Fréttablaðið - 09.04.2014, Page 34
KYNNING − AUGLÝSINGGrænn apríl MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 20146
Við sturtum því niður
Um það bil 27% af vatnsnotkun hvers
heimilis má rekja til klósettsins –
því við það að sturta niður notum
við meira vatn en fyrir þvottavélina,
uppþvottavélina eða sturtuna. Því
er mikilvægt að vera með tvöfalda
vatnsstillingu á klósettkassanum til
að geta minnkað þessa vatnsnotkun.
Stillanlegir sturtuhausar
Hægt er að draga úr því vatnsmagni
sem við notum í sturtunni með því
að setja upp sturtuhausa sem draga
úr vatnsmagninu, án þess að skerða
ánægjuna af góðri sturtu. Þeir sem
eru virkilega meðvitaðir um að spara
vatn skrúfa fyrir sturtuna meðan
þeir þvo hár og líkama og skrúfa svo
frá henni aftur til að skola sig.
Hreyfiskynjarar
Settu upp hreyfiskynjara við blönd-
unartækin í vaskinum. Þú sparar
ótrúlega mikið vatn á því.
Skiptu um ljósaperur
Ef þú hefur ekki þegar skipt yfir í
LED-perur er tilvalið að gera það
nú, ekki bara á baðherberginu held-
ur á öllu heimilinu. Þær spara bæði
orku auk þess sem þær endast mun
lengur en gömlu venjulegu ljósaper-
urnar. Reiknað hefur verið út að ef
öll heimili á Íslandi skiptu út tíu 60W
glóperum fyrir tíu 11W sparperur
myndi orkan sem sparast vera um 60
milljón kílóvött á ári, sem samsvar-
ar heildarrafmagnsnotkun þrettán
þúsund heimila.
Orkusparandi vifta
Vifta með orkusparandi merking-
um dregur úr rafmagnsnotkun á
baðherberginu.
Mikilvægt er
að láta vift-
una ganga á
meðan verið
er í sturtu
eða baði
og í um
það bil
15 mínútur eftir það til að forðast að
upp safnist raki, sem getur leitt til
myglu.
Umhverfisvænni efni
Kauptu umhverfisvænt inn í bað-
herbergið, allt frá handklæðum og
þvottastykkjum yfir í sápur, sjampó,
hárnæringu, krem og salernispapp-
ír. Leitaðu eftir umhverfisvottunar-
merkjum eins og „organic“, „certi-
fied organic“, „from organic ingredi-
ents“ eða öðru þess háttar á þessum
vörum.
Hreinsað með grænum efnum
Það er hægt að hreinsa baðher-
bergið með matarsóda og ediki.
Dreifðu matarsódanum yfir svæð-
ið sem á að þrífa, helltu smá hvítu
ediki yfir og láttu freyða og liggja
á svæðinu í fjórar til fimm mínút-
ur. Strjúktu svo yfir með góðum
svampi. Hægt er að blanda
nokkrum dropum af ilm-
kjarnaolíum eins og tea
tree, lavender, eucalyptus,
sítrónugrasi og rósmaríni út í
vatn í úðabrúsa. Olíurnar eru
bæði bakteríudrepandi og gefa
góðan ilm.
Umhverfisvæn ráð
fyrir baðherbergið
Ýmislegt má gera til að minnka vatnsnotkun, orkunotkun og notkun
óumhverfisvænna efna á baðherberginu. Hér eru nokkur góð ráð.
Íslendingar sóa miklu vatni á baðherberginu en með nokkrum einföldum leiðum er hægt að draga úr notkun þess. NORDICPHOTOS/GETTY
Gæðavottaðar
Náttúrulegar
Snyrtivörur
Náttúran.is
Nýr ve
fur!
Allt grænt á einum stað!
Þúsundir fyrirtækja eru nú skráð á Græna kortið
OKKAR
LOFORÐ:
Lífrænt og
náttúrulegt
Engin
óæskileg
aukefni
Persónuleg
þjónusta
HEILSU-
SPRENGJA
20% afsláttur
Grænn apríl í Lifandi markaði
G
il
d
ir
f
rá
3
.
-
1
0
.
a
p
rí
l
2
0
1
4
Borgartún • Fákafen • Hæðasmári
www.lifandimarkadur.is