Fréttablaðið - 01.04.2014, Síða 28
1. apríl 2014 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 24
TÓNLIST ★★ ★★★
Hans og Gréta
Engelbert Humperdinck
ÓP-HÓPURINN Í SALNUM Í KÓPAVOGI
SUNNUDAGINN 30. MARS.
Mörg lítil, ákaflega prúðbúin
börn voru í fylgd með foreldrum
sínum á barnaóperusýningunni
Hans og Grétu í Salnum í Kópa-
vogi á sunnudaginn. Það voru
tvær sýningar þann dag, ég var á
þeirri fyrri sem var klukkan hálf
tvö. Ein stúlkan var klædd alveg
eins og mamma sín. Stemningin
virtist góð. En þegar ég settist
inn, heyrði ég að barn í anddyr-
inu byrjaði að hágráta. Það æpti
„nei, nei, NEI!!!“ Kannski var
það svona hrætt við galdranorn-
ina, sem í ævintýrinu um Hans
og Grétu er ekki bara norn, held-
ur mannæta.
Óperan er eftir Engelbert
Humperdinck, en hann var uppi
á seinni hluta nítjándu aldar. Það
er heilmikill Wagner í tónlist-
inni, en hann var uppi á svipuð-
um tíma og hafði gríðarleg áhrif
á mörg tónskáld. Samt er tónlist-
in þjóðlagakennd; „Það búa litlir
dvergar“ er t.d. úr þessari óperu.
Ævintýrið sjálft er líka meira og
minna eins og ég man eftir því
úr bernsku.
Rétt áður en sýningin hófst
heyrði ég barn fyrir aftan mig
furða sig á því að Hans væri
leikinn af konu. Það var Sigríður
Aðalsteinsdóttir, en sýningarn-
ar voru alls fjórar og misjafnt
hverjir fóru með hlutverkin eftir
sýningum. Vissulega var dálítið
skringilegt að kona skyldi leika
strák. En Sigríður virkaði hæfi-
lega stráksleg til að passa ágæt-
lega inn í hlutverkið, og hún söng
allan tímann af yfirburðum.
Í það heila voru söngvararn-
ir með sitt á hreinu. Gréta var
leikin af Erlu Björgu Káradótt-
ur, Jóhann Smári Sævarsson var
pabbinn, Bylgja Dís Gunnars-
dóttir var bæði mamman og norn-
in og Hanna Þóra Guðbrandsdótt-
ir var Óli Lokbrá. Þau sungu öll
af fítonskrafti. Tilfinningarnar í
söngtúlkuninni voru auðmerkjan-
legar, en samt var flutningurinn
agaður og nákvæmur.
Leikstjórn Maju Jantar vakti
hins vegar spurningar. Jantar
fór þá leið að láta söngvarana
leika eins og þeir væru fávitar.
Ofleikurinn var svo ofboðslegur
að það fór um mann hvað eftir
annað. Hugsanlega var ástæðan
fyrir þessu sú að það er engin
textavél í Salnum líkt og Íslenska
óperan býr yfir. Þótt sungið væri
á íslensku var stundum erfitt að
skilja söngvarana. Ýkt látbragð
átti e.t.v. að vinna þar upp á
móti. Látbragðið átti líka að vera
fyndið, en ef marka má viðbrögð
barnanna í kringum mig þá fór
það að mestu fyrir ofan garð og
neðan hjá þeim.
Sterkasta hlið leikgerðarinn-
ar var þegar allir voru kallaðir
út úr salnum og látnir setjast í
anddyrið. Þar fór fram kaflinn
þegar Hans og Gréta villtust í
skóginum. Þetta var frumlegt og
það lyfti stemningunni heilmik-
ið. Salurinn í Kópavogi er ekki
ætlaður fyrir óperusýningar, en
þegar hægt er að nota allt húsið
sem vettvang fyrir óperuplott,
þá er það mjög af hinu góða. Það
gerir húsið spennandi. Verst bara
hvað bannsettur síminn í miða-
sölunni hringdi látlaust. Miðasal-
an er í anddyrinu og þegar sím-
inn hringir þar glymur í honum
um allt. Þetta var töluvert trufl-
andi.
Tónlistarstjórnin var í hönd-
unum á Hrönn Þráinsdóttur, sem
spilaði á píanó. Ópera Humper-
dincks er hugsuð fyrir hljómsveit
og þannig er tónlistin áhugaverð-
ari; fleiri litir eru í tónmálinu.
Hrönn spilaði þó í sjálfu sér afar
fallega, skýrt og með nostursam-
lega mótaðri hljómfegurð. Því
miður dugði það ekki til.
Jónas Sen
NIÐURSTAÐA: Góður söngur og
píanóleikur en misjöfn leikstjórn,
sem gerði að verkum að sýningin í
heild missti marks.
Ofleikin Hans og Gréta
HANS OG GRÉTA „Þótt sungið væri á íslensku var stundum erfitt að skilja söngvar-
ana. Ýkt látbragð átti e.t.v. að vinna þar upp á móti.“
Þetta er tónsmíðakeppni á vegum
Berlínarfílharmóníunnar sem
heitir Opus one og er fyrir ung-
linga á aldrinum fjórtán til nítján
ára,“ segir Hjalti Nordal Gunn-
arsson spurður út í tildrög þess
að meðlimir úr Berlínarfílharm-
óníunni og hljómsveit akademíu
hennar fluttu strengjatríó eftir
hann á tónleikum á sunnudags-
kvöldið. „Á vefsíðunni stóð að
keppnin væri fyrir þýska ríkis-
borgara en ég sendi þeim tölvu-
póst og spurði hvort ég mætti
vera með, sem var samþykkt. Það
voru fjögur verk valin til flutn-
ings á tónleikunum og mitt var
eitt af þeim. Auk þess var það
eina verkið úr samkeppninni sem
var valið til flutnings á sérstök-
um kammertónleikum Fílharm-
óníunnar seinna um kvöldið.“
Hjalti, sem er fimmtán ára,
stundar fiðlunám hér heima og
hefur ekki lært tónsmíðar en
segist þó hafa samið nokkur tón-
verk. „Ég hef samt ekki samið
mjög mikið,“ segir hann hógvær.
Hjalti tók ekki þátt í flutningi
verksins en var viðstaddur tón-
leikana og segir það hafa verið
góða upplifun. „Ég var bara
áhorfandi og það var mjög góð
tilfinning að hlusta á þessa fínu
spilara flytja verkið mitt,“ segir
hann. „Ég var mjög ánægður.“
Íslenskum áheyrendum til upp-
lyftingar bendir hann á að ákveð-
ið hafi verið að nemendur Tón-
listarskólans í Reykjavík flytji
strengjatríóið á næstunni en
ekki sé enn ákveðið hvenær það
verði. „Þetta er allt svo nýtilkom-
ið,“ segir hann. „En verkið verð-
ur flutt heima fljótlega.“
fridrikab@frettabladid.is
Verk fi mmtán ára
tónskálds fl utt í Berlín
Hjalti Nordal Gunnarsson tók þátt í tónsmíðasamkeppni Berlínarfílharmón-
íunnar og var verk hans eitt fj ögurra sem valin voru til fl utnings á tónleikum
hljómsveitarinnar og hið eina sem fl utt var á sérstökum kammertónleikum.
HJALTI NORDAL GUNNARSSON „Það voru fjögur verk valin til flutnings á
tónleikunum og mitt var eitt af þeim.“ MYND: GUNNAR KARLSSON
Sópransöngkonan Tanja Kaupp-
inen-Savijoki, Eeva Rysä á selló
og Ilmo Ranta á píanó skipa hið
finnska tríó Trio TEI. Þau flytja
fjölbreytta efnisskrá með ljóða-
söng, einleiksverkum fyrir selló
og verkum fyrir sópran, selló
og píanó í Norræna húsinu í
kvöld klukkan átta. Verkin eru
eftir Sibel ius, Merikanto, Sal-
onen, Holmström, Bergman og
Trbojevic.
Tónleikarnir eru þeir fyrstu í
tónleikaröðinni Klassík í Vatns-
mýrinni á þessu ári, en röðin er
samstarfsverkefni FÍT, klassískr-
ar deildar FÍH, í samvinnu við
Norræna húsið.
Tónleikaröðin leggur áherslu á
norrænt og alþjóðlegt samstarf.
Markmiðið með tónleikaröðinni er
að gefa áheyrendum tækifæri til
að hlýða á fyrsta flokks innlenda
og erlenda listamenn.
Á morgun leikur Trio TEI nor-
ræna dagskrá í tónleikaröðinni
Líttu inn í hádeginu í Salnum í
Kópavogi.
- gun
Sópran, selló og píanó
Trio TEI leikur fi nnska tónlist fyrir sópran, selló og
píanó í Norræna húsinu í kvöld. Þau sem skipa tríóið
eru öll virk í tónlistarlífi nu í Finnlandi.
NORRÆNA HÚSIÐ Finnska tríóið Trio TEI er skipað þekktu tónlistarfólki í sínu
heimalandi.
➜ Klassík í Vatnsmýrinni
er samstarfsverkefni
FÍT, klassískrar deildar
FÍH, í samvinnu
við Norræna húsið.
AUGLÝSINGUM FRAMLAGNINGU
KJÖRSKRÁR VEGNA KOSNINGA TIL
KIRKJUÞINGS 2014
Kjörstjórn vegna kosninga til kirkjuþings hefur samkvæmt
lögum um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar
nr. 78/1997 og starfsreglum um kjör til kirkjuþings
nr. 301/2013 samið kjörskrá vegna kosninga til kirkjuþings
sem fram fara á þessu ári.
Kjörskráin, sem miðast við 1. aprí l 2014, liggur frammi
til sýnis á biskupsstofu, Laugavegi 31, Reykjavík, og hjá
próföstum til þriðjudagsins 8. aprí l 2014. Hún er enn
fremur bir t á vef þjóðkirkjunnar (kirkjan.is).
Kærur til brey tinga á kjörskránni þurfa að hafa borist
kjörstjórn á Biskupsstofu fyrir kl. 16.00, þriðjudaginn 8.
aprí l nk., eða hafa verið póstlagðar og póststimplaðar í
síðasta lagi þann dag. Kærur má einnig senda á net fangið
hanna.sampsted@kirkjan.is. Kjörstjórn úrskurðar kærur
og gengur endanlega frá kjörskrá innan viku frá lokum
kærufrests. Niðurstöður kjörstjórnar munu liggja frammi
á biskupsstofu og geta kærendur kynnt sér þær þar.
Reykjavík 1. apríl 2014
f.h. kjörstjórnar við kirkjuþingskjör
Samtök um sorg og sorgarviðbrögð
NÝ DÖGUN
www.nydogun. is www.sorg. is sorg@sorg. is
hvað byggir upp?
Elín Ebba Gunnarsdóttir fjallar um hvað byggir upp
eftir erfið áföll og missi, á fræðslukvöldi Nýrrar dögunar
í safnaðarheimili Háteigskirkju fimmtudaginn 3. apríl kl. 20:00.
Allir velkomnir.
MENNING