svo glatt einhvern hinum megin á hnett- inum. KYNLÍF TAKTU ÞÁTT! Sendu Siggu Dögg póst og segðu henni frá vandamáli úr bólinu. Lausnin gæti birst í Fréttablaðinu. kynlif@frettabladid.is Ekki gefa kynlífstæki í jólagjöf „Þetta var hálfgerð kraftaverka- stund, þetta var virkilega hátíð- legt,“ segir söngkonan Hallveig Rúnarsdóttir, sem stóð á sviði í miðju tónleikahaldi í Vesturkirkj- unni í Þórshöfn í Færeyjum, þegar rafmagnið fór af. Tónleikagestir tóku þá upp snjallsíma sína og kerti og lýstu upp kirkjuna svo hægt væri að halda tónleikunum áfram. „Ég held að enginn sem var við- staddur þessa tónleika muni gleyma þessu. Ég mun muna þetta alla ævi. Þetta er eitt það magnaðasta sem ég man eftir á mínum ferli,“ útskýrir Hallveig. Sólveig hélt tónleika ásamt Havnarkórnum færeyska, sem er undir stjórn hins skelegga Ólavs Hátún. „Ólavur lætur aldrei neitt stoppa sig. Það var hræðilegt veður í Þórshöfn þegar tónleikarnir fóru fram. Rétt fyrir tónleikana sagði hann mér að við myndum örugg- lega fá fleiri tónleikagesti en gert hafði verið ráð fyrir, því nánast allt annað í bænum var lokað og öðrum tónleikum aflýst.“ Í miðjum tónleikunum slokknaði á öllum ljósum. „Við héldum að rafmagnið myndi koma fljótt aftur á. Við vorum að syngja Messías eftir Händel og vildum ekki hætta. Tónleikagestir tóku upp símana sína og einhverjir fundu til kerti. Kirkjan ljómaði og við gátum haldið áfram.“ Skömmu seinna segir Hallveig að þau hafi fengið fréttir um að rafmagnslaust yrði alla tónleikana. „Við fréttum að þakplata hefði klippt rafmagnslínu í sundur. Við héldum bara ótrauð áfram. Við end- uðum tónleikana á því að ég söng stóra aríu og léku þrír hljóðfæra- leikarar undir. Þetta var einstök upplifun. Kertaljósin lýstu kirkj- una upp,“ rifjar Hallveig upp. Hún segir ekkert ferðaveður hafa verið í Þórshöfn að tónleikunum loknum en henni var boðið í veislu ásamt með- söngvurum sínum á hóteli í bænum. „Sem betur fer var þetta hótel með rafal svo hægt var að elda ofan í okkar. Við gistum á öðru hóteli og þar var ekkert rafmagn. Við klædd- um okkur upp fyrir veisluna við kertaljós og fengum þær fregnir að lögreglan hafi hvatt fólk til að halda sig innandyra, en áfram héld- um við. Havnarkórinn lætur ekkert stoppa sig!“ kjartanatli@frettabladid.is Kraft averkastund í rafmagnslausri kirkju Söngkonan Hallveig Rúnarsdóttir var stödd á sviði í Þórshöfn í Færeyjum þegar rafmagnið fór af. Tónleikagestir lýstu kirkjuna upp með símum og kertaljósi. ÓGLEYMAN- LEGT Tónleikarnir lifa ferskir í minni Hallveigar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM 300W 32 bita magnari 1 hátalari og þráðlaust bassabox Bluetooth tengimöguleiki Verð 79.990.- Full HD 1920 x1080 punktar 200 Hz X-Reality myndvinnslukerfi Nettengjanlegt og innbyggt WiFi Tilboð 179.990.- Verð áður 199.990.- Sony Center Verslun Nýherja Borgartúni / 569 7700 Verslun Nýherja Kaupangi Akureyri / 569 7645 SMÍÐUÐ FYRIR ÆVINTÝRIN Sony ActionCam WIFI HDRAS30 Full HD vatnsheld upptökuvél 1/2.3 baklýst Exmor myndflaga Carl Zeiss Tessar linsa f 2.8 Verð 59.990.- GÓÐ KAUP Á ANDROID SNJALLSÍMA Sony Xperia E 3,5” TFT snertiskjár með HD upplausn 3.2 pixla myndavél Videoupptaka Verð 25.990.- FULLKOMNAR MYNDIR BEINT Í SÍMANN ÞINN DSCQX10 Myndavél sem smellur á snjallsíma 18,2 pixla 1/2.3 Exmor myndflaga Full HD Video Verð 39.990.- Frábært verð! FRAMÚRSKARANDI MYNDGÆÐI 42” Led sjónvarp KDL42W653 HEIMABÍÓ M. ÞRÁÐLAUSUM BASSAHÁTALARA HTCT260H 5 ÁRA ÁBYRGÐ FYLGIR ÖLLUM SJÓNVÖRPUM Hátíðartilboð 179.990.- www.sonycenter.is Aðalland 11 Reykjavík Raðhús með bílskúr Stærð: 152,7 fm Fjöldi herbergja: 3 Byggingarár: 1983 Fasteignamat: 39.450.000 Bílskúr: Já Verð: 44.900.000 Fallegt enda raðhús með bílskúr í fossvoginum. Húsið er 122 fm og bílskúr 30,7 fm. í húsinu eru tvö herbergi, stór stofa, eldhús með nýlegri innréttingu, þvottahús og sólstofa. Úr stofu og sólstofu er flott útsýni til suðurs yfir dalinn. Stór garður fylgir eigninni og bílskúr er sérstæður. Kristján tekur vel á móti öllum í opnu húsi. Lind Þórunn Gísladóttir Lögg. fasteignasali Kristján Þórir Sölufulltrúi thorunn@remax.is kristjan@remax.is Opið Hús Open House ... RE/MAX Lind - Hlíðasmára 6 - 201 Kópavogur - Sími: 5107900 - www.remax.is 5107900 6961122 Við fréttum að þakplata hefði klippt rafmagnslínu í sundur. Við héldum bara ótrauð áfram. Hallveig Rúnarsdóttir 74
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.