Fréttablaðið - 14.02.2014, Side 2

Fréttablaðið - 14.02.2014, Side 2
14. febrúar 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 2 FÓLK „Stærstu sigurvegararnir sem við höfum kynnst í okkar starfi eru í hópi fólks í yfirvigt.“ Þetta segir Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands, sem er að hleypa af stokk- unum nýju verkefni, The Biggest Winner, sem ætlað er feitum, flott- um og frábærum. „Við erum bjartsýn á góða þátt- töku. Þetta er verkefni fyrir fólk í yfirvigt þar sem boðið verður upp á rólegar gönguferðir auk stöðuæf- inga. Stór hópur sem er að berjast við ofþyngd vill komast út í náttúr- una. Við ætlum að hjálpa þessum einstaklingum til að taka fyrsta skrefið og síðan eitt skref í einu.“ Niðurstöður rannsóknar Kenn- araháskóla Íslands, Reykjalundar og Ferðafélags Íslands fyrir tveim- ur árum á áhrif gönguferða sem heilsubót fyrir of þunga voru sér- lega jákvæðar, að sögn Páls. „Í þessum hópi voru meðal ann- ars einstaklingar sem voru 120 til 150 kg. Þeir áttu fyrst erfitt með að ganga nokkur hundruð metra á jafnsléttu. Síðan gátu þeir svo farið á létt fjöll og enduðu jafnvel með því að klífa hæstu tinda landsins og fræg fjöll víða um heim. Við sáum ótrúlegar framfarir hjá fólki.“ Læknar og sjúkraþjálfarar taka þátt í nýja verkefninu, að því er Páll greinir frá. „Það verður boðið upp á mælingar og fylgst verður með fólki. Það verður lögð áhersla á að vinna með einstaklinga á jákvæðan og uppbyggilegan hátt og út frá styrkleikum hvers og eins. Um leið og fólk vinnur með styrkleika sína er það betur í stakk búið til að takast á við veikleik- ana.“ ibs@frettabladid.is Fjallgöngur hjá FÍ fyrir feita og flotta Ferðafélag Íslands býður upp á gönguferðir fyrir of þunga. Góður árangur af slíkum ferðum í rannsóknarverkefni. Einstaklingar sem voru 120 til 150 kíló gátu í lokin klifið hæstu tinda landsins. Ótrúlegar framfarir, segir framkvæmdastjóri FÍ. Þótt Pálmi Gestsson leikari hafi verið í góðu formi þegar hann ákvað að klífa eitt fjall á viku með Ferðafélagi Íslands í fyrra velti hann því fyrir sér hvort hann gæti í raun og veru staðið við þessa ákvörðun. „Það kom fyrir mig sem ég hugsa að komi fyrir marga. Ég taldi að ég gæti aldrei staðið við þetta en svo áttaði ég mig fljótlega á því að ég þótt ég tæki þátt í þessu væri það ekki skylda að fara á öll fjöllin 52. Hvert fjall sem ég gengi á væri bara plús,“ segir hann og bætir því við að hann hafi þurft að sleppa nokkrum fjallgöngum vinnu sinnar vegna. Pálmi, sem kveðst vera alinn upp í sjávarþorpi og hafa leikið sér í fjörunni og fjallinu og alls staðar þar á milli, hefur verið í hestamennsku og stundað annars konar líkamsrækt í gegnum tíðina. „Fjallgöngurnar eru hins vegar besta og áhrifa- mesta líkamsræktin. Ég fór í þetta til þess að rækta bæði líkama og sál og hvet svo sannarlega alla til þess að taka þátt í svona ferðum.“ Fjallgöngur áhrifamesta líkamsræktin Óskar, fara þá ekki allir að síma í tíma? Jú, og í ótíma líka. Óskar S. Einarsson er skólastjóri Fossvogs- skóla, þar er farsímanotkun ekki leyfð á skóla- tíma. Formaður skólastjórafélagsins segir hins vegar að kenna ætti börnum notkun farsíma í skólum. FJALLGANGA Göngufólk á fallegum degi á fjöllum. DÓMSMÁL Hæstiréttur sýknaði í gær þá Lárus Snorrason, áður þekktan sem Lárus Welding, og Guðmund Snorrason í Vafn- ingsmálinu svokallaða. Guðmundur og Lárus, fyrrverandi stjórn- endur Glitnis banka, höfðu í héraði hlotið níu mánaða fangelsisdóm fyrir umboðs- svik með því að hafa samþykkt rúmlega 100 milljóna evra lánveitingu til félagsins Milestone árið 2008 og hafa þannig misnot- að aðstöðu sína og stefnt fé Glitnis banka í stórfellda hættu. Hæstiréttur sýknaði hins vegar tvímenn- ingana á þeim forsendum að ósannað væri að farið hefði verið umfram þá áhættu sem bankinn hefði talið viðunandi og því væri skilyrði umboðssvika um verulega fjár- tjónsáhættu ekki uppfyllt. Ólafur Þór Hauksson, sérstakur sak- sóknari, sagði í samtali við Fréttablaðið að í kjölfarið yrði farið vandlega yfir dóminn og forsendur hans. „Við munum leggja til grundvallar þær niðurstöður sem dómurinn kemst að, horfa til þeirra atriða sem hann byggir á og nota þau við úrvinnslu þeirra mála sem ennþá eru til meðferðar hjá embættinu,“ sagði Ólafur Þór. - eh Sýkna Lárusar Welding og Guðmundar Snorrasonar í Hæstarétti í gær hefur áhrif á önnur mál: Saksóknari fylgir fordæmi Vafningsdóms NIÐURSTAÐAN SKOÐUÐ Ólafur segir að þau mál sem eru til úrvinnslu hjá embættinu verði skoðuð samhliða dómnum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM PÁLMI GESTSSON BANDARÍKIN, AP „Þetta hefur verið erfiður vetur. Það er engu líkara en honum ætli aldrei að ljúka,“ segir Deb Ragan, sem í gær bisaði við að moka gangstétt í borginni Philadelphiu. Snjónum hefur kyngt niður á austurströnd Bandaríkjanna í slíku magni að annað eins hefur ekki sést áratugum saman. Loka þurfti báðum flugvöllum höfuðborgarinnar Washington vegna fannfergis. Fella þurfti niður meira en sex þúsund flugferðir í gær. Meðal þeirra sem hafa áhyggjur af ástandinu eru blómasalar, sem sjá fram á að óvenju fáir komist leiðar sinnar til að kaupa blóm á Val- entínusardeginum, sem er í dag. Um 750 þúsund heimili og fyrirtæki hafa verið rafmagnslaus í Georgíu, Suður-Karólínu, Norður-Karólínu og Alabama. Þá hafa að minnsta kosti sautján manns látist af völdum veðursins, flestir reynd- ar í umferðarslysum. - gb Að minnsta kosti sautján látnir vegna vetrarveðurs: Snjórinn lamar mannlífið vestra LÉTU EKKI FANNFERGIÐ TRUFLA SIG Nokkrir dugnaðarforkar sáust hlaupa framhjá minnismerkinu um Abraham Lincoln í Washington. FRÉTTABLAÐIÐ/AP KJARAMÁL Framhaldsskólakennarar munu í næstu viku greiða atkvæði um hvort boðað verði til verkfalls vegna yfirstandandi kjaradeilu þeirra við ríkið. Þetta var ákveðið á fundi trúnaðarmanna og foramanna kenn- arafélaga í gær. Undirbúningur atkvæðagreiðslunnar er þegar hafinn og mun hún fara fram 18. til 21. febrúar. Verði af verkfallinu má búast við að það verði eftir um það bil mánuð en sam- kvæmt lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanna ber að tilkynna ríkissáttasemj- ara og þeim sem vinnustöðvun beinist gegn um vinnustöðvun að minnsta kosti 15 sólar- hringum áður en hún skal hefjast. Kjarasamningar framhaldsskólakennara hafa verið opnir síðan 31. janúar og hafa við- ræður kennara við ríkið staðið yfir síðan í desember. Enn ber mikið á milli samningsaðila en ríkið hefur boðist til að mæta 17 prósenta launahækkunarkröfu framhaldsskólakenn- ara með 2,8 prósenta hækkun launa. - eh, sój Forystumenn félaga framhaldsskólakennara boða til atkvæðagreiðslu: Atkvæðagreiðsla um verkfall KJARAMÁL Síðdegis í gær var gengið frá nýjum samningi sjúkraþjálfara við Sjúkratrygg- ingar Íslands. Starfsemi sjúkra- þjálfara verður því með venju- bundnum hætti frá og með deginum í dag, með greiðsluþátt- töku Sjúkratrygginga Íslands samkvæmt nýrri reglugerð sem einnig var sett í gær. Í tilkynningu fagnar Félag sjúkraþjálfara því að heilbrigðis- ráðherra hafi áttað sig á alvar- leika málsins og fundið leið til að leysa þann hnút sem það var komið í. - sój Samið við Sjúkratryggingar: Sjúkraþjálfun áfram óbreytt SVEITARSTJÓRNARMÁL Kópavogs- bær og Garðabær hafa gert sam- komulag við Hestamannafélagið Sprett um rekstrarstyrk vegna starfsemi félagsins með það að markmiði að efla barna- og ung- lingastarf á vegum þess. Sveitarfélögin munu hvort um sig greiða sex milljónir gegn því að Sprettur ráðstafi styrknum til reksturs nýrrar reiðhallar og til barna- og unglingastarfs. Sprettur vígði á dögunum nýja 4.000 fermetra reiðhöll á Kjóa- völlum en reiðhöllin er sú stærsta á landinu. -eh Hestamannafélag fær styrk: Leggja grunn að barnastarfi VERKFALL Fari framhaldsskólakennarar í verkfall mun það án efa bitna á þeim nemendum sem hyggja á útskrift í vor. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL SPURNING DAGSINS í afmæliskaffi Frábær afmælistilboð Hlökkum til að sjá þig! Stofnuð 15. febrúar 1974 OPIÐ Föstudag 11 - 18 Laugardag 11 - 16

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.