Fréttablaðið - 09.04.2014, Blaðsíða 18
9. apríl 2014 MIÐVIKUDAGUR| TÍMAMÓT | 18TÍMAMÓT
Okkar ástkæri
AGNAR HÖRÐUR HINRIKSSON
lést þann 31. mars síðastliðinn.
Útför hans fer fram frá Hallgrímskirkju
föstudaginn 11. apríl kl. 15.00.
Blóm og kransar afþökkuð en þeim sem
vilja minnast hins látna er bent á reikning
sem stofnaður hefur verið á nafni dóttur hans, Ásrúnar Emblu
Agnarsdóttur, 0701-18-540990, kt. 130513-2550.
Fyrir hönd aðstandenda,
Óla Steina Agnarsdóttir og Hinrik Halldórsson
Þökkum innilega auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra
DANÍELS HELGASONAR
fv. flugumferðarstjóra,
Árskógum 8,
sem lést 24. mars sl.
Guðríður Gunnarsdóttir
Guðbjörg Daníelsdóttir Snorri Gunnarsson
Hjördís Rósa Daníelsdóttir
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
RÖGNVALDUR GÍSLASON
lést á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki
mánudaginn 7. apríl.
Útförin verður gerð frá Sauðárkrókskirkju
föstudaginn 25. apríl kl. 14.
Eiríkur Rögnvaldsson Guðrún Ingólfsdóttir
Nanna Valgerður Rögnvaldardóttir
Guðrún Rögnvaldardóttir Bjarni Þór Björnsson
Sigríður K. Rögnvaldsdóttir Þórir Már Einarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
HÁKON ORMSSON
Skriðinsenni, Strandasýslu,
lést mánudaginn 31. mars á Hjúkrunarheimili
aldraðra á Hólmavík. Útför hans fer fram frá
Hólmavíkurkirkju laugardaginn 12. apríl
kl. 13.00.
Lilja Jónsdóttir
Jón Hákonarson Sigríður Einarsdóttir
Steinunn Kristín Hákonardóttir
Lýður Hákonarson Margrét Vilhjálmsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
KRISTJÁN ÖSSUR JÓNASSON
viðskiptafræðingur
sem lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni 1.
apríl, verður jarðsunginn frá Háteigskirkju í
dag, miðvikudaginn 9. apríl, kl. 13.00.
Sigríður Sóley Kristjánsdóttir Harold Jordan
Hugrún Hrönn Kristjánsdóttir Rúnar Björgvinsson
Ingveldur Halla Kristjánsdóttir
Erla Björg Kristjánsdóttir Khalil Sellim
Una Hlín Kristjánsdóttir
Hólmsteinn Össur Kristjánsson Maja Loncar
og afabörn.
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
GÚSTAV KRISTJÁN GÚSTAVSSON
til heimilis að Hrafnistu í Hafnarfirði,
lést 31. mars. Jarðarförin fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 11. apríl
kl. 13.00.
Inga Gústavsdóttir Gunnar Einarsson
Gústav Kristján Gústavsson Margrét Sólveig Ólafsdóttir
Ásdís Heiðdal Gústavsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
INGIBJÖRG PÉTURSDÓTTIR
lést 5. mars sl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Jón Pétursson
Matthías Pétursson
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
ÓLÍNA ELÍNBORG
KRISTLEIFSDÓTTIR
áður til heimilis á Njarðargötu 45,
lést á Hjúkrunarheimilinu Eir 5. apríl. Útförin
verður gerð frá Hallgrímskirkju mánudaginn
14. apríl klukkan 15.00.
Helga Stefánsdóttir Hrafnkell Þórðarson
Nína Stefánsdóttir Örn Einarsson
Sveinbjörn Kr. Stefánsson Klara Ragnarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
SÓLBORG S. SIGURÐARDÓTTIR
lést á hjúkrunarheimilinu Mörk 5. apríl
síðastliðinn. Útför hennar fer fram frá Kópa-
vogskirkju miðvikudaginn 16. apríl kl. 13.
Álfheiður Steinþórsdóttir Vilhjálmur Rafnsson
Sigurður Steinþórsson Kristjana Ólafsdóttir
Magnús Steinþórsson Margrét Ragnarsdóttir
Steinþór Steinþórsson Bjarnþóra Egilsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug vegna fráfalls okkar
elskulega
SIGTRYGGS VALDIMARSSONAR
Furulundi 15c, Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks
lyflækningadeildar Sjúkrahúss Akureyrar fyrir
góða umönnun og hlýju.
Valborg Gunnarsdóttir
Svanhildur Sigtryggsdóttir Frosti Meldal
Gunnar Sigtryggsson Rósa Sveinbjörnsdóttir
Gunnar Kristjánsson Ingibjörg Tómasdóttir
Anna Ásgeirsdóttir
afa- og langafabörn.
MERKISATBURÐIR
1483 Játvarður 5. verður konungur Englands, tólf ára að aldri, en er
komið fyrir í Tower of London, ásamt bróður sínum, Ríkharði her-
toga af York. Þar er þeim ráðinn bani.
1870 Deutsche Bank byrjar rekstur í Berlín.
1894 James Craig kaupir Geysi fyrir 3.000 krónur af bændum í
Haukadal.
1911 Þingeyrarkirkja er vígð.
1940 Þjóðverjar hernema Danmörku og gera innrás í Noreg.
1942 Tveir Íslendingar og 22 Norðmenn farast með norska skipinu
Fanefeld á leið frá Bíldudal til Ísafjarðar.
1967 Fyrsta Boeing 737-flugvélin flýgur jómfrúarflug sitt.
„Ég held að þetta verði mjög skemmti-
legur dagur því það er mikil stemning
í bæjarfélaginu bæði meðal íbúa og
starfsmanna. Allir aldurshópar munu
taka virkan þátt í afmælisgleðinni, hvort
sem það eru leikskólabörn eða eldri
borgarar,“ segir Ásgerður Halldórs-
dóttir, bæjarstjóri Seltjarnarnesbæjar,
sem mun flytja ávarp í dag í tilefni af að
nú eru 40 ár síðan Seltjarnarnes öðlaðist
kaupstaðarréttindi. „Það er einnig mikil
ánægja meðal bæjarbúa að útilistaverk-
ið Skyggnst á bak við tunglið eftir Sigur-
jón Ólafsson verði afhjúpað í hádeginu í
dag. Verkið var fjarlægt um tíma þegar
World Class-stöðin var byggð en verð-
ur nú sett upp að nýju,“ segir Ásgerður.
Það má með sanni segja að Seltjarnar-
nesbær fari í afmælisbúninginn í dag
og tímamótunum verður fagnað með
fjölbreyttum viðburðum. Fyrirtæki og
stofnanir á Seltjarnarnesi bjóða ókeyp-
is aðgang, afslátt, kynningar og tilboð
og opna dyr sínar fyrir gestum. Skóla-
starf verður jafnframt með óhefðbundn-
um hætti. Aðalveisluhöldin verða á milli
kl. 17 og 19 með mikilli afmælishátíð á
Eiðistorgi en boðið verður upp á afmæl-
istertu og forsetahjónin munu heiðra
bæjarbúa með nærveru sinni. „Það er
óhætt að segja að það verður mikið fjör
og mikið gaman. Jóhann Helgason flyt-
ur lagið Seltjarnarnes sem hann samdi
þegar hann var kjörinn bæjarlistamað-
ur Seltjarnarness á sínum tíma og eldri
bekkingar grunnskólans flytja atriði úr
Bugsey Malone þar sem þau syngja og
dansa.“
Á heimasíðu bæjarins, www.seltjarn-
arnes.is, er að finna þétta skemmtidag-
skrá með fjölbreyttum viðburðum sem
bæjarbúar og velunnarar geta notið í
dag. marinmanda@frettabladid.is
Stórveisla á 40 ára
kaupstaðarafmælinu
Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri segir Seltirninga fagna deginum í dag.
SPENNT FYRIR
DEGINUM
Ásgerður Halldórs-
dóttir, bæjarstjóri
Seltjarnarnesbæjar.
Allir aldurshópar munu
taka virkan þátt í afmælis-
gleðinni, hvort sem það eru
leikskólabörn eða eldri borgarar