Fréttablaðið - 09.04.2014, Blaðsíða 58
Real Madrid og Chelsea í undanúrslit FÓTBOLTI Real Madrid og Chelsea
tryggðu sér sæti í undanúrslit-
um Meistaradeildarinnar í gær í
dramatískum leikjum.
Demba Ba og Andre Schürrle
skoruðu mörk Chelsea í 2-0 sigri
á PSG. Chelsea fer áfram á marki
á útivelli.
Real Madrid tapaði 2-0 fyrir
Dortmund en vann fyrri leikinn
3-0. Liðið var heppið að tapa ekki
stærra í gær. - hbg
visir.is
Frekari umfjöllun
um leikina.
BADMINTON Tinna Helgadóttir
varð á sunnudaginn Íslandsmeist-
ari í badminton í þriðja skiptið.
Hún starfar sem yfirþjálfari hjá
Værlöse í Danmörku en fær ekki
starf hér heima. Ýmsu er ábóta-
vant í barna- og unglingastarfinu
á Íslandi að hennar mati.
„Mér finnst vanta svolitla nýj-
ungagirni í þjálfunina. Það eru
búnir að vera sömu þjálfararnir
í félögunum í mörg ár. Ef maður
á að halda áfram að taka fram-
förum sem þjálfari verður maður
að fylgjast með hvað er að gerast.
Það vantar líka að sambandið ýti
undir þetta. Það er ekki nógu mikil
samvinna milli þess og félaganna.
Þjálfararnir eru ekki að uppfæra
sig nóg,“ segir Tinna og bendir á
að yngri þjálfarar eins og hún og
bróðir hennar, Magnús Ingi, hafi
farið út til að mennta sig í fræð-
unum. Sama gildir um tvær aðrar
stúlkur sem Tinna þekkir til.
Sjálf fór Tinna til Álaborgar í
þjálfaraskóla í eitt ár 2005-2006 í
boði TBR en þegar hún kom aftur
heim var ekkert starf á lausu í
félaginu.
„Mér var í raun sagt að það væri
ekkert í boði. Mér finnst vanta
miklu meira að yngri kynslóðin
sé notuð til þess að reyna að vekja
áhuga á badmintoni aftur. Það eru
sömu mennirnir búnir að þjálfa hjá
TBR í 25 ár. Ég er ekkert að skjóta
á eitthvert eitt félag eða einn
mann. Alls ekki. Mér finnst bara
að það eigi að nota það fólk sem er
fullt eldmóðs og vill gefa eitthvað
af sér. Ég er búin að vera yfirþjálf-
ari í fjögur ár hér í Danmörku og
finnst þetta ótrúlega gaman. Mér
finnst vanta sama eldmóð í starfið
heima,“ segir Tinna.
Fá ekki bestu krakkana
Útbreiðslustarf er einnig eitthvað
sem þarf að bæta að mati Tinnu.
Hún bendir á að badminton sé á
grafarbakkanum eða nánast dautt
á stöðum úti á landi líkt og Kefla-
vík, Akureyri, Siglufirði og fyrir
austan þar sem það lifði góðu lífi
áður.
„Badminton er eiginlega bara í
Reykjavík. Pabbi minn er aðeins
að þjálfa á Akranesi, svo er bad-
minton í Hafnarfirði og Mos-
fellsbæ. Útbreiðslustarfið er ekki
nógu gott. Badminton er íþrótta-
grein sem Íslendingar eiga að geta
orðið góðir í því þetta er einstak-
lingsgrein. Það eru möguleikar
í þessu en við verðum ekki betri
á meðan unglingastarfið er ekki
betra. Núna er þetta bara happa
og glappa ef það kemur upp eitt-
hvert náttúrutalent,“ segir Tinna.
Hvað varðar þjálfunina sjálfa
segir hún að það þurfi að þora að
fara lengra með hana. Það séu oft
ekki bestu íþróttamennirnir sem
sækja í badminton og því þurfi að
haga þjálfuninni eftir því.
„Mér finnst vanta hérna heima að
þora að gera krakkana eins góða
og þeir geta orðið. Þegar ég flutti
til Danmerkur opnaðist nýr heim-
ur fyrir mér. Ég hef virkilega séð
hvernig hægt er að æfa og gera
þessa litlu krakka mjög góða og
hvað maður getur kennt þeim,“
segir Tinna.
„Vandamálið heima, eins og
erlendis, er að við fáum oft afgang-
ana frá fótbolta og handbolta.
Krakkar sem virkilega eru góðir
íþróttum byrja annars staðar. Það
þýðir að maður þarf að vera fram-
sæknari í þjálfuninni,“ segir Tinna
Helgadóttir, Íslandsmeistari í bad-
minton og yfirþjálfari hjá Værlöse
í Danmörku.
tom@frettabladid.is
Sömu menn í 25 ár
Tinna Helgadóttir, þrefaldur Íslandsmeistari í badminton, er ekki kát með barna-
og unglingastarf á Íslandi. Hún þjálfar í Danmörku en fær ekki tækifæri hér.
YFIRÞJÁLFARI Íslandsmeistarinn Tinna Helgadóttir starfar sem yfirþjálfari hjá
Værlöse í Danmörku en henni býðst ekki starf hér heima. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
KEILA „Við erum að fara af stað
með nýja afreksstefnu og hluti af
henni er að fastráða landsliðsþjálf-
arana,“ segir Ásgrímur Helgi Ein-
arsson, formaður landsliðsnefndar
Keilusambands Íslands, í samtali
við Fréttablaðið. Keilusambandið
gekk frá ráðningu þriggja lands-
liðsþjálfara í gær en samið var við
þá alla til tveggja ára.
Arnar Sæbergsson er nýr þjálf-
ari karlalandsliðsins og Theo-
dóra Ólafsdóttir, sem stýrt hefur
kvennaliðinu, er nú orðin fast-
ráðin. Þá er Guðmundur Sigurðs-
son frá Akranesi nýr þjálfari ung-
mennalandsliðsins.
„Við erum að horfa til þess að
setja starf okkar í fastari skorður.
Við erum bara algjörlega að taka
afreksmál okkar í gegn. Þetta
snýst um hvar við viljum vera
eftir 5-10 ár og hvert við stefnum
á heimsmeistaramótum.“
Metnaður er í nýrri afreksstefnu
Keilusambandsins en í henni segir
að framtíðarsýnin sé að eignast
áhuga- og/eða atvinnukeilara í
fremstu röð innan tíu ára. Á sama
tíma vill KLÍ eignast a.m.k. tíu
íslenska keilara sem verða þátttak-
endur á sterkustu mótum Evrópu.
Til að ná þessum markmið-
um mun KLÍ einblína á að fjölga
afrekskeilurum og styðja við þá
sem þegar standast viðmið sam-
bandsins. - tom
Keilari í fremstu röð innan 10 ára
Keilusamband Íslands samdi við þrjá nýja landsliðsþjálfara til tveggja ára í gær.
LANDSLIÐSÞJÁLFARAR Undirskriftin í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Prófaðu
HETJAN Demba Ba fagnar markinu sem kom Chelsea í undanúrslit. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
SPORT 9. apríl 2014 MIÐVIKUDAGUR