Fréttablaðið - 09.04.2014, Síða 22
| 4 9. apríl 2014 | miðvikudagur
FERÐAÞJÓNUSTA
Haraldur Guðmundsson | haraldur@frettabladid.is
Hótelherbergjum Íslandshótela
hf. mun fjölga um 825 á næstu
þremur árum með opnun fjögurra
nýrra hótela og stækkun á þrem-
ur öðrum. Heildarfjárfesting fyr-
irtækisins, sem rekur hótelkeðj-
urnar Fosshótel og Reykjavíkur-
hótel, vegna framkvæmdanna er
um 7,2 milljarðar króna.
„Í dag erum við að reka tæp-
lega ellefu hundruð herbergi og
við erum því nánast að tvöfalda
okkar herbergjafjölda á næstu
þremur árum,“ segir Davíð Torfi
Ólafsson, framkvæmdastjóri Ís-
landshótela.
Fyrirtækið vinnur nú að stækk-
un hótels við Höfn í Hornafirði þar
sem herbergjum verður fjölgað
um 40. Áætluð verklok eru í júní
og þá ætlar Íslandshót-
el einnig að opna nýtt 26
herbergja hótel í Franska
spítalanum á Fáskrúðs-
firði. Síðar á árinu hefjast
framkvæmdir við stækk-
un hótels á Húsavík. Þar
verður herbergjum fjölg-
að úr 70 í 114 með við-
byggingu sem verður um
4.700 fermetrar að stærð.
„Svo munum við reka hótelið á
Höfðatorginu sem verður opnað
á næsta ári með 320 herbergjum.
Á gamla Blómavalsreitnum við
Grand hótel eru síðan áform um
100 íbúðir sem fara á sölumark-
að en einnig 170-200 hótelherbergi
sem verða af fimm stjörnu klassa.
Framkvæmdir munu vonandi hefj-
ast fljótlega á næsta ári en þetta er
í skipulagsferli en vonandi verð-
ur hótelið opnað árið 2017,“ segir
Davíð. Hann bætir við að
fyrirtækið hafi einnig feng-
ið samþykki fyrir nýju 90
herbergja hóteli á Gríms-
stöðum við Mývatn og 116
herbergja hóteli á Hnappa-
völlum í Öræfum. Þau verða
opnuð sumarið 2016.
„Okkar markmið með
þessum framkvæmdum er
að efla gæði og fjölga gistirým-
um. Við erum búin að ganga vel
frá málum sem tengjast skipulagi
og tryggja fjármögnun á miklu af
þessum verkum og því er ekkert
sem stoppar okkur,“ segir Davíð.
Spurður segir hann fyrirtæk-
ið óttast offjárfestingu í ferða-
þjónustu.
„Við óttumst offjárfestingu í
geiranum og þá sér í lagi hug-
myndir um gistingu af lægri
gæðum.“
Byggir 825 herbergi á
næstu þremur árum
Íslandshótel ætlar að byggja fjögur ný hótel og stækka þrjú önnur
á næstu þremur árum. Heildarfjárfesting fyrirtækisins nemur 7,2
milljörðum króna. Fyrirtækið er nú með 1.100 herbergi í notkun.
rvörur
með þér
tra
nna
Reks
- vi
TEIKNING Hótelið á Húsavík verður stækkað um 4.700 fermetra. Framkvæmdirnar munu kosta um einn milljarð króna. MYND/
ÍSLANDSHÓTEL
Davíð Torfi Ólafsson
Stjórnarmenn fyrirtækisins Auð-
kennisskrifuðu í síðustu viku undir
ársreikning félagsins með farsímum
frá sjö stöðum í heiminum í þremur
löndum; Þýskalandi, Bandaríkjun-
um og í fjórum sveitarfélögum hér
á landi.
Í tilkynningu frá félaginu segir að
þetta sé í fyrsta sinn sem skrifað er
undir ársreikning með þessum hætti
hér á landi og líklega í öllum heim-
inum. Ársreikningurinn var lagður
fram í fyrradag á rafrænu formi og
fundargerð hans verður samþykkt
með rafrænum undirskriftum.
Þannig er umsýsla í kringum árs-
reikninginn og aðalfund félagsins
með öllu pappírslaus.
„Rafræn skilríki hafa verið að
ryðja sér til rúms á Íslandi og þau
eru það sem koma skal. Með þeim
er bæði hægt að spara pappír og
ekki síst fyrirhöfn,“ segir Haraldur
Bjarnason, framkvæmdastjóri Auð-
kennis.
Þá segir í tilkynningunni að þegar
hafi 100 þúsund rafræn skilríki
verið virkjuð hér á landi og að hægt
sé að nota þau hjá um 140 fyrirtækj-
um eða opinberum stofnunum. - skó
Stjórn fyrirtækis skrifaði undir ársreikning frá sjö stöðum í heiminum:
Pappírslausir ársreikningar
Á BRYGGJUNNI Óskar Jósefsson, stjórn-
arformaður Auðkennis, var staddur í
Vestmannaeyjum þegar hann skrifaði
undir. MYND//AÐSEND
„Við erum núna í prófunarferli og
erum í rauninni að keyra í gegn-
um veitingastaðinn ákveðið magn
af fólki í hádeginu og á kvöldin og
við munum gera það alveg fram að
opnun,“ segir Snorri Marteinsson,
framkvæmdastjóri Hamborg-
arafabrikkunnar.
Nýr veitingastaður fyrirtækis-
ins, sá þriðji í röðinni, í Kringl-
unni mun að öllum líkindum verða
opnaður á föstudag. Iðnaðarmenn
hafa nú lokið við að breyta hús-
næðinu í nýjustu viðbyggingu
verslunarmiðstöðvarinnar þar
sem veitingastaðurinn Portið var
áður starfræktur.
„Við náttúrulega opnum ekki
fyrr en við erum tilbúnir en það
er stefnt að opnun á föstudaginn
eða í kringum helgina,“ segir
Snorri.
„Það eina sem er eftir er að
stilla saman strengi, eldhús og
sal, og koma rútínu á alla ferla og
það gerist bara með æfingu. Síðan
opnum við með látum þegar við
opnum.“ - hg
Nýr staður Hamborgarafabrikkunnar nánast tilbúinn:
Gæti opnað fyrir helgi
Benedikt K. Kristjánsson sölu-
og þjónustufulltrúi hjá Búr ehf.
var í gær sjálfkjörinn formaður
stjórnar Regins á aðalfundi fast-
eignafélagsins sem haldinn var í
Hörpu.
Öll stjórn félagsins var sjálf-
kjörin á fundinum en nýir stjórn-
armenn Regins eru Jón Steindór
Valdimarsson, Bryndís Hrafn-
kelsdóttir, Sigríður Hrefna Hrafn-
kelsdóttir og Tómas Kristjánsson.
Elín Jónsdóttir, fráfarandi
stjórnarformaður Regins og fyrr-
verandi forstjóri Bankasýslu rík-
isins, gaf ekki kost á sér til áfram-
haldandi stjórnarsetu.
Fráfarandi stjórn félagsins
lagði á fundinum til að arður yrði
ekki greiddur út á árinu 2014 og
hagnaður félagsins fluttur til
næsta árs.
Á fundinum var samþykkt að
þóknun stjórnarmanna verði 250
þúsund kr. á mánuði og stjórnar-
formanns 500 þúsund kr. - hg
Benedikt K. Kristjánsson nýr stjórnarformaður fasteignafélagsins:
Sjálfkjörið í stjórn
Regins á aðalfundi
ALLT Á FULLU Nýi veitingastaðurinn er á svipuðum slóðum og Hard Rock Café á
sínum tíma. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Í HÖLLINNI Helgi S. Gunnarsson, forstjóri Regins, þegar félagið var tekið til við-
skipta í Kauphöllinni árið 2012. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI