Fréttablaðið - 09.04.2014, Page 11
MIÐVIKUDAGUR 9. apríl 2014 | FRÉTTIR | 11
SVÍÞJÓÐ Lögreglumenn skutu 34
ára gamlan karlmann til bana
úti á götu í Uppsölum í Svíþjóð
snemma í gærmorgun.
Samkvæmt frétt á vef Dagens
Nyheter segir að maðurinn hafi
verið með hníf í hvorri hendi.
Þegar maðurinn, sem hafði ofsótt
fyrrverandi eiginkonu sína og
misþyrmt henni á mánudags-
kvöld, neitaði að nema staðar og
sleppa hnífunum skaut lögreglan
viðvörunarskotum.
Samkvæmt frásögn lögregl-
unnar beitti hún einnig piparúða
án árangurs. Þá var maðurinn
skotinn í fótinn en það stöðv-
aði hann ekki. Var þá ákveðið
að skjóta hann ofar í líkamann.
Talið er að hann hafi látist sam-
stundis. Hinn drepni hafði verið
handtekinn á mánudagskvöld og
sleppt aðfaranótt þriðjudags.
Í mars skaut lögreglan í Gauta-
borg til bana mann vopnaðan
spjóti. Í fyrra skaut sænska lög-
reglan fjóra til bana. Fram til
ársins 2013 beið að meðaltali einn
á ári bana í tengslum við hand-
töku lögreglu.
Sænskur afbrotafræðingur,
Jerzy Sarnecki, segir það enga
tilviljun að lögreglan í Svíþjóð
hafi skotið sex manns til bana
á rúmu ári. Í viðtali við Dagens
Nyheter segir hann skotárásirnar
fylgja ákveðnu mynstri. Þeir sem
voru drepnir hafi verið í andlegu
ójafnvægi, mögulega ölvaðir og
ógnað lögreglunni með hnífi.
Sarnecki bendir á að fleiri
ungir lögreglumenn séu nú við
störf en áður. Hann segir skot-
árásir lögreglunnar afar nei-
kvæða þróun. Lögreglan eigi
ekki að drepa, heldur bjarga lífi
fólks. Ekki sé lengur hægt að
skoða hvert atvik fyrir sig. Emb-
ætti ríkislögreglustjóra verði að
rannsaka málið.
- ibs
Jerzy Sarnecki, afbrotafræðingur í Svíþjóð, gagnrýnir sænsku lögregluna sem hefur skotið sex menn til bana á rúmu ári:
Lögreglan skaut mann vopnaðan hnífum til bana
Á VETTVANGI Lögregla við störf í
Malmö í Svíþjóð. NORDICPHOTOS/AFP
➜ Skotárásir sænsku lög-
reglunnar eru sagðar fylgja
ákveðnu mynstri.
VIÐSKIPTI Fjöldi farþega Icelandair
í millilandaflugi í marsmánuði
jókst um tíu prósent milli ára.
Þetta kemur fram í tilkynningu
Icelandair Group til Kauphallar
Íslands.
Félagið flutti í síðasta mánuði
159 þúsund farþega í millilanda-
flugi. Framboð til Evrópu jókst um
fimm prósent en framboðs aukning
til Norður-Ameríku nam 28 pró-
sentum. Meðal annars stafar sú
aukning af því að flug hófst til kan-
adísku borgarinnar Edmonton.
Sætanýting hjá félaginu nam 72
prósentum og dróst saman um 2,1
prósentustig milli ára. - bá
Fleiri fljúga með Icelandair:
Tíu prósent
fjölgun í mars
LEIFSSTÖÐ Icelandair flutti 159 þúsund
farþega í millilandaflugi í mars.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
DANMÖRK Innflytjendur í Dan-
mörku frá Miðausturlöndum, Afr-
íku og Austur-Asíu lifa væntanlega
einu ári lengur heldur en Danir og
innflytjendur frá Vesturlöndum.
Þetta er niðurstaða greiningar
stofnunar danska ríkisins.
Blaðið Berlingske hefur það
eftir Allan Krasnik, prófessor í
lýðheilsu við Kaupmannahafnarhá-
skóla, að þetta komi ekki á óvart.
Hluti skýringarinnar sé hollara
mataræði innflytjenda og minni
neysla áfengis og tóbaks. - ibs
Lífsstíllinn hefur áhrif:
Innflytjendur
lifa lengur
VINNUMARKAÐUR
Starfsfólk RÚV semur
Starfsmannafélag Ríkisútvarpsins hefur
undirritað nýjan kjarasamning við
Ríkisútvarpið ohf. Samningurinn er um
flest sambærilegur þeim samningum
sem aðildarfélög BSRB hafa gert undan-
farið. Laun hækka um 2,8 prósent eða
að lágmarki um 8.000 krónur á mánuði
fyrir dagvinnu miðað við fullt starf.
Samningurinn gildir frá 1. febrúar 2014
til 28. febrúar 2015.
FRAMTÍÐARREIKNINGUR
GÓÐUR STAÐUR FYRIR FERMINGARPENINGANA
Framtíðarreikningurinn ber alltaf hæstu vexti verðtryggðra
sparireikninga og er laus við 18 ára aldur. Hann er skynsamlegur
staður fyrir fermingarpeningana, svo þeir nýtist í framtíðinni til að
láta draumana rætast. Ef 30.000 kr. eru lagðar inn á Framtíðarreikning
bætum við 5.000 kr. við.*
Hægt er að stofna Framtíðarreikning í næsta útibúi Arion banka.
*Eitt mótframlag fyrir hvert fermingarbarn
18 ÁRA 12/11 2018
LÁTTU FERMINGARPENINGINN
VAXA MEÐ ÞÉR