Fréttablaðið - 14.02.2014, Síða 8

Fréttablaðið - 14.02.2014, Síða 8
14. febrúar 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 8 ÞAÐ GETA EKKI ALLIR VERIÐ GORDJÖSS Það er mikið í mig lagt Þú veist það um leið og þú sérð hann. Það er eitthvað einstakt við Range Rover Evoque. Hönnunin grípur þig samstundis. Útlitið er loforð um ævintýri, þægindi og óbeislaða upplifun. Búnaðurinn er á heimsmælikvarða, hvort sem um ræðir aksturseiginleika, fjöðrunarbúnað, drifkerfi eða afl. Reynsluaktu Evoque og leyfðu honum að heilla þig. Hafðu samband í síma 525 8000 eða komdu í heimsókn. www.landrover.is E N N E M M / S ÍA / N M 6 11 4 5 *M ið að v ið u pp ge fn ar v ið m ið un ar tö lu r fr am le ið an da u m e ld sn ey tis no tk un í bl ön du ðu m a ks tr i. RANGE ROVER EVOQUE – VERÐ FRÁ 8.770.000 KR. 4x4 - TD4 2,2 dísil, 9 þrepa sjálfskipting. Eyðsla 6,5 l/100 km.* BL Sævarhöfða 2, sími 525 8000 ➜ Sparnaður ríkissjóðs vegna stöðvana bóta, eftir flokkum Heimilisuppbót Mæðra-/feðralaun Meðlag Búsettir erlendis 549.000 kr. 62.564.000 kr. 690.000 kr. 5.941.000 kr. 878.000 kr. 12.266.000 kr. 1.863.000 kr. 17.354.000 kr. 2007 2013 Sparnaður í heild ef bætur sem voru stöðvaðar árin 2007 - 2013 hefðu ver- ið greiddar áfram í fi mm ár eða tíu ár 2,3 milljarðar miðað við fimm ár 4,6 milljarðar miðað við tíu ár VELFERÐARMÁL Mesti sparnaður- inn sem hlotist hefur af eftirlits- aðgerðum Tryggingastofnunar með bótasvikum er vegna heimil- isuppbótar, 240 milljónir frá árinu 2007. Þetta kemur fram í svari félags- og tryggingamálaráðherra við fyrirspurn Vigdísar Hauks- dóttur þingmanns um bótasvik. Næstmestur sparnaður hlaust vegna stöðvunar meðlaga, eða 116 milljónir á tímabilinu 2007 til 2013. Þá er sparnaður vegna stöðv- unar greiðslna til þeirra sem búa erlendis 61 milljón á tímabilinu og stöðvunar mæðra- og feðralauna 47 milljónir. Hjá Tryggingastofnun feng- ust þær upplýsingar að áhersl- an á þessa bótaflokka helgist af því hvaða upplýsingum stofnunin hefur aðgang að. „Sé eitthvert eftirlit réttlætan- legt þá er það eftirlit með bóta- og skattsvikum,“ segir Vigdís. Hún hefur að auki lagt fram sambæri- lega fyrirspurn á Alþingi sem snýr að skattsvikum. Hagræðingarhópur, sem Vig- dís veitti formennsku, lagði til að farin yrði svokölluð norsk leið þar sem ein útgreiðslustofnun vegna allra greiddra bóta hefur heimild til að samkeyra opinber gögn til að koma í veg fyrir rangar greiðslur og bótasvik. Forstjóri Trygginga- stofnunar, Sigríður Lillý Baldurs- dóttir, hefur einnig lýst áhuga á að fara þá leið. „Í hagræðingarhópnum og í fjárlaganefnd þurftum við að velta fyrir okkur hverri einustu krónu, og þá fór ég að hugleiða hvað fari mikið fram hjá ríkissjóði í skatt- og bótasvikum,“ útskýrir Vigdís, en leggur áherslu á mikilvægi góðs bótakerfis fyrir þá sem ekki geta verið á vinnumarkaði. Vigdís telur líklegt að kostnað- ur vegna bótasvika sé enn hærri en kemur fram í svari ráðherra. „Sumir segja að þetta séu sex til tíu milljarðar á ári,“ segir hún. Sparnaðurinn sem hlýst af eftir- liti Tryggingastofnunar er settur í samhengi við aðrar greiðslur stofnunarinnar í svari ráðherra. Tæplega 120 milljónir króna spör- uðust með eftirliti á árinu 2012, en útgjöld vegna maka- og umönnun- arbóta námu alls 127 milljónum árið 2013. Þá greiddi stofnunin tæplega tvö þúsund foreldrum langveikra og alvarlega fatlaðra barna sam- tals 121 milljón króna í umönnun- argreiðslur í janúar 2014. Í svarinu kemur einnig fram að Tryggingastofnun hafi ekki tekið saman þann sparnað sem hlýst af svokölluðu samtímaeftirlit, en talið er að þær upphæðir hlaupi á milljörðum króna. Forstjóri Tryggingastofnunar segir enga leið að meta heildar- umfang bótasvika út frá aðgerð- um eftirlitsdeildar stofnunarinnar. „Við erum rétt að snerta yfirborðið miðað við nágrannalöndin,“ segir Sigríður Lillý. eva@frettabladid.is Flest svik tengjast heimilisuppbót Eftirlit með bótasvikum hefur sparað ríkissjóði háar upphæðir á undanförnum sex árum. Hæstu upphæðirnar tengjast heimilisuppbót líf- eyrisþega og fylgist Tryggingastofnun sérstaklega vel með þeim bótaflokki. Þingmaður telur líklegt að upphæðirnar séu enn hærri og vill leggja meira í eftirlitið. Framkvæmdastjóri Öryrkjabandalagsins bendir á að ekki sé auðvelt að komast á örorkubætur og mikið eftirlit fylgi. Hjá Tryggingastofnun fengust þær upplýsingar að ástæða þess, að heimilisuppbót er stærsti bótaflokk- urinn þegar kemur að sparnaði vegna bótasvika, er að heimilisuppbót er útgjaldamikill bótaflokkur. Tiltölu- lega auðvelt er að sannreyna undirliggjandi forsendur, miðað við aðra flokka, auk þess sem reynslan hafi sýnt að fylgjast þurfi vel með þessum bótaflokki. Skilyrðin sem þarf að uppfylla til þess að fá heimilis- uppbót er að búa einn og vera búsettur á Íslandi. Þá mega ellilífeyrisþegar hafa tekjur allt að 290.300 krónum á mánuði, en örorkulífeyrisþegar 294.592 krónur, áður en heimilisuppbótin fellur niður. Heimilisuppbót er tæpar 32.809 krónur á mánuði, eða um það bil 15 prósent af heildarupphæð bóta. Jafnvel þótt sambýlingur lífeyrisþega sé tekjulaus, fellur heimilisuppbótin niður um leið og bótaþegi býr ekki lengur einn. Þá fellur hún einnig niður þegar börn líf- eyrisþega ná 18 ára aldri. ➜ Hvað er heimilisuppbót? „Það er nauðsynlegt að hafa í huga að inni í þessum tölum eru auk örorkulífeyrisþega ellilífeyrisþegar og aðrir hópar sem fá bætur,“ segir Lilja Þorgeirsdóttir, framkvæmdastýra Öryrkjabandalagsins. Hún bendir jafnframt á að það séu dæmi um að fólk fái ekki greitt það sem því ber. Ellilífeyrisþegar voru tæplega þrjátíu þúsund árið 2013 en örorkulífeyrisþegar rúmlega sextán þúsund. Lilja leggur áherslu á að meginþorri lífeyrisþega er heiðarlegur. „Það fer mikið púður í að rannsaka bótasvik, en fólk þarf að vita að það er ekki auðvelt að komast á örorkubætur og það er mikið eftirlit í því ferli,“ segir Lilja. Árið 2013 voru skráð bótasvikamál hjá TR samtals 627, en heildarfjöldi lífeyrisþega það ár var 48.411, auk annarra hópa sem þiggja bætur. ➜ Ekki auðvelt að komast á örorkubætur BÓTASVIK Rúmlega sex hundruð bóta- svikamál komu inn á borð eftirlitsdeild- ar Tryggingastofnunar á síðasta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.