Fréttablaðið - 14.02.2014, Síða 4

Fréttablaðið - 14.02.2014, Síða 4
14. febrúar 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 4 41 hjólreiðamaður lenti í um-ferðarslysi á Íslandi árið 1982. Þrjátíu árum síðar, 2012, lentu 87 hjólreiðarmenn í umferðarslysi á landinu. Heimild: Hagstofan.is. FJÁRÖFLUN Meistaranemar í við- skiptafræðideild við Háskóla Íslands standa að átakinu „Öll í einn hring“ sem snýst um að safna fé til tækjakaupa fyrir Barnaspítala Hringsins. Átakið stendur 15. til 20. febrúar. „Þetta er málefni sem snertir okkur öll og því er unnið að þessu verkefni af mikilli ánægju og áhuga. Við höfum einnig mætt gríðarlegum velvilja almenn- ings,“ segir Sigrún Halldórsdóttir meistaranemi. Hægt verður að leggja átakinu lið á Bland.is. - fb Meistaranemar við HÍ: Átak fyrir Barnaspítalann BARNASPÍTALI HRINGSINS Átakið „Öll í einn hring“ hefst á laugardaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundur@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is SVONA ERUM VIÐ -90% AFSLÁTTUR ALLT AÐ Við höfum opnað útsölumarkað í öllum okkar verslunum, mikið úrval af skrifstofu- vörum, föndri, spilum , leikföngum, náms- og kennsluvörum og fleira og fleira, allt að 90% afsláttur. Komdu við og gerðu góð kaup. ÚTSÖLUMARKAÐUR A4 Skeifunni 17 / A4 Smáratorgi 1 / A4 Reykjavíkurvegi 62, Hafnarfirði A4 Dalsbraut 1, Akureyri / A4 Egilsstöðum / A4 Selfossi Elísabet Margeirsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá Sunnudagur 5-10 m/s. HELGARVEÐRIÐ Veðrið verður útivistar- og skíðafólki svo sannarlega í hag um helgina. Vindur verður víðast fremur hægur og úrkomulaust að mestu en stöku él norðaustan til. Frystir um allt land og því eins gott að klæða sig vel! -1° 12 m/s 1° 10 m/s 3° 7 m/s 5° 8 m/s Á morgun 3-10 m/s. -4° -4° -4° -5° -6° Alicante Basel Berlín 21° 11° 6° Billund Frankfurt Friedrichshafen 6° 6° 8° Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas 4° 4° 23° London Mallorca New York 11° 21° 3° Orlando Ósló París 20° 2° 12° San Francisco Stokkhólmur 14° 2° 2° 5 m/s 2° 13 m/s 0° 8 m/s 0° 9 m/s -1° 6 m/s 0° 9 m/s -4° 8 m/s -2° -4° -3° -2° -3° BYGGINGAR „Heilbrigð skynsemi segir manni að ef einhver skemm- ir fyrir manni eigi hann að bæta fyrir það,“ segir Auður Sigríður Kristinsdóttir, íbúi á Grandavegi. Auður telur að vegna sprenginga á klöpp á Lýsisreitnum þar sem byggja á fjölbýlishús hafi molnað úr grjótveggjum í kjallara timbur- húss hennar sem byggt var 1981. Einnig hafi molnað úr fúgum á baðherbergi og klukka sem oft hafi dottið úr hillu í stofu gangi ekki lengur. „Fyrir tveimur vikum kölluð- um við á forstjóra Hagtaks, und- irverktakans sem sér um spreng- ingarnar, og fulltrúa VÍS sem er tryggingafélag hans. Þeir sögðu þetta afleitt en svo héldu þeir bara áfram að sprengja.“ Auður segir að á fundi íbúa í Vesturbænum á mánudag með fulltrúum ýmissa hlutaðeigandi hafi byggingarfulltrúi sagt kraft sprenginganna hafa verið innan leyfilegra marka reglugerðar. „Fulltrúi VÍS sagði að þess vegna væri tryggingafélagið ekki skyldugt til að bæta skaðann. Þeir greiddu bara ef um sök væri að ræða. Eftir fundinn funduðu eft- irlitsaðilar með verktakanum og í kjölfarið var krafturinn í spreng- ingunum minnkaður.“ Svanlaug Rós Ásgeirsdóttir býr á Lágholtsvegi, aðeins sex metrum frá klöppinni sem sprengd er. „Hér hefur allt nötrað og skolf- ið fimm til sex sinnum á dag frá því byrjað var að sprengja. Það er sprunga í vegg innanhúss og klæðningin utan á húsinu er að losna. Það virð- ist vera sem reglu- gerðin um sprengingar sé ansi rúm og ekki eiga við í þéttbýli. Hins vegar hef ég heyrt að það sé yfir- leitt venjan þegar sprengt er í þétt- býli eða nálægt húsum að minnka leyfilegan hámarkskraft í spreng- ingum um helming sem nú er loks- ins búið að gera hér. Þetta er orðið mun bærilegra en samt ansi mikið. Þeir eru svo svakalega nálægt.“ Svanlaug segir verktakann hafa greint frá því að íbúar þyrftu ekki að hafa miklar áhyggjur því hann væri með tryggingu. „Svo var maður upplýstur um að hún gilti bara ef krafturinn í sprengingunum væri of mikill eða ef verktakinn hefði sýnt af sér vítavert gáleysi. En í reglugerðinni segir að huga þurfi að nágrenninu og að ekki megi valda skemmdum. Þar með eru þeir búnir að brjóta af sér.“ ibs@frettabladid.is Ef einhver skemmir fyrir manni á hann að bæta það Íbúar nálægt Lýsisreitnum segja sprengingar þar vegna byggingaframkvæmda hafa valdið skemmdum á húsum þeirra. Þeir vilja bætur. Tilkynnt að sprengikraftur hafi verið innan leyfilegra marka reglugerðar. Reisa á fjölbýlishús með 141 íbúð á Lýsisreitnum á mótum Grandavegar og Eiðsgranda. Hinn 6. janúar síðastliðinn var byrjað að sprengja klöpp á reitnum sem er fyrir bílakjallara og er sprengt fimm til sex sinnum á dag. Áætluð lok sprenginga voru um mánaðamót febrúar og mars. „Það gæti dregist vegna ákvörðunar um að draga úr krafti sprenginga. Magn sprengiefnis var minnkað um helming,“ segir Brynjar Einars- son, talsmaður Þingvangs, bygg- ingarfélagsins sem stendur að framkvæmdunum. Hagtak, sem er undirverktaki Þingvangs, sér um sprengingarnar. Áætlað er að byggingu fjölbýlishússins verði lokið í lok næsta árs eða í byrjun ársins 2016. ➜ Magn sprengiefnis minnkað um helming Á fundi Hverfisráðs Vesturbæjar í gær var meðal annars fjallað um áhyggjur íbúa vegna sprenging- anna á Lýsisreitnum. Hildur Sverr- isdóttir, borgarfulltrúi og formaður ráðsins, segir að ákveðið hafi verið að beina því til umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar að það beitti sér fyrir því að tekið yrði föstum tökum hver innan borgarkerfisins geti borið ábyrgð á framkvæmdum eins og þeim sem eru á Lýsisreitnum. „Á fundi með íbúum kom fram að verktakinn telur sig vera innan lagalegra viðmiða. Þegar fyrir liggur að stefna borgarinnar er að þétta byggð er það brýnt hagsmunamál fyrir íbúa að það sé skýrt hver beri ábyrgðina. Fram- kvæmdir eiga að ganga betur en svo að íbúar séu óöruggir með rétt sinn,“ segir Hildur. ➜ Liggja þarf fyrir hver ber ábyrgð FRAMKVÆMDIR Á LÝSISREITNUM Hús Svanlaugar Rósar Ásgeirsdóttur er í aðeins sex metra fjar- lægð frá þeim stað þar sem verið er að sprengja. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA DÓMSMÁL Í ljósi þess að sérstakur saksóknari hefur gefið út ákæru á hendur Þorvaldi Lúðvík Sig- urjónssyni, framkvæmdastjóra Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarð- ar (AFE), hefur stjórn AFE orðið við ósk hans um tímabundið leyfi frá starfsskyldum. Í fréttatilkynningu kemur fram að Oddur Helgi Halldórsson muni sinna opinberum skyldum félags- ins á meðan en Þorvaldur mun þó áfram sinna öðrum verkefnum sem hann hefur haft með höndum fyrir félagið. - eh Ákæra gefin út í Stím-máli: Fer í leyfi vegna ákæru sérstaks SPRUNGA Svan- laug Rós bendir á sprungu í vegg. MANNRÉTTINDI Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra kom í gær heim frá Rússlandi eftir að hafa verið viðstaddur Vetrarólympíu- leikana í Sotsjí. Illugi bar sem kunnugt er trefil í regnbogalitunum við setningar- athöfn leikanna en trefilinn fékk hann að gjöf frá samtökunum ´78 og Hinsegin dögum í Reykjavík áður en hann hélt utan. Illugi sagði fulltrúunum að hann væri fyrst og fremst að fara til Rússlands til að þiggja boð á Ólympíuleika og hann vissi ekki hvort hann myndi hitta rússneska ráðamenn. Það kom svo á daginn að Illugi hitti enga rússneska ráðamenn en Sigríður Hallgrímsdóttir, aðstoð- armaður ráðherra, sagði í samtali við Fréttablaðið að ráðherra hefði gert það sem hann gat. „Illugi hitti íþróttamálaráðherra annarra Norðurlanda og gerði það sem hann hafði tækifæri til að gera til að koma mótmælum gegn mannréttindabrotum á framfæri,“ sagði Sigríður og vísaði til mynd- arinnar með trefilinn. - eh Illugi Gunnarsson sneri heim í gær af Vetrarólympíuleikunum í Sotsjí: Hitti enga rússneska ráðamenn TREFILLINN Illugi bar sem kunnugt er trefil frá samtökunum ´78 við setning- arhátíð Ólympíuleikanna í Sotsjí. BRETLAND, AP William Hague, utanríkisráðherra Bretlands, segist hafa trú á því að nú muni baráttan gegn viðskiptum með fílabein fara að ganga betur. Á alþjóðlegri ráðstefnu í Lond- on í gær hétu fulltrúar stjórn- valda víða um heim því að herða nú róðurinn gegn veiðiþjófnaði, með það fyrir augum að bjarga Afríkufílnum og fleiri dýrateg- undum í útrýmingarhættu. Skor- að var þau á ríki sem gert hafa fílbein upptækt að eyða því. - gb Ráðast gegn veiðiþjófnaði: Reynt að bjarga afrískum fílum

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.