Fréttablaðið - 09.04.2014, Blaðsíða 12
9. apríl 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 12
VELFERÐARMÁL Á næsta ári munu
tæplega sex hundruð Reykvíking-
ar missa bótarétt sinn hjá Vinnu-
málastofnun eftir þriggja ára bóta-
tímabil.
Árið 2015 munu tæplega átta
hundruð bætast í hópinn. Gert er
ráð fyrir að einhver hluti hóps-
ins fái atvinnu en búast má við
að nokkuð stór hluti verði háður
framfærslu frá borginni.
Velferðarsvið Reykjavíkur-
borgar áætlar fjóra milljarða í
fjárhagsaðstoð á árinu 2014 til að
mæta þörf þessa hóps. Það er um
það bil fjögur hundruð milljóna
króna hækkun frá því á síðasta
ári. Hækkunin er þó ekki sérlega
mikil í hlutfalli við fjölgun þeirra
sem missa bótarétt.
„Borgin hefur náð miklum
árangri með vinnumarkaðsaðgerð-
um síðasta árið og við gerum ráð
fyrir að þau úrræði haldi áfram að
skera niður þann fjölda sem þarf á
fjárhagsaðstoð að halda. Við gerð-
um spá um fjölda sem þurfti fjár-
hagsaðstoð árið 2013 en notuðum
ekki allt það fjármagn sem við
áætluðum. Við spöruðum í staðinn
um sex hundruð milljónir með því
að koma fólki í vinnu,“ segir Björk
Vilhelmsdóttir, borgarfulltrúi
Samfylkingar og formaður vel-
ferðarráðs.
Sveitarfélagi er skylt að veita
fjárhagsaðstoð til framfærslu ein-
staklinga og fjölskyldna sem ekki
geta séð sér og sínum farborða án
aðstoðar. Til að hafa rétt til aðstoð-
ar þurfa einstaklingar að hafa
tekjur og eignir undir ákveðnum
viðmiðunarmörkum. Fjárhagsað-
stoð til einstaklings getur verið
allt að 163.625 krónur á mánuði
og 245.453 á mánuði til hjóna eða
sambúðarfólks. Ef maki er með
laun yfir viðmiðunarmörkum
missir einstaklingur rétt til fram-
færslustyrks.
„Á síðasta ári byrjuðum við með
verkefni sem heitir Liðsstyrkur.
Þá settum við fókus á hópinn sem
var að klára bótarétt sinn og búinn
að vera atvinnulaus í þrjú ár,“
segir Hrafnhildur Tómasdóttir,
sviðstjóri yfir vinnumiðlun og ráð-
gjöf hjá Vinnumálastofnun. „Það
tókst að skapa störf fyrir þriðj-
ung, þriðjungur fann ekki úrlausn
sinna mála og er hluti af þeim hópi
kominn til sveitarfélaga og þriðj-
ungur skráði sig ekki til þátttöku
og getum við ekki vitað um afdrif
þeirra einstaklinga. Það er sann-
arlega ástæða til að skoða þennan
hóp nánar.“
Vinnumálastofnun hefur gert
samkomulag við sveitarfélögin að
halda áfram að þjónusta þennan
hóp atvinnuleitenda, án þess að
þeir hafi bótarétt, með ráðgjöf og
virkniúrræðum. erlabjorg@frettabladid.is
Áætla 4 milljarða í
fjárhagsaðstoðina
Á næstu tveimur árum munu 1.400 Reykvíkingar missa bótarétt hjá Vinnumála-
stofnun. Hluti af þeim hópi mun vera háður fjárhagsaðstoð borgarinnar. Eingöngu
á þessu ári er áætlað að sú aðstoð muni kosta borgina um fjóra milljarða króna.
REYKVÍKINGAR Gert er ráð fyrir að um 1.400 Reykvíkingar muni missa bótarétt
sinn hjá Vinnumálastofnun á næstu tveimur árum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Við
gerðum spá
um fjölda
sem þurfti
fjárhagsað-
stoð árið 2013
en notuðum
ekki allt það fjármagn
sem við áætluðum. Við
spöruðum í staðinn um
sex hundruð milljónir
með því að koma fólki í
vinnu.
Björk Vilhelmsdóttir, formaður Vel-
ferðarráðs Reykjavíkurborgar.
Skoðaðu úrvalið á Bilaland.is
NÝLEGIR OG
LÍTIÐ EKNIR
GERÐU FRÁBÆR KAUP!
VW TOURAN
Nýskr. 09/12, ekinn 8 þús. km.
bensín, beinskiptur.
VERÐ kr. 3.690 þús.
Rnr. 281536.
Kletthálsi 11 -110 Reykjavík
Sími 525 8000 - bilaland@bilaland.is
www.bilaland.is
www.facebook.com/bilaland.is
CHEVROLET CRUZE
Nýskr. 05/13, ekinn 9 þús. km.
bensín, beinskiptur.
Rnr. 120272.
LAND ROVER FREELANDER 2S
Nýskr. 05/13, ekinn 6 þús km.
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 7.990 þús.
Rnr. 191269.
HYUNDAI i20 CLASSIC
Nýskr. 08/10, ekinn 62 þús km.
bensín, beinskiptur.
VERÐ kr. 1.690 þús.
Rnr. 130998.
OPEL ASTRA ENJOY TURBO
Nýskr. 09/08, ekinn 62 þús. km.
bensín, beinskiptur.
VERÐ kr. 1.890 þús.
Rnr. 130991.
NISSAN QASHQAI SE
Nýskr. 06/11, ekinn 68 þús. km.
bensín, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 4.190 þús.
Rnr. 151477.
HYUNDAI SANTA FE II LUX
Nýskr. 07/11, ekinn 54 þús. km.
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 5.390 þús.
Rnr. 281538.
Frábært verð
2.590 þús.
Ekinn aðeins
9 þús. km.
Ekinn aðeins
8 þús. km.
Ekinn aðeins
6 þús. km.
TÖKUM NOTAÐAN
UPPÍ NOTAÐAN!
GERÐU FRÁBÆR KAUP!
ALLT AÐ 80% LÁNAMÖGULEIKAR