Fréttablaðið - 09.04.2014, Síða 4
9. apríl 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 4
4.800 manns voru starf-andi í landbúnaði
árið 2012.
Það eru um 2,9 prósent fólks á
vinnumarkaði.
Heimild: Bændasamtök Íslands
FÉLAGSMÁL Öngþveiti ríkti á Kefla-
víkurflugvelli í gærmorgun á meðan
á verkfalli flugvallarstarfsmanna
stóð.
Langar raðir mynduðust við inn-
ritunarborð og öryggiseftirlit auk
þess sem margt fólk vissi ekki hvert
það átti að snúa sér til að fá þjónustu.
Formenn stéttarfélaganna þriggja
sem voru í verkfalli stóðu vaktina
og tryggðu að allt færi vel fram.
Kristján Jóhannsson, formaður
Félags flugmálastarfsfólks ríkisins
(FFR), var ánægður í lok verkfalls.
„Aðgerðir hafa gengið vel og okkar
fólk fer aftur til vinnu klukkan níu.“
Hann sagði að engir verkfallsbrjót-
ar hefðu verið staðnir að verki. „Við
stöndum saman sem einn maður og
við erum í þessari vegferð saman.
Samninganefndirnar hafa mikinn
stuðning félagsmanna. Við Þórarinn
Eyfjörð, framkvæmdastjóri SFR,
erum búnir að vera hér í alla nótt.“
Hann segir að flugfarþegar og aðrir
hafi sýnt verkfallinu mikinn skiln-
ing. „Það er sorglegt að þurfa að
beita þessum aðferðum en þetta er
bara brautarsteinn á leiðinni.“
Farþegar Icelandair gátu innrit-
að sig rafrænt í flug en mikill fjöldi
beið þess að koma farangri sínum
í réttar hendur. Farþegar WOW air
sem aðeins höfðu handfarangur
gátu sömuleiðis innritað sig í flug
í tæka tíð en þar með var ekki öll
sagan sögð. Enginn komst í gegn-
um öryggisleit því þar voru engir
starfsmenn.
Að minnsta kosti þrír bresk-
ir skólahópar höfðu beðið í flug-
stöðinni frá því snemma morguns.
Flug þeirra hafði átt að fara í loftið
korter í sjö en allir voru rólegir yfir
biðinni þrátt fyrir að þreyta gerði
vart við sig.
Um 400 starfsmenn flugvallar-
ins lögðu í gærmorgun niður störf.
Þeir voru mættir fyrir utan starfs-
mannainngang á réttum tíma og
streymdu aftur í vinnu klukkan
níu. Tíu mínútum síðar var eins
og gríðarstór tannhjól hefðu farið
í gang og hreyfing komst á hlutina.
Tíu flugvélar lentu á fyrsta klukku-
tímanum eftir verkfall, sú fyrsta
um korteri eftir að verkfalli lauk.
snaeros@frettabladid.is
Öngþveiti ríkti í Leifsstöð
þegar lögð voru niður störf
Verkfallsaðgerð 400 flugvallarstarfsmanna lauk á níunda tímanum í gærmorgun. Flug stöðvaðist til og frá
landinu. Forsvarsmenn starfsfólks segja að aðgerðin hafi heppnast vel og samhugur ríki þeirra á meðal.
NÝGIFT Brúðkaupsferðin endaði með langri bið á vellinum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Spænsku hjónin María og Lucas mættu klukkan fimm um morguninn í
þeirri von að verkfallsdeilan myndi leysast. Þau voru á leið til Bretlands og
þökkuðu fyrir að vera ekki á leið í tengiflug.
Verkfallið var óvæntur endir á brúðkaupsferð þeirra hingað til lands.
Þau voru örþreytt eftir biðina en voru ánægð með fríið hér sem hafði að
mestu farið í að skoða íslenska náttúru og njóta lífsins.
Vonuðu að verkfall myndi leysast fyrr
VERKFALLSVERÐIR Fjöldi fólks í appelsínugulum vestum sá til þess að engir verk-
fallsbrjótar væru mættir til starfa. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
KANNANIR Fjöldi ánægðra með
frumvarp ríkisstjórnarinnar um
lækkun húsnæðisskulda mældist
27,5 prósent í könnun MMR sem
gerð var dagana 28. mars til 1.
apríl. Þeir sem kváðust óánægðir
með frumvarpið voru 47,3 prósent
en 25,2 prósent sögðust hvorki
ánægð né óánægð.
Mikill munur reyndist á afstöðu
eftir stjórnmálaskoðunum. Þeir
sem sögðust hafa kosið Fram-
sóknar- eða Sjálfstæðisflokkinn í
síðustu alþingiskosningum lýstu
yfir meiri ánægju með frumvarp
ríkisstjórnarinnar, heldur en þeir
sem kusu aðra flokka. 960 einstak-
lingar svöruðu könnuninni og tóku
84,5 prósent afstöðu. - ibs
Ánægja með frumvarp mæld:
Innan við 28%
segjast ánægð
HÚSNÆÐI 47,3 prósent eru óánægð
með frumvarpið. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
DÓMSMÁL Verjendur fjögurra
manna sem ákærðir eru í Aurum-
málinu, þar sem ákært er fyrir
umboðssvik og hlutdeild í þeim
vegna sex milljarða króna láns
Glitnis til félagsins FS38 til kaupa
á eignarhaldsfélaginu Aurum Hold-
ing, kröfðust þess í gær að tveimur
vitnum sem búsett eru í Dúbaí yrði
ekki heimilað að gefa skýrslu í gegn-
um síma.
Þá gerði verjandi Jóns Ásgeirs
Jóhannessonar kröfu um að nokkr-
um fyrrverandi stjórnarmönnum í
Glitni, sem ekki sátu í stjórn þegar
lánveitingin átti sér stað, yrði ekki
gert að bera vitni, þar sem þeir
gætu ekki vitnað neitt um málsat-
vik. Framburðurinn væri frekar til
vitnis um álit þeirra á Jóni Ásgeiri.
Dómari úrskurðar fljótlega um
kröfurnar. Málinu hefur verið frest-
að til uppkvaðningar úrskurðarins,
en vitnaleiðslur munu næst verða
þann 14. maí næstkomandi. Þá er
von á nokkrum erlendum vitnum,
sem og þeim sem hafa frestast hing-
að til. - fbj
Tekist á um hvort vitni megi gefa skýrslu í gegnum síma í Aurum-málinu:
Óhagræði að ferðast í tvo daga
BEÐIÐ EFTIR ÚRSKURÐI Dómari mun
ákveða hvort vitnin megi gefa sínar
skýrslur fljótlega. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
INDLAND Fjölmennustu þingkosn-
ingar sögunnar standa yfir á Ind-
landi um þessar mundir en þær
eru taldar vera þær mikilvæg-
ustu í landinu í þrjátíu ár.
Manmohan Singh, forsætisráð-
herra landsins, lætur af embætti
og verður arftaki hans kjörinn í
kosningunum.
Ríflega 800 milljónir manna
eru á kjörskrá og verða kjörstað-
irnir um 930 þúsund. Kosning-
arnar hófust í fyrradag og standa
til 12. maí. Von er á niðurstöðum
fimm dögum síðar. - jm
Indverjar kjósa til þings:
Aldrei fleiri
kosið í einu
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is,
Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is,
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
NÝJAR
VÖRUR
Kjóll
9900
Soff ía Sveinsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
KAFLASKIL Á FÖSTUDAG Í dag og á morgun verður yfirleitt prýðisveður; hægur
vindur, fremur skýjað og úrkoma á stöku stað. Aðfaranótt föstudags kemur lægð upp
að suðvesturströndinni með vaxandi vindi og töluverðri rigningu um tíma.
3°
4
m/s
3°
7
m/s
6°
5
m/s
6°
4
m/s
3-8 m/s
en hvas-
sara allra
syðst.
Strek-
kingur á
annesjum,
hægari
inn til
landsins.
Gildistími korta er um hádegi
13°
24°
6°
16°
18°
5°
16°
11°
11°
22°
17°
23°
21°
21°
21°
13°
12°
16°
5°
2
m/s
7°
3
m/s
6°
2
m/s
4°
3
m/s
6°
2
m/s
5°
3
m/s
1°
5
m/s
4°
7°
1°
2°
7°
6°
5°
3°
2°
3°
Alicante
Aþena
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
FÖSTUDAGUR
Á MORGUN
SVÍÞJÓÐ Mótmæli framhaldsskóla-
nema í Kristianstad í Svíþjóð gegn
gömlum reglum um dansleikjahald
báru árangur. Samkvæmt reglun-
um máttu samkynhneigð pör ekki
koma á stúdentaballið, það er
að segja ef pörin voru karlkyns.
Samkynhneigðar stelpur máttu
hins vegar koma á ballið.
Þetta fannst nemendum ekki
við hæfi og efndu til mótmæla á
Facebook undir yfirskriftinni: Ball
fyrir alla. Skipuleggjendur tóku
gagnrýnina til sín. - ibs
Mótmæli báru árangur:
Ball var ekki
fyrir homma