Fréttablaðið - 09.04.2014, Síða 56
9. apríl 2014 MIÐVIKUDAGUR| LÍFIÐ | 28
BAKÞANKAR
Ragnheiðar
Tryggvadóttur
„Útlit síðunnar var orðið átta
ára gamalt og því kominn tími
til þess að fríska upp á vefinn,“
segir Ólafur
Thorarensen,
framkvæmda-
stjóri miði.is,
en nýr vefur
þjónustunnar
var opnaður í
dag. „Helsta
viðbótin er að
nýja útlitið er
skalanlegt og
því hentugt
fyrir snjallsíma og spjaldtölvur,“
segir Ólafur en á næstu mán-
uðum mun miði.is einnig bjóða
upp á nýjungar á borð við vöru-
sölu á vefnum. „Segjum að þú
sért að kaupa miða á tónleika, þá
gætirðu jafnvel keypt geisladisk
hljómsveitarinnar á sama tíma
og þú kaupir miðann, eða leik-
skrána fyrir leikritið sem þú ert
að fara á, þetta allt í bígerð.“
Kominn tími á
andlitslyft ingu
„Þetta er Bræðsla númer tíu og við
vorum lengi að velta fyrir okkur
hvernig við ættum að útfæra
hátíðina af því tilefni og ákváðum
því á endanum að hafa þetta svona
„best of“. Við fengum nokkra af
bestu tónlistarmönnum þjóðar-
innar, sem eiga allir sinn þátt í
því að Bræðslan er eins og hún
er í dag,“ segir Magni Ásgeirsson
Bræðslustjóri en tónlistarhátíðin
Bræðslan fer fram á Borgarfirði
eystra laugardaginn 26. júlí næst-
komandi. Þetta er í tíunda skiptið
sem Borgfirðingar slá upp tónlist-
arhátíð í gömlu síldarbræðslunni á
Borgarfirði og því verður hátíðin
í sumar sérlega vegleg. Eftirtalið
tónlistarfólk kemur fram á hátíð-
inni í ár: Drangar, Emilíana Torr-
ini, Lára Rúnars, Mammút, Polla-
pönk og SúEllen.
„Við höfum oft haft erlenda tón-
listarmenn á hátíðinni eins og
Damien Rice og John Grant, en
fyrst Emilíana Torrini kom heim
aftur ákváðum við vera ekki að
sækja vatnið yfir lækinn,“ segir
Magni, sem er sérstaklega ánægð-
ur yfir því að Emilíana Torrini
snýr nú aftur til Borgarfjarðar.
Emilíana varði einmitt hluta af
æsku sinni á Borgarfirði og kom
fram á fyrstu Bræðslutónleik-
unum 2005 og einnig á Bræðsl-
unni 2006. Fleiri góðkunningjar
Bræðslunnar snúa aftur, meðlim-
ir Dranga, þeir Jónas Sigurðs-
son, Mugison og Ómar Guðjóns-
son, hafa allir komið fram áður
á Bræðslunni, auk þess sem þeir
unnu hluta af sinni fyrstu plötu á
Borgarfirði.
„Lára Rúnarsdóttir og meðlim-
ir hennar hljómsveitar sigldu ein-
mitt með þeim Dröngum í kring-
um landið á Húna II á síðasta
ári, meðal annars með viðkomu
á Borgarfirði, en þetta verður í
fyrsta skiptið sem Lára kemur
fram í Bræðslunni,“ bætir Magni
við.
Sömu sögu er
að segja um ung-
liða þessa árs,
Mammút, sem
hefur vakið verð-
skuldaða athygli á
síðustu mánuðum.
Bræðslan hefur
alla tíð haft það
markmið að kynna
ungt tónlistarfólk
á hátíðinni og er
þar skemmst að
minnast Of Monst-
ers and Men sem
kom fram á hátíð-
inni 2010, þá að
stíga sín fyrstu
spor.
Önnur hljóm-
sveit sem mun
koma fram í fyrsta skiptið á Borg-
arfirði er þó heldur eldri í hett-
unni, en það eru Austfirðingarnir
í SúEllen. Þrátt fyrir að hafa spil-
að saman í hartnær þrjá áratugi
hefur sveitin aldrei komið fram
fullskipuð á Borgarfirði.
Bræðslan haldin í tíunda sinn
Tónlistarhátíðin Bræðslan verður haldin á Borgarfi rði eystra 26. júlí. Þar kemur Emilíana Torrini meðal annars fram.
BRÆÐSLU-
STJÓRINN Magni
Ásgeirsson lofar
miklu stuði á
Bræðslunni.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Kvikmyndaáhugamenn sem ætl-
uðu sér á fyrstu sýningu Noah
seinasta föstudag í Exeter-kvik-
myndahúsinu þurftu að leita
annað þegar kvikmyndahús-
inu var lokað vegna flóðs. Þegar
starfsmenn Exeter Vue-kvik-
myndahússins mættu til vinnu þá
brá þeim heldur betur í brún þar
sem flætt hafði úr gallaðri ísvél
og út um allt kvikmyndahúsið.
Kvikmyndagestir fengu því ekki
tækifæri til þess að horfa á mynd-
ina sem er einmitt byggð á biblíu-
sögunni um Nóa og flóðið. - bþ
Sýningu afl ýst
vegna fl óðs
RUSSEL CROWE fer með aðalhlutverkið
í myndinni Noah.
MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL
16:00 Fuglejagten, Danmörk (2012)
18:00 Himlen är oskyldigt blå,
Svíþjóð (2010)
20:00 Pionér, Noregur (2013)
Allar kvikmyndirnar eru sýndar með
enskum texta og er frítt inn á hátíðina.
Nánari upplýsingar á norraenahusid.is.
NORRÆN
KVIKMYNDA
HÁTÍÐ
3.–15. APRÍL 2014
NORRÆNA HÚSIÐ
KYNNIR:
CAPTAIN AMERICA 3D
CAPTAIN AMERICA 3DLÚXUS
NOAH
GRAND BUDAPEST HOTEL
ÁHNETUR NIÐ 2D
ÆVINTÝRI HR. PÍBODYS ÍSL. TAL 2D
RIDE ALONG
NYMPHOMANIAC PART 2
HEILD
GRAND BUDAPEST HOTEL
DEAD SNOW - RED VS DEAD
ONE CHANCE
KL. 5 - 8 - 10.15
KL. 5 - 8
KL. 5 - 8 - 10.15
KL. 5.45 - 8
KL. 3.30
KL. 3.30 - 5.45
KL. 8
Miðasala á:
KL. 6 - 9
KL. 6 - 8
KL. 5.45 - 8 - 9 - 10.15
KL. 10.15
KL. 5.40
- THE TELEGRAPH
- FRÉTTABLAÐIÐ
- THE GUARDIAN- EMPIRE
SJÁ FLEIRI SÝNINGAR Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas
CAPTAIN AMERICA 3D 5, 8, 10:45
NOAH 6, 8, 9, 10:45
HNETURÁNIÐ 2D 6
THE HOLLYWOOD REPORTER
VARIETY
EMPIRE
ÁLFABAKKA
AKUREYRI
EGILSHÖLL
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
THE HOLLYWOOD REPORTERL.K.G - FBL.
EMPIRE ENTERTAINMENT WEEKLYTOTAL FILMTHE GUARDIAN
GEFÐU
VATN
gjofsemgefur.is
9O7 2OO3
ÓLAFUR
THORARENSEN
Ég opna sjaldan myndbönd sem fólk er að deila á Facebook. Nenni því ekki.
Geri það þó stundum, ef ég held að þau
séu sniðug, eða áhugaverð. Opnaði eitt
um daginn. Yfirskriftin var eitthvað
á þessa leið „kona hrópar óviðeigandi
athugasemdir að karlmönnum, sjáðu hvað
gerist“. Remban, sem blundar í mér innst
inni lyfti brúnum. Ég horfði.
MYNDBANDIÐ sýndi unga breska konu
sem ýmist gekk upp að karlmönnum á
förnum vegi eða ók fram hjá þeim í bíl
með opinn glugga, og lét til dæmis kyn-
ferðislegar athugasemdir falla um vaxt-
arlag þeirra. Spurði til vegar og sagðist
í leiðinni gruna að buxur þess sem leið-
beindi henni færu betur á svefnherbergis-
gólfinu hennar en á honum sjálfum. Hún
pantaði drykk á bar, blikkaði barþjón-
inn og bað hann svona í framhjá-
hlaupi um „eitthvað meira“. Allt á
léttu nótunum, auðvitað.
FLESTIR urðu mennirnir
hvumsa, vissu ekki hvaðan á þá
stóð veðrið. „Er allt í lagi með
þig?“ spurðu þeir hneykslaðir
þegar hún stakk upp á að þeir kæmu með
henni heim, bara svona í gríni. „Svona
talar þú ekki við okkur góða,“ sögðu
iðnaðarmennirnir móðgaðir þegar hún
blístraði á þá og fór fram á að þeir sýndu
meira hold, eða eitthvað í þá áttina.
ÞAU sem settu myndbandið saman unnu
það upp úr raunverulegum upplifunum
kvenna sem höfðu sent inn lýsingar á
hinu og þessu sem karlar létu flakka
við þær. Tilgangurinn með myndband-
inu var að sýna fram á hversu asnaleg-
ar þessar athugasemdir og óviðeigandi
þessi tilboð hljómuðu þegar hlutverkun-
um var snúið við.
EN hver urðu viðbrögð mín? Jú, það
hlakkaði í rembunni inni í mér yfir því
hversu móðgaðir karlarnir urðu. „Já, já,
svona er þetta nú elsku karlarnir mínir.
Verði ykkur að góðu bara.“
EN varla var það ætlunin eða hvað? Að
mér liði eins og ég hefði á einhvern hátt
náð fram hefndum? Eitt núll fyrir okkur,
í hinu eilífa stríði stelpur á móti strákum!
Ég sussaði á rembuna inni í mér.
Eitt núll fyrir okkkur!
„Síðast en ekki síst skal svo
nefna fulltrúa okkar Íslendinga í
Eurovision þetta árið, Pollapönk.
Þeir munu koma með sinn góða
boðskap um enga fordóma í Borg-
arfjörðinn.“
Miðasala á hátíðina hefst á miði.
is þann 6. maí kl. 10.00. „Á síðasta
ári seldust miðar í Bræðsluna upp
á 60 klukkustundum og því rétt að
hafa hraðan á til að tryggja sér
miða,“ bætir Magni við léttur í
lundu en einungis 800 miðar eru
í boði. gunnarleo@frettabladid.is
FRÉTTBLAÐIÐ/ARNÞÓR
SNÝR AFTUR
Emilíana Torrini
kemur fram á
Bræðslunni í sumar.