Fréttablaðið - 09.04.2014, Page 30
KYNNING − AUGLÝSINGGrænn apríl MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 20142
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000
Umsjónarmaður auglýsinga: Kolbeinn Kolbeinsson, kkolbeins@365.is, s.
512-5442Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
GRÆN RÁÐ FYRIR BÍLINN
• Til að bæta eldsneytisnýtingu og draga úr mengun er gott að stíga
hvorki fast á bremsur né bensíngjöf.
• Ekki láta bílinn vera í lausagangi lengur en 30 sekúndur.
• Taktu ónauðsynlega hluti úr skottinu til að létta bílinn. Þú eyðir minna
eldsneyti ef bíllinn er léttur.
• Ef þú ert með lausa toppgrind, taktu hana þá af ef hún er ekki í
notkun til að bæta eldsneytisnýtinguna.
• Notaðu „cruise control“ ef það er í bílnum. Jafnari akstur sparar bensín
og minnkar mengun.
• Ef þú ert á fjórhjóladrifnum bíl, sem líka er hægt að velja að hafa bara
í tveggja hjóla drifi, íhugaðu þá að nota það þegar aðstæður leyfa.
Fjórða árið í röð er GRÆNN APRÍL hvatning til allra þeirra sem selja
vöru, þekkingu og þjónustu sem er græn og umhverfisvæn, um að
kynna hana fyrir neytandanum, svo hann geti í framtíðinni valið
grænni kostinn, því það er betra fyrir okkur öll.
Mikilvægt er að hvetja fólk til að velja umhverfisvænt því nýleg
skýrsla Sameinuðu þjóðanna málar svarta mynd af framtíðinni
vegna veðurfarsbreytinga og ýmissa annarra sem við munum standa
frammi fyrir á næstunni. Kannski hefur stærsti vandinn hingað til
falist í því viðhorfi fólks að
framlag þess til umhverfis-
ins skipti ekki máli. Það kýs
að vísa ábyrgðinni frá sér
og segja að „einhver annar“
þurfi að sjá um það eða jafn-
vel að það sé nú lítið hægt að
gera meðan aðrir mengi svo
og svo mikið. En margt smátt
gerir eitt stórt í þessu eins og
öðru.
Við ræðum á góðum stund-
um um það hversu sjálfbært
Ísland sé, en staðreyndin er
sú að við mengum gífurlega
með lífsstíl okkar, fiskiskipa-
flota og miklum innflutn-
ingi á vörum til landsins með
flugvélum og skipum. Sem
eyþjóð höfum við alltaf und-
irstrikað sérstöðu okkar og
gert kröfur um að tekið sé til-
lit hennar. En hvað ef við
snerum sérstöðu okkar við?
Hvað ef við settum stefnu
okkar á að verða sjálfbært land með aukinni innlendri matvælafram-
leiðslu og vottuðum sveitarfélögum? Margir hafa lagt fram hugmyndir
að leiðum sem fara má til að auka matvælaöryggi í landinu. Vinna þarf
að þeim málum af festu og öryggi til að tryggja að við verðum sjálfum
okkur nóg í framtíðinni. Sveitarfélögin fimm á Snæfellsnesi og sveit-
arfélögin níu á Vestfjörðum eru nú vottuð af EarthCheck fyrir sjálf-
bærnistefnu sína. Öll voru þau með markaða umhverfisstefnu þegar
þau hófu ferlið, en staðlar og sjálfbærnivísar EarthCheck hafa hjálp-
að þeim að draga markvisst úr vistfræðilegu fótspori sínu og setja sér
mælanleg markmið um árlegar úrbætur.
Þessi sveitarfélög eru smá, en hafa sýnt fram á að þetta er hægt.
Önnur stærri geta gert slíkt hið sama, því vilji er allt sem þarf. Kannski
kristallast hann í GRÆNUM APRÍL þetta árið.
Guðrún Bergmann
Vilji er allt sem þarf
MYND/HELENA STEFÁNS
EarthCheck er alþjóðlega við-urkennt umhverfisstjórnun-ar- og vottunarkerfi með með-
limi í yfir 80 löndum, þar á meðal á
Íslandi. Patrick Renouard, yfirmað-
ur Evrópuskrifstofu EarthCheck,
hefur dvalið hér á landi undanfarna
daga og átt fundi með ráðamönnum
í nokkrum sveitarfélögum og ferða-
þjónustufyrirtækjum. Í gær átti hann
svo fund með Ragnheiði Elínu Árna-
dóttur, iðnaðar- og atvinnumála-
ráðherra, og kynnti fyrir henni kosti
EarthCheck-vottunarkerfisins. Hann
ræddi einnig um þá forystu á heims-
vísu sem sveitarfélögin á Snæfells-
nesi og Vestfjörðum hafa en þau eru
í vottunarkerfi EarthCheck. Þá lagði
hann áherslu á hversu mikilvægt
það er að markaðssetja sjálfbærni-
vinnu þeirra enn betur út á við. Pat-
rick átti líka fund með Degi B. Egg-
ertssyni og fulltrúum frá menning-
ar- og ferðamálasviði Reykjavíkur
og Höfuðborgarstofu til að kynna
möguleika á vottun fyrir Reykjavík,
en með henni gæti Reykjavík orðið
fyrsta höfuðborg í heimi með sjálf-
bærnivottun.
EarthCheck nálgast sjálfbærni á
bæði vísindalegan og kerfisbundinn
hátt. „Við erum þekkt fyrir að bjóða
upp á heildrænar markaðsprófaðar
lausnir sem hafa jákvæð áhrif á fólk,
umhverfi og arðsemi fyrirtækja. Með
þeim hefur okkur tekist að hjálpa
viðskiptavinum okkar að spara yfir
100 milljónir dollara í rekstri,“ segir
Patrick.
Í gegnum EarthCheck-rannsókn-
arstofnunina og aðra samstarfsaðila
víða um heim hefur EarthCheck
stundað vísindarannsóknir á öllum
hliðum sjálfbærrar ferðaþjónustu
undanfarin 25 ár og lagt í það verk-
efni milljónir dollara. Niðurstöður
þeirra rannsókna hafa gert Earth-
Check kleift að bjóða fyrirtækjum í
ferðaþjónustu upp á víðtæka þekk-
ingu sem þau geta nýtt til að ná sem
bestum árangri. Út frá þessum rann-
sóknum hafa þeir þróað sjálfbærni-
vísa fyrir áfangastaði og fyrirtæki,
sem gerir þeim kleift að mæla sjálf-
bærni í rekstri út frá efnahagsleg-
um, félagslegum og umhverfisleg-
um þáttum.
„Mikið af þessari vinnu má auð-
veldlega nálgast á vefsíðu okkar,
www.earthcheck.org, en þar er
skýrslum okkar hlaðið niður í tug-
þúsunda tali í hverjum mánuði sem
sýnir greinilegan áhuga á rannsókn-
arniðurstöðum okkar. Með þær að
leiðarljósi höfum við þróað ný kerfi
fyrir ferðaþjónustufyrirtæki, áfanga-
staði og sveitarfélög sem gerir þeim
kleift að mæla og fylgjast með eigin
frammistöðu í umhverfismálum og
bera sig saman við aðra.
Ísland leiðandi
EarthCheck hefur átt í farsælu sam-
starfi við fyrirtæki og sveitarfé-
lög hér á landi í næstum fjórtán ár.
„Við erum mjög stolt af frammistöðu
þeirra fyrirtækja og sveitarfélaga sem
vinna með okkur hér á landi,“ segir
Patrick. „Sveitarfélögin á Snæfells-
nesi voru til að mynda með fyrstu
sveitarfélögum í heimi til að fara í
vottunarferli EarthCheck en það var
árið 2003. Ferlið að eiginlegri vottun
tók nokkuð langan tíma, enda um
algert frumherjaverkefni að ræða
en fyrsta vottun fékkst árið 2008. Nú
eru sveitarfélögin og Þjóðgarðurinn
Snæfellsnes komin með gullvottun
eftir sex ár í ferlinu. Sveitarfélögin
níu sem eru í Fjórðungssambandi
Vestfjarða, sem hófu vottunarferli
sitt árið 2012 mættu viðmiðum Eart-
hCheck árið 2013 og eru með brons-
merki þeirra. Þess má geta að á Vest-
fjörðum voru það ferðaþjónustuaðil-
ar sem hvöttu til vottunar. Þeir telja
hana besta gæðastimpilinn fyrir
landshlutann.
Eitt fyrirtæki hér á landi hefur
verið vottað allt frá árinu 2002 en
það er Hótel Hellnar á Snæfellsnesi.
Það hlaut árið 2012, fyrst allra hótela
í Evrópu, platínuvottun frá Earth-
Check fyrir að hafa í tíu ár staðfast-
lega haft sjálfbærni að leiðarljósi í
öllum þáttum rekstursins.“
Önnur fyrirtæki með vottun
Earth Check hér á landi eru Elding
hvalaskoðun, Ferðaskrifstofa bænda
og Íshestar, sem öll eru með gullvott-
un. Tjaldsvæðið í Laugardal í rekstri
Farfugla hefur verið metið af Eart-
hCheck og er„assessed.”
Í gær skráði ION-hótelið á Nesja-
völlum sig í vottunarferli Eart-
hCheck. Það er annað tveggja hót-
ela hér á landi sem er aðili að Design
Hotels, en sú keðja hefur gert sam-
komulag við EarthCheck um að votta
öll hótel innan keðjunnar. ION-hót-
elið er eitt af fyrstu 25 hótelunum
sem vottuð verða og er því í forystu-
liðinu.
22 ár frá Ríó-ráðstefnunni
Segja má að fyrsta alþjóðlega ákall-
ið um þörfina á samstarfi þjóða að
sjálfbærnistefnu hafi komið frá Ríó-
ráðstefnunni sem haldin var árið
1992. Þar var meðal annars fjallað
um mikilvægi þess að ferðaþjón-
ustan legði sitt af mörkum til sjálf-
bærrar þróunar. En hvað er það sem
hindrar helst sjálfbæra ferðaþjón-
ustu? „Við höfum í dag fullan skiln-
ing á þeim sjálfbærniáskorunum
sem ferðaþjónustan stendur frammi
fyrir,“ segir Patrick. „Um þær þarf
ekkert að deila. Við höfum líka öll
tæki, þekkingu og tækni til að tak-
ast á við þær. Við stöndum hins
vegar frammi fyrir samstöðuleysi
atvinnugreinarinnar til að marka
heildstæða stefnu og koma henni í
framkvæmd.“
Patrick telur mikilvægt að sjálf-
bærnimálin séu ekki gerð of flókin,
svo bæði stór og smá fyrirtæki geti
unnið að þeim. „Okkar reynsla er að
jafnvel einföldustu hlutir geta vaf-
ist fyrir sumum, hvort sem
það eru lítil fyrirtæki
eða sveitarfé-
lög. Því þurfa
skrefin sem tekin eru í átt að meiri
sjálfbærni að vera raunsæ, fram-
kvæmanleg og mælanleg og það
þarf að vera hægt að taka þau aftur
og aftur.“
Tækifærin á Íslandi
„Mesti árangur í sjálfbærniþróun
um allan heim hefur náðst á stöð-
um þar sem fyrirtæki og sveitarfélög
hafa unnið að því að ná sameiginleg-
um árangri,“ segir Patrick. „Lykill-
inn felst í góðri forystu, góðum sjálf-
bærnivísum og mælieiningum sem
geta verið leiðbeinandi í allri ákvarð-
anatöku.“
Tæknin er að ryðja sér til rúms í
allri vottunar- og sjálfbærnivinnu
eins og annars staðar og er hægt að
hlaða öllum upplýsingum úr skrán-
ingu sjálfbærnivísanna niður í síma
eða spjaldtölvur og skoða hvar og
hvenær sem er sem gerir stjórnend-
um fært að sjá hversu vel gengur hjá
fyrirtækinu. Þeir geta skoðað yfirlit-
in, borið þau saman við fyrri ár og
leitað svara ef niðurstöðurnar eru
ekki í samræmi við áætlanir.
Patrick segir starfsfólk á hverjum
vinnustað vera í framvarðarsveit-
inni þegar kemur að hinni eiginlegu
vinnu að sjálfbærni og því er mikil-
vægt að þjálfa það vel en það getur
skipt sköpum þegar kemur að lang-
tímaárangri. Þeir sem sjá um þrifin,
viðhaldið, garðyrkjustörfin og bera
ábyrgð á notkun kemískra efna svo
dæmi séu nefnd skipta miklu máli
í sjálfbærum rekstri. Rannsókn-
ir okkar sýna að meðvitað starfs-
fólk getur bætt árangur fyrirtækja
um allt að 15% án þess að til komi ný
tæki eða tól.“
Tengiliður við EarthCheck hér
á landi er fyrirtækið Grænir hælar.
Sé óskað eftir nánari upplýsingum
um vottunarkerfið er hægt að senda
tölvupóst á gh@graenirhaelar.is.
Umhverfisvottun
leiðir til sparnaðar
EarthCheck er alþjóðlegt umhverfis- og vottunarkerfi sem býður heildrænar og
markaðsprófaðar lausnir sem hafa jákvæð áhrif á fólk, umhverfi og arðsemi.