Fréttablaðið - 14.02.2014, Síða 1
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Föstudagur
18
SINFÓ OG PERLUR HVÍTA TJALDSINS
Sinfóníuhljómsveit Íslands verður með fjölskyldutónleika
í Eldborgarsal Hörpu á morgun kl. 14. Þar lifna við
eftirlætislög úr töfraheimi kvikmyndanna, ódauðlegar
perlur af hvíta tjaldinu. Flutt verða lög úr Mary Poppins,
Steinaldarmönnunum, Bleika pardusnum, Galdrakarlinum
í Oz og fleiri. Kynnir er hinn sívinsæli Gói.
BRAGÐGÓÐIR LEGGIR
Sterkt kryddmauk er undirstaðan í ljúffengri sósu með stökku leggjunum.
MYND/VILHELM
M atreiðslumaðurinn Úlfar Finnbjörnsson sér um sjónvarpsþáttinn Eldað með Holta á ÍNN. Þar eldar hann ljúffenga rétti úr Holta-kjúklingi fyrir áhorfendur. Hér færir Úlfar okkur uppskrift að soðnum og djúpsteiktum kjúklinga-
leggjum í kryddraspi með harissa-sósu. Úlfar eldaði
þessa girnilegu máltíð síðasta föstudag á sjónvarps-
stöðinni ÍNN. Uppskrift þáttarins í kvöld birtist
síðasta föstudag í Fréttablaðinu. Einnig er hægt að
horfa á þættina á heimasíðu ÍNN, inntv.is.
ELDAÐ MEÐ HOLTA HOLTA KYNNIR Úlfar Finnbjörnsson er einn færasti kokkur landsins. Hann
sér um sjónvarpsþáttinn Eldað með Holta á ÍNN. Þar fáum við að fylgjast með
honum elda ljúffenga kjúklingarétti úr Holta-kjúklingi.
SOÐNIR OG DJÚPSTEIKTIR KJÚKLINGAL
Í KRYDDRASPI MEÐ H
KJÓLARDAGAR Í FLASH
Lífi ð
14. FEBRÚAR 2014
FÖSTUDAGUR
Kristín Helga
Guðmundsdóttir
FLÓAMARKAÐUR
TIL STYRKTAR
KONUKOTI 2
Maggý Mýrdal
eigandi Fonts.is
INNLIT Á
FALLEGT HEIMILI
HENNAR 4
Íris Björk ljósmyndari
í London
ÞAÐ ER ENGINN
DAGUR EINS Í
MÍNU LÍFI 10
2 SÉRBLÖÐ
Lífið | Fólk
Sími: 512 5000
14. febrúar 2014
38. tölublað 14. árgangur
Mestu svikin í heimilisuppbót
Hæstu upphæðirnar í bótasvikum
tengjast heimilisuppbót lífeyrisþega.
Eftirlit hefur sparað ríkissjóði háar
upphæðir á undanförnum sex árum. 8
Leyfa líknardráp á börnum Frum-
varp um líknardráp á börnum var
samþykkt á belgíska þinginu í gær
með miklum meirihluta. Belgía verður
þar með fyrsta landið sem heimilar
líknardráp án lágmarksaldurs. 10
Hart slegist um nautakjöt Skortur
er á sláturgripum og hörð samkeppni
um nautakjöt. Nautgripabændur fá
allt að sex prósenta hækkun á afurða-
verði. 12
SPORT Aðalsteinn Reynir Eyjólfsson
hefur náð undraverðum árangri með
lið Eisenach í Þýskalandi. 42
LÍFIÐ
Vildi ekki hætta í neyslu
Aldís Ósk Egilsdóttir vildi ekki hætta
í neyslu og var á meðferðarheimilum
frá 13 aldri. Hún segir stofnanirnar
nauðsynlegar til að kippa börnum út
úr skaðlegum aðstæðum. 16
FRÉTTIR
Sushi allan
sólarhringinn!
Rómantík á
Valentínusardaginn
STJÓRNSÝSLA „Þetta
verkefni hefur ekki
komist á koppinn
ennþá, og það er rétt
sem segir í bréfinu að við
höfum ekki verið að fram-
fylgja þessu. Ég gengst
við því,“ segir Eyþór
Björnsson fiskistofustjóri
um eftirlit Fiskistofu með
merkingum norskra
eldisseiða í sjókví-
um hér við land.
Strangar reglur
eru um eftirlit.
Óðinn Sig-
þórsson, for-
maðu r L a nds -
sambands veiðifélaga, sendi
fiskistofustjóra bréf á mánudag
til að fá upplýsingar um hvernig
eftirliti með laxeldi í sjó er hátt-
að. Tilefni bréfsins var óskýr
svör um eftirlit með laxeldi í
sjókvíum frá starfsmönnum
Fiskistofu, eins og segir í bréf-
inu. - shá / sjá síðu 6
Landssamband veiðifélaga krefur Fiskistofu um svör vegna laxeldis í sjó:
Lögboðnu eftirliti ekki framfylgt
EFNAHAGSMÁL „Seðlabankinn er
bara að vinna þá vinnu sem hann
þarf að vinna,“ segir Stefán Jóhann
Stefánsson, ritstjóri í Seðlabanka
Íslands.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
forsætisráðherra furðaði sig í ræðu
á Viðskiptaþingi í fyrradag á því að
Seðlabankinn skyldi leggja vinnu
í greiningu á áhrifum skuldaleið-
réttinga ríkisstjórnarinnar á verð-
bólgu sem birt var í Peningamálum
bankans, þegar ríkisstjórnin biði
enn eftir greiningu á greiðslujöfn-
uði Íslands.
„Það var fyrirsjáanlegt að við
þessar aðgerðir yrði um töluverða
breytingu á þjóðhagsspá að ræða
og þess vegna þurfti að skoða þetta
sérstaklega. Þessi viðauki var
nauðsynlegur liður í að undirbúa
bæði ákvarðanir í peningamálum
og síðan að gera þá greiðslujafn-
aðargreiningu sem Seðlabankinn
er að vinna að,“ segir Stefán.
„Til að vinna greiðslujafnaðar-
greininguna þarf þessi vinna að
fara fram, það þarf að meta stöð-
una í efnahagslífinu og það sem
fram kemur í Peningamálum er
liður í því,“ segir Stefán.
Forsætisráðherra sagðist
furða sig á að hagfræðideild
Seðlabankans eyddi tíma og
orku í ítarlega greiningu á áhrif-
um skuldaleiðréttingarinnar.
Hagfræðideild Landsbank-
ans segir ríkisstjórnina
vantreysta Seðlabankanum til að
sinna lögbundnum skyldum.
Stefán segir að Seðlabankinn
eigi að stuðla að stöðugu verðlagi
og ákveðið sjálfstæði vera falið í
því. Hann tjái sig ekki um hvort
vantraust sé milli Seðlabankans
og ríkisstjórnarinnar. - fbj / sjá síðu 10
Seðlabankinn segist
vinna það sem þurfi
Greining Seðlabankans á áhrifum skuldaleiðréttinga ríkisstjórnarinnar er for-
senda þess að bankinn geti gert greiningu á greiðslujöfnuði, sem ríkisstjórnin bað
um, segir talsmaður bankans. Forsætisráðherra gagnrýndi bankann harðlega.
FÓLK „Glaðasti hundurinn ætlar
í útrás,“ segir Gunnar Lárus
Hjálmarsson, betur þekktur sem
Dr. Gunni. Búið er að hljóðrita
lagið Glaðasti hundur í heimi á
grænlensku, færeysku og dönsku.
Friðrik Dór Jónsson syngur
nýju útgáfurnar eins og þá
fyrstu. „Ég hefði ekki getað gert
þetta án þeirrar aðstoðar sem
ég fékk frá grænlenskum vini
mínum, John Kristiansen,“ segir
Friðrik Dór.
„Frikki varð alveg smá pirr-
aður þegar illa gekk með græn-
lenskuna en það var bara fyndið,“
bætir Dr. Gunni við. - glp / sjá síðu 46
Dr. Gunni og félagar í útrás:
Glaði hundurinn
nú á grænlensku
Bolungarvík -1° NA12
Akureyri -1° NA 6
Egilsstaðir 0° NA 8
Kirkjubæjarkl. 2° NA 5
Reykjavík 3° NA 7
KÓLNANDI Minnkandi norðaustanátt og
úrkoma, víða 5-13 m/s og él NA-lands en
bjartviðri S- og V-til. Kólnar í veðri. 4
SKOÐUN Soffía Sigurgeirsdóttir
hvetur til þess að dansað verði fyrir
betri heimi. 19
MENNING Kraftlyftingar kvenna
njóta síaukinna vinsælda meðal ís-
lenskra kvenna. 36
SPRENGT Í BAKGARÐINUM „Hér hefur allt nötrað og skolfi ð fi mm til sex sinnum á dag frá því að byrjað var að sprengja,“ segir Svanlaug Rós Ásgeirsdóttir sem
býr aðeins sex metra frá þeim stað þar sem sprengt er fyrir bílakjallara fj ölbýlishúss á Lýsisreitnum. Íbúar vilja bætur vegna skemmda en verktakinn segist hafa sprengt
innan viðmiðunarmarka. Sjá síðu 4. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
JOHN KRISTIANSEN OG FRIÐRIK DÓR
Það var fyrirsjáan-
legt að við þessar
aðgerðir yrði um
töluverða breytingu á
þjóðhagsspá að ræða.
Stefán Jóhann Stefánsson,
ritstjóri í Seðla-
banka Íslands