Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.04.2014, Qupperneq 46

Fréttablaðið - 09.04.2014, Qupperneq 46
USD 112,56 GBP 188,16 DKK 20,753 EUR 154,96 NOK 18,835 SEK 17,289 CHF 127,03 JPY 1,097 Netfang rit stjorn@markadurinn.is Sími 512 5000 Fax 512 5301 Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@markadurinn.is Veffang visir.is Gengi gjaldmiðla FTSE 100 6.590,69 +32,15 (0,49%) Viðskiptavefur Vísis @VisirVidskipti Viðskiptaumhverfið er sífellt að breytast. Breytingar fela í sér tækifæri fyrir þá sem eru snarir í snúningum. Krafan er vaxandi um að fyrirtæki séu rekin af ábyrgð gagnvart umhverfi og samfélagi og um leið þarf að leita leiða til að spara, ná sambandi við nýja viðskiptavini sem koma inn á markaðinn með nýjar hugmyndir og ný gildi, auk þess að halda í þá sem fyrir eru. Skapandi ferli Þar kemur að samfélagsábyrgð sem tæki til að takast á við raunverulegar breytingar. Ef hún er nýtt markvisst, þá opnar samfélagsábyrgð fyrir nýsköpun og samkeppnisforskot um leið og samfélagsleg vandamál eru leyst. Hún snýst hins vegar ekki um styrkveitingar til góðgerðarmála eða „PR-stönt“ en er markviss og þrautreynd leið til að bæta vinnu- brögð og auka sparnað. Skapandi og skemmtilegt ferli. Samfélagsábyrgð felst í að skilja samhengið og fá yfirsýn svo að fyrirtæki geti tekið ábyrgð á þeim áhrifum sem ákvarðanir og starfsemi þess hafa, með gagnsæjum og sið- legum hætti. Hún er um leið áhættu- stjórnun þar sem farið er markvisst yfir virðiskeðjuna. Verkfærin sem fylgja greininni og leiðbeina við inn- leiðingu eru m.a. UN Global Compact og ISO 26000 og svo eru mælitæki til að mæla árangurinn eins og Global Reporting Initiative. Klárt samkeppnisforskot Michael Porter hefur bent á að mesti ávinningur af samfélagsábyrgð náist þegar raunverulegir hagsmunir fyrirtækis og samfélags skarast. Í því sambandi má nefna dæmi sem allir þekkja þegar Toyota brást mjög snemma við áhyggjum almennings af loftslagsbreytingum og koltvísýr- ingsútblæstri frá bílum með því að þróa Priusinn. Þetta hefur ekki bara dregið úr koltvísýringslosun heldur gefið Toyota klárt samkeppnisforskot á keppinauta sína þegar kemur að þróun tvinn-bíla. Óplægður akur Góðum dæmum fjölgar óðfluga en hér á landi er þó enn óplægður akur og líklega erum við um tíu árum á eftir þeim löndum sem við viljum miða okkur við í viðskiptalífinu. Þarna eru því tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki og mikilvægt að fara af stað og finna þá ávexti sem lægst hanga. Aukin framlegð fyrirtækja er eitt helsta tækifæri íslenska hagkerfisins. Eigum við að halda áfram að vega og meta rekstur okkar í gegnum sömu gömlu gleraugun eða ætlum við að tileinka okkur þekktar, ferskar og framsæknar leiðir nýsköpunar? Nýtum við tækifæri við breytingar? Hin hliðin HALLDÓRA HREGGVIÐSDÓTTIR, FRAMKVÆMDASTJÓRI ALTA KOMDU Á KYNNINGAR- FUND Í HR: Meistaranám við tölvunarfræðideild Miðvikudaginn 9. apríl kl. 16:15-17:15 Stofu M101 Meistaranám við viðskiptadeild Fimmtudaginn 10. apríl kl. 12:00-13:00 Stofu M325 Meistaranám í verkefnastjórnun (MPM) Föstudaginn 11. apríl kl. 12:15-13:00 Stofu M101 Frekari upplýsingar á hr.is OPIÐ FYRIR UMSÓKNIR Í MEISTARANÁM VIÐ HR hr.is/meistaranam VILTU NÁ FORSKOTI? Bára Ragnhildardóttir Ráðgjafi hjá Motus Nemi í MPM-námi við HR 34 MILLJÓNIR EVRA Þriðjungur veltu á einum degi Krónan stóð næstum óbreytt í mánuðinum, og stóð í 155,3 krónum á evru í lok mánaðar- ins í samanburði við 155,0 í lok febrúar. Hagfræðideild Landsbankans greinir frá þessu. Um þriðjungur af veltu mánaðarins átti sér stað á einum degi, en fimmtudag- inn 27. mars skiptu 34 milljónir evra um hendur. Þetta er fjórða mesta velta á einum degi síðan í byrjun árs 2009. Þar af keypti Seðlabanki Íslands 15 milljónir evra. „Ritstjóri Morgunblaðsins er svo vinsamlegur að helga mér heilan leiðara í morgun þar sem hann sýnir mér þann heiður að nefna mig átta sinnum á nafn. Mér þykir vænt um það, en vegna þess að leiðarinn kann að hafa farið fram hjá einhverjum örfáum setti ég hann inn í pistil. Niðurlagið gefur smjörþef af innihaldinu: „En hitt er svo umhugsunarefni, hvort líklegt sé til árangurs, þegar lagt er upp í vegferð, að telja að slíkt óbragð og ódaunn sé af veganestinu sínu að í það megi hvergi glitta og enginn fái að hnusa af því.“ Benedikt Jóhannesson stærðfræðingur 1,83% Enn hækkar Marel Veltan með hlutabréf Marel í Kaup- höll Íslands í gær var 57 milljónir króna. Gengi bréfanna hækkaði um 1,83 prósent og í fyrradag hækkaði gengið um 2,83 prósent. Hækkunin samtals þessa vikuna er því 4,66 prósent en gengi bréfa Marel hafa þó lækkað talsvert undanfarið og stóð það í 138 krónum í byrjun árs en er nú 111 krónur. Fyrsta hagspá SA Efnahagssvið Samtaka atvinnulífsins kynnir hagspá sína á morgunfundi í dag. Um er að ræða fyrstu spá sviðs- ins sem er nýtt innan samtakanna. Í henni kemur meðal annars fram að staða efnahagslífsins innan hafta sé brothætt. Raunhætta sé á eignaverð- bólgu, að hagkerfið ofhitni og að gjaldeyrisafgangur þjóðarbúsins verði enginn. Tækifærið til losunar hafta geti því verið fljótt að hverfa. BROTTHÆTT Save the Children á Íslandi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.